8.11.05

Sölvína

Söl og sykurlaus ópal fara ekki vel saman í maga... vildi bara láta ykkur vita ef þið skylduð freistast!

7.11.05

Mánudagur

Vitiði það að ég er farin að hlakka til jólanna? Og nóvember rétt að byrja! Ætli þetta sé máttur Ikea auglýsinganna... ja, og reyndar allra hinna sem eru farnir að auglýsa jólavörur og jólaföt? Sennilega. Spurning samt hvaða mynd verður á blessuðu verkefninu um jólin. Æ, það kemur bara í ljós!

Fór uppeftir um helgina þar sem var rólegheita Scrabble helgi. Ég vann samt ekki. Annars eru miklir rólegheitadagar bara í gangi, það gerist ósköp lítið markvert og það er kannski ein ástæðan fyrir litlu bloggi þessa dagana. Næstu helgi á reyndar að fara í sumarbústað í Húsafelli sem verður örugglega rosa gaman. Jú, svo eru White Stripes að koma til landsins og það eru líka tónleikar með Antony and the Johnsons í desember. Svo eru bara komin jól!

Ég ætla samt að massa fræðikaflann í vikunni og hananú! Ef það á að stefna í útskrift í febrúar þá þýðir ekkert annað. Back to work - óverendát!

28.10.05

Það er komin vetrartíííð...

Ójá, á meðan það er 20 stiga hiti í Evrópu og fólk situr úti á kaffihúsum þá megum við bara frjósa í hel hérna á meðan það geisar snjóstormur og viðbjóður. Og ég ekki á vetrardekkjum... Ég sem ætlaði að hætta að kvarta og kveina hérna á síðunni! En það er bara ekki annað hægt núna, svei mér þá.

Nú stendur yfir íbúðaleit hjá okkur en þar sem útskrift er ráðgerð hjá mér í febrúar þá fáum við víst ekki að búa hér lengur en aðeins fram yfir það. Það er hins vegar ekkert grín að leita sér að íbúð þessa dagana. Sérstaklega þar sem kröfur okkar eru meiri en venjulega af illri nauðsyn: Ekki of margar tröppur, ekki of lágt brunabótamat, helst ekki úti í rassgati, þvottavél á sömu hæð o.s.frv... Það er því eins gott að byrja bara að leita strax svo að við lendum ekki á götunni með vorinu.

Annars er mikil rólegheitahelgi framundan. Pastasalat hjá pastasalatmeistaranum í kvöld (það er hún Anna Katrín ef þið föttuðuð þetta ekki...) og svo verður maður líklega angandi af hvítlauk það sem eftir er helgar. Skoða eins og eina íbúð á morgun og svo bara vídeó og leti.

24.10.05

Mánudagur

Þá er Airwaves lokið og við tekur veturinn. Hátíðin í ár var mjög fín fyrir utan fáránlega langar raðir inn á suma staði þannig að maður komst ekki inn til að sjá það sem maður vildi. Á laugardagskvöldið lenti ég einmitt í því en var komin að Nasa um hálftíu og þá var fimmföld röð frá húsinu að Alþingi... Þá varð bara að virkja plan b og fara í Hafnarhúsið þar sem hin frábæru Zutons voru m.a. að spila. Mjög skemmtilegt!

Nú fer afsökunum hins vegar fækkandi fyrir því að klára ekki helv... nei, ég meina frábæra verkefnið mitt. Það koma dagar, og þeir eru reyndar fleiri en hinir, þar sem ég sit með störu á skjáinn og kem engu í verk. Legg nokkra kapla, blogga pínu, les blogg hjá öðrum, legg fleiri kapla, fer á leikjasíðu á netinu (úff, stórhættulegt!) og er svo að drepast í baki og öxlum á eftir. Spurning um að taka sér bara frí kl. 14:08! Halda svo áfram á morgun...

21.10.05

Loftbylgjur og kindur

Já, þeir hafa löngum verið sérstakir þessir Kjósverjar... Gott hjá þessum að uppgötva heiminn en synd hvernig fyrir þeim fór!

Airwaves airwaves airwaves airwaves... Já, það er gaman á Airwaves. Hátíðin er hálfnuð og nóg eftir. Á miðvikudaginn var ég á Nasa allt kvöldið þar sem mjög svo misjafnir listamenn komu fram en þar var óvæntastur og skemmtilegastur Hermigervill. Í gær var flakkað á milli Hafnarhússins og Þjóðleikhúskjallarans þar sem snillingurinn José González bræddi lýðinn.

Í kvöld er það svo Gaukurinn og vonandi Nasa á morgun. Það er þó eins gott að vera ekki of seint á ferðinni til að komast hreinlega inn á staðina, það eru raðir út um allt. Spurning um að fjölga annaðhvort stöðunum eða fækka miðunum...

18.10.05

Feneyjar austursins

Þá er maður kominn aftur af flóðasvæðunum fyrir austan. Já, Hornafjörður var á kafi um helgina og fólk sigldi bara á bátum um bæinn. Þetta var alveg ótrúlegt! Á leiðinni austur var hins vegar yndislegt veður, allt á kafi í snjó og glampandi sól. Svo var bara allt farið í bakaleiðinni og allt orðið grátt og blautt. Þrátt fyrir mikla rigningu og leiðindaveður var Hornafjarðarferðin alveg frábær eins og venjulega og mikið borðað og drukkið og farið í heita pottinn. Svo keypti ég mér meiraðsegja nýja strigaskó á Höfn fyrir Airwaves!

Iceland Airwaves er nefnilega að byrja í vikunni. Þetta verður algjör veisla í fjóra daga og af nógu að taka. Eins og í fyrra missir maður þó alltaf af einhverju en það fylgir þessu bara. Hins vegar þekki ég voða lítið til hljómsveitanna í ár en hlakka til að sjá José González sem ég hef verið að hlusta á.

13.10.05

Picture(2.jpg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Picture(2.jpg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

7.10.05

Andlaus

Ég er gjörsamlega andlaus í sambandi við verkefnið. Ég stari á tölurnar og setningarnar og fórna höndum... Er þetta hægt?! Mig langar helst að skríða upp í rúm og horfa á sjónvarpið en get það ekki því að þá fæ ég samviskubit og get ekki einbeitt mér að því. Ekki að ég geti einbeitt mér að verkefninu heldur! Úff...

Ég fór á svo skemmtilega mynd á kvikmyndahátíð í vikunni. Þetta var heimildarmynd um George Michael, gamla uppáhaldið mitt. Salurinn var fullur af gömlum Wham aðdáendum og tók fólk andköf þegar gömlu Wham lögin voru spiluð og ekki síður þegar Andrew Ridgeley birtist á skjánum. Það var virkilega gaman að sjá myndina og margt sem maður vissi ekki um feril hans og líf. Svo er hann bara svo aðlaðandi og skemmtilegur... auðvitað!

Og guð minn góður... íslenski bachelorinn. Vá hvað það er hræðilegt að horfa á þetta en samt verður maður. Svo er hann svo klígjulegur sjálfur, ég skil gelluna vel sem sagði bara nei við rósinni. Og plebbabragurinn á þessu, vá! Úff.. þetta er bara einum of hallærislegt. Mér finnst samt að hann hefði átt að gefa frænku minni rós en hún getur kannski bara prísað sig sæla stúlkan. Og af hverju heitir þetta ekki Piparsveinninn??

4.10.05

Töluvert mál - lokasprettur

Þá er komið að því að hella sér aftur í lokaverkefnið - Töluvert mál. Það er soldið erfitt að byrja aftur þar sem frá var horfið en um leið bara gaman. Verkefnið hefur verið að gerjast einhvers staðar á bakvið í kollinum á mér þannig að það er gott að geta komið þeim hugmyndum niður á blað og farið að vinna með þær. En ég hlakka líka ekkert smá til að klára þetta...

Helgin var alveg þrælfín þótt veðrið hefði mátt vera betra. Ég veiddi tvo laxa og einn sjóbirting á meðan ýmist snjóaði á mig eða rigndi. Að venju var vel tekið til matar síns, enda verður maður svangur af allri útiverunni, og var þjóðlegur matur á laugardagskvöldið: heimareykt hangikjöt, svið, reykt nautatunga, rófustappa, jafningur, grænar baunir og hveitikökur! Enda var ég svo södd eftir matinn að ég hefði getað farið beint að sofa. Það varð þó ekki raunin heldur dreif liðið sig á skemmtistað sveitarinnar, Kaffi Kjós, þar sem Eyfi sjálfur spilaði á gítarinn. Það var alveg hreint ágætt þótt hann hafi nú ekki verið sem hressastur sjálfur. Hann er ekki týpan sem spilar óskalög og þegar einhver sagði „æ, ekki vangalag“ þá sagði hann hinn fúlasti: „Ég spila bara það sem mér sýnist sama hvað hver segir!“ Svo mörg voru þau orð.

2.10.05

Örblogg

Eyjòlfur Kristjàns à Kaffi Kjòs!
SMS sendi ég
Powered by Hexia

30.9.05

Veiðihelgi

Úff hvað ég er fegin að þessi vika er búin, það er búið að vera rok alla vikuna og kalt þannig að ég hef varla farið út úr húsi. Þegar maður hangir svona inni alla daga verður maður bara tuskulegur með hausverk og vöðvabólgu af tölvuhangsi. Það væri nú kannski afsakanlegt ef maður hefði verið að gera eitthvað af viti en svo er nú ekki... ég hef mest verið í spider solitaire og að taka til í iTunes!

Um helgina fæ ég þó nóg af útiveru þar sem ég er að fara að veiða í klak í Kjósinni. Það er alltaf svaka gaman, fullt af fólki, aðallega familían, að veiða og svo er að sjálfsögðu veisla að hætti ungu húsfreyjunnar á eftir. Kannski það verði lamakjöt á borðum? Mér sýnist líka spáin ekkert vera alltof slæm, a.m.k. stefnir ekki í storm um helgina. Hafið það gott!

29.9.05

Picture(1.jpg

Mmm, thetta er alveg nytt...
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

28.9.05

Picture(1.jpg

Allt er nú selt í Bónus!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Myndir

Ég er búin að setja inn myndir frá Lanzarote. Ég sá að það eru nokkuð margar myndir af sundlaugagarðinum en það á sér skýringu - við vorum mikið þar... Njótið vel!

27.9.05

Þriðjudagur

Þvílík grámygla! Ég segi ekki annað... Ég vaknaði í nótt við rokið hérna uppi og gat ekki sofið, svitnaði og kólnaði á víxl og er svo eins og tuska í dag. Ojbara. Ég nenni ekki að fara að verða veik núna. Ég verð vonandi hressari strax á morgun.

Annars leiðist mér massa mikið hérna heima, ég er eitthvað að pjakkast í orðasafninu er er samt eiginlega búin og er að bíða eftir frekari leiðbeiningum. Ég ætla ekki að byrja á verkefninu fyrr en í næstu viku held ég, ég þarf að undibúa mig andlega fyrir það þangað til...

Ég hitti annars svo sætan strák í gær, hann er rétt rúmlega tveggja vikna gamall og skeit í fanginu á mér. Mér var samt alveg sama. Ég verð nú bara að hrósa vinkonum mínum með það hversu vel hefur heppnast í þessari barnagerð. Hvert barnið öðru myndarlegra og ég er strax farin að hlakka til að hitta grislingana aftur.

Svo er ég búin að fá nokkra nýja geisladiska mér til mikillar gleði og ánægju. Það er svona að eiga afmæli og góða vini;) Ég eignaðist sem sagt disk með Caribou, nýja Sufjan Stevens diskinn og Pink Moon með snillingnum Nick Drake. Takk fyrir það!

24.9.05

Picture(1.jpg

Áfram Valur!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

23.9.05

Heim í heiðardalinn

Mikið er gott að þurfa ekki að blogga alla ferðasöguna þar sem það er í raun búið í gegnum símann minn. Þvílík tækni! Ég er semsagt komin heim úr sólinni og það var frekar mikill munur að koma úr 30 stiga hita í 5 stig hérna - brrr.... Klukkan hálffimm um nóttina var 22 stiga hiti úti. Svo er bara 2 stiga hiti hérna núna og hálka! En nóg um það. Heimferðin gekk ljómandi vel, það var ekkert millilent og því engin seinkun og vorum við lent rétt eftir hádegið. Ég á örugglega eftir að setja inn myndir við tækifæri, ég læt vita þegar þær verða komnar inn.

Það sem við tók hérna heima fyrir utan kuldann var gríðarleg leti. Að vísu er ég búin að vera að ganga frá þvotti og taka til, svona til að gera eitthvað en ég nenni ómögulega að fara að gera eitthvað merkilegt. Enda alveg að koma helgi og þá á maður að vera í fríi... Í næstu viku ætla ég svo að klára það sem ég átti eftir í orðasafninu og svo er það bara alvaran - lokaverkefnið sjálft. Það verður gott að hella sér í það en erfitt að byrja. Ég hlakka ekkert smá til að klára það!

Svo er fullt að gera framundan, klakveiði, Hornafjarðarferð, Airwaves og Antony and the Johnsons. Mér ætti allavega ekki að leiðast á næstunni, það er víst!

22.9.05

20.9.05

Örblogg

Thà er heimferdin ad hefjast, löng og ströng. Flugid tekur svona 5 tima en med millilendingu à leidinni bætast 1-2 timar vid...
SMS sendi ég
Powered by Hexia

19.9.05

Picture(1.jpg

Sídasti 'triple orgasm' ferdarinnar...
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Picture(1.jpg

Thetta er sjoelen, frábær hollenskur leikur sem ég er bara ágæt í
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Örblogg

Thà er thad sidasti dagurinn hèrna. Seinni vikan leid alveg òtrùlega hratt, allt i einu er allt i seinasta skiptid. Nù er thad t.d. sidasti sjoelen leikurinn!
SMS sendi ég
Powered by Hexia

17.9.05

Picture(1.jpg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Örblogg

Nautalund, raudvin og sùkkuladimùs. Er ekki ad verda threytandi ad lesa thetta blogg?
SMS sendi ég
Powered by Hexia

Örblogg

Thad er algjört letilif à okkur nùna thar sem vid erum bùin ad skoda allt merkilegt hèrna. Sòlbad, sund, leikir og lestur, svona à lifid ad vera!
SMS sendi ég
Powered by Hexia

16.9.05

Örblogg

Hehe, djùpsteiktar rækjur i forrètt reyndust vera risarækjur! Vonandi verdur plàss fyrir öndina sem verdur i adalrètt...
SMS sendi ég
Powered by Hexia

Picture(1.jpg

Svalatími...
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

15.9.05

Örblogg

Vid ætlum ekki ad hafa bilinn lengur enda bùin ad sjà nær allt à thessarri litlu eyju. Fràbært ad keyra hèrna, litil umferd og litill hasar. Nù er bara sòlbad!
SMS sendi ég
Powered by Hexia

Örblogg

Krabbarnir litu ùt eins og litlar hvitar kòngulær en their eru mjög sjaldgæfir. Lifa bara djùpt i sjònum og i thessum helli, e-a hluta vegna.
SMS sendi ég
Powered by Hexia

Örblogg

Thà erum vid bùin ad keyra fullt i dag, frà sydsta hluta eyjunnar thar sem vid erum og alveg nyrst, allt à 5 timum med gòdu stoppi. Um 80-90 km alls!
SMS sendi ég
Powered by Hexia

Picture(1.jpg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Picture(1.jpg

Blindur albinóakrabbi
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Örblogg

Thà erum vid enn og aftur à ferdinni, bùin ad kaupa hvitvin ùr vinræktarhèradinu hèrna og ætlum ad skoda blinda albinòakrabba à eftir.
SMS sendi ég
Powered by Hexia

14.9.05

Örblogg

Maturinn var ekki adeins gòdur heldur lika stadurinn sjàlfur sem stòd alveg vid sjòinn tar sem brimid slettist upp à klappirnar. Alveg eins og heima næstum tvi!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Örblogg

Sàum heilmargt i dag en toppurinn var hàdegismaturinn i thorpinu El Golfo. Thar fékk èg mèr ferskan fisk, beint ùr sjònum og fannst bara gòdur - sko mig!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Picture(1.jpg


Bílstjórinn fær engan hádegisbjór...
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Picture(1.jpg


Úlfvaldastadir
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Picture(1.jpg


Eldfjallapúki
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Picture(1.jpg


Vid ætlum í bíltúr!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

13.9.05

Örblogg

Brennda og Brenndan heilsa ùr sudrinu. Brunnum vel i gær jöfnum og okkur thvi i skugganum i dag. Notalegur gustur nùna og hàlfskyjad, ætlum i ökuferd à morgun.

SMS sendi ég
Powered by Hexia

12.9.05

Picture(9).jpg


Ég veit ekki hvort thad sést en thetta er rosa sæt lítil edla. Vonandi fór hún samt ekki inn í herbergid okkar!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

11.9.05

Picture(6).jpg


Hér sit ég og bíd eftir gnocchi della mamma...
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

10.9.05

Örblogg

òlakaffi var geggjad i gærkvöldi med sushi i forrètt (ordin fullordin!) og kjùkling i salthnetusòsu i adalrètt. Algjört sùkkuladiheaven i eftirrètt...

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Örblogg

Skyjad i dag thannig ad ströndin bidur enn. Er nybùin ad thvo af mèr sùkkuladilyktina eftir nuddid. Langar samt i sùkkuladi! Ljùfa lifid heldur svo bara àfram.

SMS sendi ég
Powered by Hexia

9.9.05

Picture(4).jpg


Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Picture(3).jpg


Frekar fallegt útsyni yfir kvöldmatnum...
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Örblogg

Svo fæ èg slökunarnudd upp ùr sùkkuladiolium i afmælisgjöf og fer i thad à morgun. Verst ad èg à örugglega eftir ad èta sjàlfa mig à eftir!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Örblogg

Sòl og blida à afmælisdaginn thòtt ekki hafi litid ùt fyrir thad i morgun. Ætlum i næsta bæ ad borda i kvöld à leynistad, spennò... Thangad til er afslöppun!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

8.9.05

Picture(3).jpg


Úbbs, I did it again!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Picture(3).jpg


Myndina sendi ég
Powered by Hexia

7.9.05

Örblogg

Skrytid, thad eru allir ad spyrja eftir òla hèrna: òla, òla, òla! Thad kom enginn òli med, their eru allir i Kjòsinni!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Picture(1).jpg


30 stiga hiti, sól og pálmatré... ahhh
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

6.9.05

Picture(1).jpg


Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Picture(1).jpg


Og thá byrjar thad...
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

5.9.05

Frí

Enginn tími til að skrifa eitthvað hérna... Er búin að vera í veiði síðustu daga, kom aftur til byggða í dag og fer til útlanda á morgun. Ekki mikil veiði, Jói fékk þó einn lax í Krossá og ég einn lítinn sjóbirting. Einhverjar myndir má skoða á síðu siggamusar.

Svo er það sól og blíða næstu tvær vikurnar. Ég ætla að reyna að senda inn myndir ef hægt er og jafnvel einhverjar fréttir. Annars er ég þreytt og stressuð, hrædd um að gleyma einhverju mikilvægu eða pakka ullarsokkunum og ganga frá sundbolnum...

29.8.05

Mánudagur

Ég hef bara ósköp lítið að segja þessa dagana. Jú, nema að ég fékk svo 7 í prófinu eftir allt saman! Svo er ég hætt að monta mig yfir þessu...

Rólegheitahelgi liðin, kíkti á sýningu Hugleiks á laugardagskvöldið og skemmti mér konunglega og fékk svo nokkra góða gesti heim á eftir. Mjög ljúft. Annars fór helgin mest í leti og sjónvarpsgláp.

Vikan verður stutt að þessu sinni hjá mér. Engir fimm virkir dagar heldur bara þrír og hálfur eiginlega. Þrír í vinnu og einn í stússi og svo er það bara veiði fram yfir helgina. Vonandi get ég veitt eins og einn fisk í þetta skiptið...

25.8.05

Fimmtudagur

Ég er búin að vera í undarlegu ástandi yfir þessu prófastússi. Fyrst var ég alveg búin á því eftir prófið og svo gat ég ekki beðið eftir að fá einkunnina. Á endanum skrifaði ég kennaranum mínum í gær til að spyrja hvort ég hefði náð og þá sagði hann mér að hann væri búinn að fara yfir sinn hluta af prófinu (5 spurningar af 6) og að ég væri bara komin með 6 í einkunn! Sex! Ég hefði verið alsæl með 5! Það er allavega þungu fargi af mér létt núna og ég get farið í frí í september með góðri samvisku.

Sumarið er að verða búið hjá flestum en aðalfríið er eftir hjá mér. Ég vinn hérna í Odda út ágúst og fer svo í veiði í þrjá daga, 2.-5. sept. og svo til Lanzarote 6.-20. sept. í sól og sumaryl. Get ekki beðið núna þegar farið er að hausta hér. Var ekki annars hitabylgja á þessum tíma í fyrra?

Íðorðasafnið verður ekki alveg tilbúið í næstu viku en vonandi verður hægt að birta hluta af því. Svo er spurning hvort að ég klári það kannski seinna. En, fyrst er það veiði, sólarströnd og... lokaverkefni! Júhhú!

24.8.05

ÉG NÁÐI!!!!!

Égnáðiégnáðiégnáðiégnáðiégnáðiégnáðiégnáðiégnáðiégnáðiégnáði...

22.8.05

Örblogg

Bùin i pròfinu! Segi ekki meir fyrr en einkunnin kemur...

SMS sendi ég
Powered by Hexia

21.8.05

Dómsdagur

Á morgun kemur að því, próf klukkan hálftvö. Mikið hrikalega verð ég fegin þegar það verður búið... úff! Ég er sem sagt búin að eyða allri helginni í próflestur þegar ég hefði getað verið í bústað með heitum potti, gufu og fullum strákum - nei, ég meina fullt af strákum (ehm...). En, það er ekki á allt kosið og þýðir ekkert að væla yfir þessu. Þó að þið megið alveg vorkenna mér smá.

Mér skildist að menningarnótt hefði verið alveg ágæt, ekkert frábær þó. Allavega var mér sagt að ég hefði ekki misst af neinu merkilegu. Eitthvað var ég að gæla við að kíkja í bæinn í gærkvöldi en nennti svo ómögulega að standa í því að koma mér fram og til baka.

En, þá er það síðasti í próflestri. Vonum það besta...

17.8.05

Kool thing!

Sonic Youth spiluðu í gær og mikið svakalega var gaman að sjá þau. Þau eru eitt svalasta band í heimi, öll tæplega fimmtug en rokkuðu eins og unglingar. Við vorum á besta stað í húsinu og sáum yfir allt sviðið alla tónleikana. Dagskráin var sambland af gömlum og nýjum lögum með nettum gítarhávaða á milli og lauk svo með korters gítargjörningi sem var ekki það skemmtilegasta sem ég hef heyrt... Að vísu spiluðu þau ekki mjög lengi, um klukkutíma fyrst, en voru svo klöppuð tvisvar upp. En, samt, frábær upplifum að sjá þau, eitthvað sem ég hef beðið eftir í 15 ár!

Um helgina fórum við Jói svo í veiði í Hrútafjörðinn þar sem við gistum í tvær nætur í rafmagnslausum kofa uppi á heiði með gashitun og köldu vatni. Mjög huggulegt! Ekkert nema við og nokkrar rollur á svæðinu og þrusuveiði að auki. Að vísu gat ég ekkert veitt í ánni vegna slæms aðgengis en Jói gerði sér lítið fyrir og veiddi 5 laxa! Þannig að nú verður lax í hvert mál, soðinn, grafinn og reyktur. Ætlum einmitt að borða einn nýjan í kvöld...

Annars er þetta hreint ömurleg vika þrátt fyrir frábæra tónleika. Lærdómur alla daga og tóm leiðindi. Kennarinn minn er samt svo frábær að hann bauð mér að koma í aukatíma til sín í vikunni þannig að ég fer þangað þrisvar sinnum. Eins gott að fara að gera eitthvað af viti svo að ég geti spurt hann gáfulegra spurninga!

12.8.05

Jibbí skibbí!!!

Vá hvað ég hlakka viðbjóðslega mikið til... Ég ætla að hrella nágrannana alla helgina og hlusta á Sonic Youth diskana mína - hátt og snjallt! Vonandi hafa aðstandendurnir rétt fyrir sér með lagavalið:)

11.8.05

Merkilegt

Tvær merkilegar fréttir á mbl.is í dag.

Drukknar ávaxtaflugur... Allt er nú til! Er ekki hægt að finna græðgisgenið líka?

Fasistar í SMÁÍS. Ekki það að ég gráti það persónulega að missa af enska boltanum en þetta finnst mér fáránlegt. Það geta ekki allir verið með ADSL frá Símanum eða Breiðbandið. Það er t.d. hvorki boðið upp á það í Kjósinni né á Stúdentagörðunum. Ég veit um fólk sem ætlaði að fá sé SKY-pakkann í staðinn en nú er það bannað! Alveg út í hött...

8.8.05

Partíbær

„Er við komum suðr' í Hafnir þá var rosa mikið stuð
Hafnir eru sko krummapartískuð“

Svo orti einhver meðlimur góðrar hljómsveitar á sínum tíma um fjör á Suðurnesjum. Þangað var ferðinni einmitt heitið á laugardaginn og get ég nú loksins skrifað um það þegar búið er að leysa getraunina sem ég lagði fyrir hér að neðan. Við fengum þá flugu í höfuðið að rúnta um Reykjanes og byrjuðum á að fara í Keflavík. Ég held svei mér þá að ég hafi aldrei komið inn í bæinn sjálfan áður enda rötuðum við ekkert þar! Elskuleg stúlka á bókasafninu vísaði okkur að lokum á veitingastaðinn Duus hús þar sem við fengum þennan fína hádegismat. Svo var rúntað í Garðinn og út á Garðskagavita, þaðan í krummapartískuðið Hafnir og út á Reykjanestá. Við slepptum reyndar Sandgerði en ég sá þó eftir því í dag þegar einhver benti mér á að þar væri hægt að keyra framhjá bleika húsinu hennar Leoncie. En það er gott að eiga eitthvað eftir í næstu ferð. Við Reykjanesvita var svo mikið rok að Jói þurfti að halda sér í klett uppi á einhverju bjargi til að fjúka ekki út í sjó þannig að við stoppuðum ekki lengi þar. Hristumst þá á þvottabrettisvegi dauðans til Grindavíkur að kaupa ís og þaðan í meira þvottabretti Krýsuvíkurleiðina heim. Sem sagt, þessi fíni laugardagsbíltúr!

Í gær átti svo að fara á kaffihlaðborð á Hafinu bláa í tilefni afmælis afa hans Jóa en það var svo fjandi mikið rok að við lögðum ekki í það. Brimið hefði samt örugglega verið geggjað út um gluggann í rokinu. Í staðinn kom fjölskylda Jóa í sunnudagslæri til okkar sem var alveg hreint ljómandi gott.

Í dag eru svo nákvæmlega tvær vikur í próf. Mér finnst viðbjóðslegt að vera að fara í próf í ágúst. Ég hef aldrei gert það fyrr og ætla mér alls ekki að endurtaka það. Ég legg til að endurtektarpróf við Háskóla Íslands verði í janúar og júní. Ekki ágúst. Alls ekki í ágúst...

6.8.05

Picture(1).jpg


Getraun: Hvar er thetta?
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

4.8.05

Fimmtudagur

Góðar svona stuttar vikur eins og þessi, allt í einu er kominn fimmtudagur og alveg að koma helgi! Reyndar er óhugnanlegt hvað tíminn líður hratt, sérstaklega þar sem það líður að sumarprófi hjá mér, mánudaginn 22. ágúst *grátigrátigrát*. Það er kannski kominn tími til að fara að læra þá?

Ég var annars að fá nýju White Stripes plötuna í vikunni og líst mér ansi vel á hana! Jói kom með hana frá útlöndum, maður er nánast hættur að kaupa plötur hérna heima nema á 2 fyrir 2200 eða e-ð svoleiðis. Jói var einmitt að koma frá Mónakó þar sem Hugleikur var á alþjóðlegri leiklistarhátíð með leikrit sitt, Undir Hamrinum. Það er skemmst frá því að segja að bæði leikritið og leikarinn fengu frábæra dóma úti eins og við er að búast! Svo hitti hann bæði Albert fursta (hann er víst ekki prins lengur...) og Alice Cooper sem spilaði undir borðum við hátíðarkvöldverðinn síðasta kvöldið :)

Bendi að lokum á að það er hægt að hlusta á nýju Raveonettes plötuna á hollensku síðunni sem ég benti á um daginn. Smella bara á luisterpaal og hlusta...

2.8.05

Þriðjudagur til þrautar

Ó hvað ég var fegin að vakna ekki í Eyjum í gærmorgun í slagveðri og ógeði og vera svo kannski veðurtepptur þangað til í morgun eftir megadjamm í fleiri daga... úff maður! Nei, ég vaknaði alsæl eftir Innipúka helgarinnar sem var mjög skemmtilegur. Helgin byrjaði á tónleikum á Grand Rokki með Jonathan Richman sem heillaði okkur vinkonurnar alveg upp úr skónum með skemmtilegu prógrammi. Hann átti sko lag helgarinnar, I was dancing in a lesbian bar. Já, bara lag ársins held ég - þó að þetta sé eldgamalt lag reyndar. Á laugardeginum hófst svo Innipúkinn (eftir að ég kláraði Harry Potter með tárin í augunum) með stífu prógrammi. Jonathan gamli spilaði þá um kvöldið og sló auðvitað í gegn en í heildina var bara mikið stuð. Cat Power var reyndar ekki stuð en var í fínu formi miðað við hvað maður hefur heyrt af henni (grenjandi ofan í píanóið á tónleikum og svona) og gaman að sjá hana spila. Loksins sá ég líka Mugison spila - mjög góður, svona að mestu leyti. Brim áttu svo frábært kommbakk og hurfum við Parísarpæjurnar aftur í tímann og sörfuðum í metróinu eins og í gamla daga...

Á sunnudaginn var byrjað á að borða hjá Önnu Katrínu snilldarkokki, mjög snemma til að missa nú ekki af neinu spennandi. Prógramminu hafði þá reyndar verið breytt (aftur) þegar við mættum en það kom ekki að sök þar sem við misstum ekki af neinu nema restinni af hvítvíninu hjá Önnu (sem var soldið svekkjandi...). Þetta kvöld átti nú að verða aðalstuðkvöldið en varð það samt ekki. Í fyrsta lagi kláraðist allur bjór úr dælu á Nasa fyrir ellefu þannig að eini bjórinn sem var til í húsinu var lítill Carlsberg í flösku á 600 kall. Eins gott að við höfðum með okkur nesti! Í öðru lagi var hreint óþolandi bið á milli hljómsveita sem varð til þess að maður datt soldið úr stuðinu. Í þriðja lagi var ekkert brjálað stuð á hljómsveitunum, þótt þær hafi margar verið góðar, fyrr en að Trabant spilaði en þá var maður orðinn svo þreyttur...

Skemmtileg helgi í heildina en gott að vakna bara í sínu rúmi á morgnana!

30.7.05

Picture(1.jpg


Jonathan... aftur! Hann er ædi!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

29.7.05

Picture(1.jpg


Jonathan Richman!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Trukkar

Það eru meira en 10 trukkar fyrir utan Odda núna sem ætla að keyra lúshægt í gegnum borgina að Vesturlandsvegi. Ég sem ætlaði að fara í Kringluna að kaupa mér Innipúkaföt fyrir skattpeninginn sem ég fékk í dag. Ég ætla bara beint heim eftir vinnu, er hrædd við trukkana...

Verslunarmannahelgi

Hjálp, hvað tíminn er fljótur að líða. Skyndilega er komin verslunarmannahelgi og sumarið að verða búið... svona næstum því! Eins og ég hef nefnt hér áður þá er ég að fara á Innipúkann um helgina þar sem verður þétt dagskrá. Helgin byrjar þó í kvöld á tónleikum á Grand rokk með Jonathan Richman sem verður reyndar líka á Innipúkanum. Það verður samt öðruvísi að sjá hann á minni tónleikum þar sem hann er einn og vonandi bara gaman.

Helgin á því eftir að snúast um tónleika og kannski, ef tími vinnst til, næ ég að lesa meira í Harry Potter. Gaman gaman! Góða helgi gott fólk og farið varlega í umferðinni...

28.7.05

Útvarp

Það var verið að benda mér á snilldarsíðu með útvarpi á netinu. Á síðunni má finna útvarp - ekki með neinu kjaftæði á milli laga - með hreint allskonar tónlist. Maður getur valið um 80´s tónlist, alternative tónlist, kristilega tónlist og írska tónlist svo eitthvað sé nefnt! Þetta er alveg frábært t.d. ef maður vill hlusta á eitthvað í vinnunni eins og ég geri eða bara heima. Gaman að finna eitthvað nýtt svona...

26.7.05

Þriðjudagur

Ég á ekki orð yfir veðrinu hérna, sól og blíða dag eftir dag - en svo spáir bara rigningu um verslunarmannahelgina... Æ, ég verð Innipúki hvort eð er þannig að veðrið skiptir ekki öllu máli fyrir mig.

Image Hosted by ImageShack.us



Ég var í sveitinni um helgina í hreint yndislegri blíðu og fékk það verkefni að mála girðingarstaura sem var bara fínt. Mér leiðist hvort eð er að liggja bara í sólinni að gera ekki neitt! Að vanda var veislumatur á borðum og síðan var sungið við varðeld í kolagrilli fram á nótt... alveg hreint afskaplega ljúft.

Ég keypti svo Harry Potter á sunnudaginn og er hálfnuð með hana. Líst vel á, mjög spennandi eins og hinar bækurnar...

Vitið þið annars hvað það heitir sem maður þræðir beltið í gegnum á buxum?

23.7.05

Picture(1.jpg


Yndislegt sumarkvöld í sveitinni.
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

21.7.05

Og?

Þetta er ein besta frétt á mbl.is sem ég hef séð lengi. Segir manni mikið...

20.7.05

Sumarsumarsumar

Er loksins komið sumar? Á maður að þora að segja það? Það er allavega alltof heitt til að vinna inni í lokuðu tölvuveri, það er alveg ljóst. Mig vantar svo stuttbuxur til að nota í sólinni en ég þori ekki að kaupa þær því að þá fer góða veðrið alveg örugglega. Ég ætti kannski að kaupa stígvél við regngallann fyrir helgina svo það verði nú gott veður?

19.7.05

Nördapróf...

Semantics
SEMANTICS: You are semantics. Be true to your
field, but remember: debating the meaning of
the word
"Supercalifragilisticexpealidocious"
never got Mary Poppins anywhere.


What's Your Linguistic Sub-Discipline?
brought to you by Quizilla

Hvað er það nú þá?

You scored as agnosticism. You are an agnostic.
Though it is generally taken that
agnostics neither believe nor disbelieve
in God, it is possible to be a theist
or atheist in addition to an agnostic.
Agnostics don't believe it is possible
to prove the existence of God (nor lack thereof).

Agnosticism is a philosophy that God's
existence cannot be proven. Some say it
is possible to be agnostic and follow a
religion; however, one cannot be a devout
believer if he or she does not truly believe.

agnosticism

79%

Buddhism

58%

Islam

50%

Christianity

50%

atheism

42%

Hinduism

38%

Paganism

38%

Judaism

29%

Satanism

25%

Which religion is the right one for you? (new version)
created with QuizFarm.com

Ég er eiginlega engu nær um hverju ég trúi...

18.7.05

Hmm

Þannig var það þá...

Skemmtilizzle

Híhí, ég þýddi síðuna mína á gangsta mál. Kíkið á það! Mizzle skemmtilizzle...

15.7.05

mbl dagsins

mbl.is er fróðlegur og skemmtilegur vefur en skemmtilegast er þó þegar maður finnur fáránlegar villur í fréttunum þar. Ég veit ekki alveg hvers konar fólk fær að skrifa fréttirnar og auðvitað gerir maður oft innsláttarvillur en samt...

Í dag eru t.d. tvær skemmtilegar fréttir:

„Pitt var lagður inn á sjúkrahús skömmu eftir að hann kom heim frá Eþýópíu en þangað fór hann ásamt leikkonunni Angelinu Jolie, sem var að sækja barn sem hún ættileiddi.“

„Að minnsta kosti tveir slösuðust er strætisvagn og rúta lentu í rekstri á Túngötu við Landakot í Reykjavík klukkan 11:16 í dag.“

Oft er svona fréttum þó breytt til hins betra en svona lagað á ekki að sjást...

Annars hefur verið nóg að gera í vikunni, Finnarnir fengu geggjað veður í gær þegar við fórum túristahringinn og eru þau alveg veik í að koma aftur sem þau gera vonandi. Sveitin - enn og aftur - um helgina. Góður matur í vændum og vonandi ekki alltof mikil rigning. Þá er bara að taka innipúkann á þetta og spila eða lesa í rólegheitunum!

14.7.05

Picture(1.jpg


Ég og Gullfoss
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

13.7.05

Hmmmm

Spurning um að fá símann hjá honum...

12.7.05

Þriðjudagur

Ojojojoj hvað er ógeðslegt veður úti! Það mætti halda að það væri kominn september - sem að öðru leyti er alveg frábær mánuður... Hvað er málið??

Ég fór á tónleikana í gær með Antony and the Johnsons á Nasa og það var mjög fínt. Alveg stappað af fólki - enda uppselt - og því erfitt fyrir stubba eins og mig að sjá nokkurn skapaðan hlut. Sérstaklega þar sem Antony og félagar sátu allir á sviðinu... Antony greyið var nú svosum ekki mikið fyrir augað þannig að það var kannski í lagi. Skemmtilegur gaur samt og frábært hljóð á staðnum þannig að þetta var bara fínt.

Ég komst líka á Þjóðminjasafnið um helgina í fyrsta skipti. Alveg magnað að skoða þessa sögufrægu hluti eins og Valþjófsstaðahurðina og Guðbrandsbiblíu og fikra sig um leið í gegnum Íslandssöguna. Mæli með þessu fyrir alla sem eiga eftir að fara - það er ókeypis á miðvikudögum!

Finnafjör næstu daga. Í dag sæki ég tvo Finna á flugvöllinn sem verða hér fram á föstudag. Vikan fer því í túristastúss og þess háttar með þeim. Óskandi að þau fengju betra veður samt sém áður. Leiðinlegt að þau fái að kynnast íslenska „sumrinu“ svona...

7.7.05

Fimmtudagur

Gat nú verið - tónleikarnir sem ég fór EKKI á fengu svakalega dóma í Mogganum í dag. Fullt hús stjarna takk fyrir! En það þýðir víst lítið að svekkja sig á því, ég bíð bara spennt eftir Antony and the Johnsons á mánudaginn og svo fæ ég vonandi miða á Innipúkann á morgun:)

Ég er búin að vera að fylgjast með fréttum frá London í allan dag, þetta er alveg skelfilegt. Þetta er komið svo nálægt manni, árásir í London og hótanir um jafnvel að sprengja eitthvað í Danmörku...

Sá leiðinlega villu á mbl.is í sambandi við þetta í dag. Talað var um að Elísabet Englandsdrottning hefði verið „hrærð“ yfir sprengjuárásunum. Er ekki jákvætt að vera hrærður yfir einhverju? Er maður ekki hrærður yfir því þegar einhver gerir eitthvað fallegt fyrir mann eða þegar maður vinnur jafnvel til verðlauna? Greinilegt að þetta hafði stuðað fleiri en mig því að nú er Elísabet orðin „slegin“ yfir árásunum...

5.7.05

Innipúki

Ég verð þokkalega á Innipúkanum um Verslunarmannahelgina! Cat Power að koma!!!! Mikið rosalega hlakka ég til, eins gott að ég fái miða...

Bjartsýn...

Ef einhvern langar að bjóða mér á tónleikana í kvöld þá er bara að láta vita! Verst að maður var ekki á Stokkseyri í gær...

4.7.05

Monday, monday

Er búin að vera með lagið Monday monday á heilanum í allan dag, eðlilega. Enda var það spilað í útvarpinu í morgun og þar með var það orðið fast!

Ég kíkti í Hljómskálagarðinn á föstudagskvöldið og sá þar Bubba (rétt missti af Svörtum afgan...), Papana og Hjálma, loksins. Eins og Hjálmar hafa nú verið að spila mikið á árinu þá var þetta í fyrsta skiptið sem ég sá þá. Svaka týpur... Það var fínt að kíkja aðeins út og það mættu alveg vera oftar tónleikar þarna í garðinum.

Á laugardaginn gerði ég tilraun til að veiða í Þingvallavatni og náði um leið að vígja fína regngallann sem ég keypti fyrir 17. júní. Regngallinn virkaði vel í rigningunni og rokinu en alls veiddist ein murta. Þá flúðum við rigninguna, keyptum okkur pylsur og þá stytti auðvitað upp. Nenntum ekki að reyna aftur þannig að við brunuðum bara í Kjósina í dýrindis lambalæri... sem við elduðum samt sjálf.

Er að velta því fyrir mér hvort ég stingi ekki bara af. Fyrst ég er farin að stara út um gluggann og blogga þá geri ég ekki mikið meira í dag.

2.7.05

Örblogg

Hvernig dyr eru sokkapar?

SMS sendi ég
Powered by Hexia

1.7.05

Fokk

„Hvað á að gera um helgina?“ „Æ, ég ætla bara að fokka mér eitthvað. Eins og ég er búin að vera í einhverju fokki í dag í vinnunni.“ Já, vissuð þið að „fokk“ þýðir „dundur“ eða eitthvað slíkt? Þetta lærði ég í vinnunni í gær! Alltaf lærir maður eitthvað nýtt... ég á reyndar eftir að fletta orðinu upp í orðabók en það er örugglega þar, ja, í þessari merkingu allavega.

Spurning hvort maður kíki í Hljómskálagarðinn í kvöld, þar eru víst útitónleikar. Á morgun er það svo blessuð sveitin mín - enn og aftur. Það er einhvern veginn ekkert um að vera fyrir utan tónleikana í kvöld.

Bendi á frábæra tónlistarsíðu, á hollensku reyndar. Ef maður smellir á „luisterpaal“ er hægt að hlusta á nýjar plötur og jafnvel horfa á myndbönd og fleira. Nýja Sufjan Stevens platan er þarna og ef maður opnar hana og smellir á „Sufjan Stevens in 3vor12“ er hægt að sjá hann á tónleikum og hlusta á heila tónleika með honum. Skemmtilegt!

30.6.05

Fimmtudagur

Mig langar á tónleika! Aldrei þessu vant ætla ég ekki að splæsa í tvenna tónleika sem mig langar á þessa dagana. Mig langar jafnmikið á bæði Duran Duran í kvöld og Foo Fighters og Queens of the Stone Age á þriðjudag þannig að ég sleppi bara báðum. Ég hreinilega tími ekki tíuþúsundkalli í þetta! Enda er ég að fara á fullt af tónleikum í sumar og í haust. Og svo var ég líka harður Wham-ari... ég fer nú ekki að láta sjá mig á Duran Duran tónleikum... piff! En ef einhver vill bjóða mér á tónleikana í kvöld eða á þriðjudag þá er ég nú alveg til!


Ú hvað þeir eru sææææætir!

Áfram Wham!!!!

Í gær vorum við málfræðinördarnir sem vinnum hérna í Odda að spá í hvort ætti að segja spá í eitthvað eða spá í einhverju. Spáið þið í stráka eða strákum? Spáið þið í hlutina eða í hlutunum? Spáið þið í þetta eða hinu? Spáið þið í mig eða mér? Hvað finnst ykkur?

28.6.05

Kæra dagbók

Þegar ég byrjaði með þetta blogg ætlaði ég ekki að hafa það í miklum dagbókarstíl. Hins vegar hef ég staðið mig að því að segja frá ýmsum ómerkilegum hlutum sem á daga mína drífur, sennilega af því að það er miklu auðveldara en að skrifa eitthvað um merkilegri hluti! Dagbókarformið er líka ágætt, það er fínt að hafa það einhvers staðar skjalfest (skjáfest?) hvað maður var að gera á ákveðnum tíma.

Um helgina var ég til dæmis í bænum í fyrsta skipti í langan tíma. Fékk góðan gest í góðan mat á föstudagskvöldið og fór svo í útskrift á laugardaginn og fimm ára afmæli á sunnudaginin. Þetta var því veisluhelgin mikla, helgin sem ég hélt að yrði svo róleg í áti þar sem ég yrði í bænum. Aldeilis ekki! Fór því í sund á sunnudagsmorguninn þjökuð samviskubiti og bakverkjum vegna langvarandi setu fyrir framan tölvuna. Ansi fínt bara... Held samt að helgarnar verði ekki fleiri í bænum í bráð. Reyndar fer það eftir veðri hvað á að gera næstu helgi, nenni ekki að tjalda innan um fulla unglinga og það er alltof dýrt að fara á Humarhátíð:(

Í kvöld er ég vonandi að fara á tónleika á Hressó með efnilegri norskri söngkonu skilst mér. Hvet alla sem langar að kíkja út til að fara, frítt inn og gaman að sjá eitthvað nýtt. Vonandi fæ ég far svo ég komist...

27.6.05

Sniðugt...

Ride
You Are... Slowdive.

You are very comfortable with the person that you
are. You are pretty traditional in a classical
sort of way. You relate most to things of a
darker, more mysterious nature. You tend to be
quiet and shy but you still manage to make
friends pretty easilly. Though your ambition is
bigger than your talents, your perseverance
will always lead you to bigger and greater
things.


what Creation Records band are you? (complete with text and images)
brought to you by Quizilla

21.6.05

Þriðjudagur

Úff hvað eru erfiðir dagar núna eftir þessa sólskinshelgi, rigning og kuldi og engir aukafrídagar framundan. Helgin var frábær með geggjuðum 17. júní, sól og sumar og fullt af veiði. Öll fjölskyldan var líka sólbrennd eftir daginn enda fæstir með sólarvörn og ég með nýja regngallann minn með mér! Við stoppuðum svo í sveitinni fram á sunnudag og fórum m.a. í sund á Hlöðum þar sem fyrir var eitt stykki ættarmót og því þröngt í pottinum. Afmælisveisla var á laugardeginum með frábærri innkomu leynigestsins frá Finnlandi og var endað á Kaffi Kjós þar sem sveitungarnir dönsuðu við hljómborðsleik Hróksins.

Ég lá yfir sjónvarpinu í gærkvöldi eins og svo oft áður og horfði á hina frábæru mynd Electric Dreams á MGM á meðan nostalgían greip mig. Titillagið var og er eitt uppáhalds eitíslagið mitt en fleiri snilldarlög var að finna í myndinni, m.a. Love is Love með Boy George. Mæli með henni! Nú langar mig að sjá aftur Ladyhawk, Sheena og fleiri uppáhaldsmyndir úr æsku, spurning hvort þær eru jafngóðar og í minningunni...

17.6.05

Picture(3).jpg


Mjög thjódlegt!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Picture(2).jpg


Sautjándi júní!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

15.6.05

Miðvikudagur

Já, það er bara gert grín að manni í kommentakerfinu hérna! Gaman að því, það er betra en að fá engin komment...

Í dag er bara mánuður þar til nýja Harry Potter kemur! Ú, ég hlakka svo til að lesa hana:) Spurning hver það er sem deyr í henni... margir veðja á Dumbledore en ég held að það verði einhver af krökkunum. Og þó, kannski verður það Snape eða Malfoy og það er þá allt í lagi.

Nóg að gera framundan annars, partí á morgun (jibbí) en snemma morguninn eftir er veiði... Ekkert skrall í partíinu semsagt. Eftir veiðina verður sennilega haldið í Kjósina enn eina ferðina þar sem stórfjölskyldan verður samankomin með Hornfirðingum og allt. Vonandi verður skaplegt veður svo það verði hægt að sitja úti á palli í sólinni og sötra ííískaldan bjór - aaahhhh.

Góða helgi og gleðilega þjóðhátíð!


Image Hosted by ImageShack.us

13.6.05

Mánudagur

Ekki urðu nú laxarnir margir um helgina, það náðust á land 8 urriðar og enginn lax! Fallegur dagur samt sem áður og ég bendi á myndir sem siggimus tók af veiðiferðinni.

Áður en ég stakk af úr bænum á föstudaginn lenti ég á íðorðanámskeiði á fimmtudag og íðorðaráðstefnu á föstudag. Það vildi svo til að norrænir íðorðadagar voru haldnir einmitt núna þegar ég er nýbyrjuð á íðorðasafni í tungutækni. Mjög áhugavert svosum en allt á einhverri skandinavísku sem varð til þess að ég skildi ekki eins mikið og ég vildi...

Í dag er ég loksins búin að vera að vinna í Odda þar sem ég verð vonandi í sumar. Hér eru fjórir aðrir að vinna að málfræðiverkefnum og mér skilst að allavega tveir bætist í hópinn í vikunni. Gaman að vera að vinna í kringum annað fólk, það verður hálfleiðinlegt að hanga heima að vinna - enginn til að fara með í mat og kaffi! Nú er ég hins vegar búin að fá nóg af því að hanga inni og ætla því að rölta heim í góða veðrinu.

11.6.05

Picture(2).jpg


Ísskápur í bílinn, alveg naudsynlegt!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia