28.6.05

Kæra dagbók

Þegar ég byrjaði með þetta blogg ætlaði ég ekki að hafa það í miklum dagbókarstíl. Hins vegar hef ég staðið mig að því að segja frá ýmsum ómerkilegum hlutum sem á daga mína drífur, sennilega af því að það er miklu auðveldara en að skrifa eitthvað um merkilegri hluti! Dagbókarformið er líka ágætt, það er fínt að hafa það einhvers staðar skjalfest (skjáfest?) hvað maður var að gera á ákveðnum tíma.

Um helgina var ég til dæmis í bænum í fyrsta skipti í langan tíma. Fékk góðan gest í góðan mat á föstudagskvöldið og fór svo í útskrift á laugardaginn og fimm ára afmæli á sunnudaginin. Þetta var því veisluhelgin mikla, helgin sem ég hélt að yrði svo róleg í áti þar sem ég yrði í bænum. Aldeilis ekki! Fór því í sund á sunnudagsmorguninn þjökuð samviskubiti og bakverkjum vegna langvarandi setu fyrir framan tölvuna. Ansi fínt bara... Held samt að helgarnar verði ekki fleiri í bænum í bráð. Reyndar fer það eftir veðri hvað á að gera næstu helgi, nenni ekki að tjalda innan um fulla unglinga og það er alltof dýrt að fara á Humarhátíð:(

Í kvöld er ég vonandi að fara á tónleika á Hressó með efnilegri norskri söngkonu skilst mér. Hvet alla sem langar að kíkja út til að fara, frítt inn og gaman að sjá eitthvað nýtt. Vonandi fæ ég far svo ég komist...

Engin ummæli: