28.11.05

Hmmm...

Image Hosted by ImageShack.us

Þá vitum við það...

25.11.05

Eeee...



Skáldajötunn


Þú ert nýjungagjarn, tilfinningaríkur innipúki.

Skáldajötunninn er svo opinn fyrir nýjungum á sviði lista og menningar að honum tekst að sjá list út úr óbreyttri skranhrúgu eða einmana slettu á striga. Skáldajötunninn tekur til í herberginu sínu og kallar það listrænan gjörning. Hann er mjög líklega með óskrifaða skáldsögu í hausnum eða óútgefna bók í skrifborðsskúffunni, þ.e. ef hann hefur ekki þegar fengið bók sína útgefna.



Skáldajötunninn lifir fyrir listina og myndi frekar kaupa blek fyrir fjaðurstafinn sinn heldur en brauðhleif þótt hann hefði farið án matar svo dögum skipti. Hann unir sér vel einn með eigin hyldjúpu hugsunum.



Hvaða tröll ert þú?



Hehe, ekki alveg - ég meina, án matar??!!

22.11.05

Þriðjudagur

Mikið svakalega voru nú White Stripes tónleikarnir góðir! Jakobínarína hituðu upp og voru mjög skemmtilegir þótt hjóðið hafi verið afleitt. Svo tóku þau Meg og Jack White við og voru bara tvö á sviðinu með þvílíka tónleika... Að vísu varð ég lítið vör við þessar breytingar sem átti að gera á sviðinu, allavega sá ég ekki mikið meira en venjulega á tónleikum þarna sem þýðir að sviðið hefur varla verið hækkað mikið. Held ég reyni að kaupa í stúku næst, gamla konan.

Næstu tónleikar á dagskrá hjá mér eru síðan Antony and the Johnsons 10. desember, á afmælisdegi pabba. Þeir verða í Fríkirkjunni sem er eflaust betri staður fyrir þá en Nasa þar sem var sussað á fólk til að heyra í tónlistinni. Það ættu allir að vera sæmilega edrú og þöglir í kirkju!

Þangað til er bara að læra og læra - og hananú! Þetta mjakast allt hjá mér, ég er núna í því skemmtilega hlutverki að telja saman hversu oft reglurnar virka hjá mér og hvernig ég get þá bætt þær... mjög skemmtilegt eða þannig, enda er ég að sofna hérna fram á lyklaborðið.

16.11.05

Íslensk tunga

Í dag, á degi íslenskrar tungu, stendur á forsíðu Blaðsins: „A STAR IS BORN“. Viðtal við Silvíu Nótt (Sylvía á forsíðunni - en Silvía inni í blaðinu) er síðan inni í blaðinu og er reyndar mjög fyndið, alveg ógeðslega töff skilurðu. Mér finnst hins vegar ekkert ógeðslega töff að hafa ensku á forsíðunni, það er alveg hægt að segja að stjarna sé fædd eða e-ð í þá áttina... samt tel ég mig ekki vera neinn sérstakan málfarsfasista. Blaðið er einstaklega slæmt í þessum málum og eru nánast daglega málfars- og stafsetningarvillur í því. Þetta er jú sama blaðið og auglýsti lamakjötið á dögunum... Þar sem ég á að vera að skrifa lokaritgerð um allt annað en málfar fannst mér tilvalið að fletta Blaðinu og leita eftir villum. Hér koma nokkrar:

-Í yfirlýsingu frá ríkistsjórninni... (bls. 2)
-Þeir sem höfðu orðið dukknir a.m.k. einu sinni
síðasta mánuðinn fjölgaði einnig...(bls. 2)
-Aðspurður segist Páll Magnússon, útvarpsstjóri, að tvær af fjórum
tilgreindum ráðningum snúi að sér... (bls. 4)
-Jón segir að tæknilegar ástæður hafi legið á bak við því
auglýst viðtal... (bls. 6)
-...að þarna hefðu aðeins verið um tæknilega mistök að ræða. (bls.
6)
-Fyrirtækið Dreifing ehf. braut samkeppnislög með auglýsingum
sínunum... (bls. 6)
-...og varfundinn staður á næst öftustu síðu blaðsins. (bls. 14)
-...eftir fjörtíu ára aðskilnað... (bls. 28)
-Margar milljónir af lukkudýrum verða framleidd í formi gjafa- og
mynjavöru (bls. 30)
-Reglur sambandsins segja að liðum er ekki leyfilegt... (bls. 30)
-Smáborgaranum finnast bækur rosalega mikilvægar... (bls. 38)

Til hamingju með daginn!

15.11.05

Húsafell

Húsafell
Fellihýsi

Svona hljómaði ljóð sem ég sá í Lesbókinni um daginn... frumlegt. Það var þó ekki gist í fellihýsi í Húsafelli um helgina heldur í þessum fína sumarbústað sem vinahópurinn tók á leigu. Eins og sjá má af myndunum skorti ekki drykkina en það skorti heldur ekki matinn og nammið og naslið eins og gengur og leið manni eins og útblásnum hval á sunnudaginn! Mjög fín ferð sem sagt í alla staði og takk fyrir samveruna allir sem þarna voru!

Annað er nú ekki um að vera. Við ætlum að skella okkur á Africa United á eftir, eigum boðsmiða sem við þurfum að nýta okkur á meðan hún er í bíó. Hún var líka kosin heimildamynd ársins á Eddu verðlaununum, þeirri uppskúfuðu árshátíð... Hvað er málið að sýna þetta í beinni í 3 tíma í Sjónvarpinu og það er nánast allt tilnefnt sem hefur verið gert?! Ég meina, Reykjavíkurnætur??!! Það var hörmung! Ætli Kallakaffi verði ekki tilnefnt í öllum flokkum næst...

12.11.05

Picture(2.jpg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Picture(2.jpg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

11.11.05

Picture(2.jpg

Sumarbústadur!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

9.11.05

Stíflueyðir

Svei mér þá ef það losnaði ekki aðeins um ritstífluna þarna með sölvunum... Ég er farin að skrifa og skrifa og ætla að reyna að skila einhverju í lok vikunnar svo ég geti nú farið í sumarbústaðinn með góðri samvisku. Gamla góða pressan virkar nefnilega alltaf og þegar maður er búinn að segjast ætla að skila einhverju þá er eins gott að standa við það!

Svo er bara að sjá hvort ég næ að vera búin með reglurnar og prófanir á þeim í tæka tíð fyrir útskriftarkokkteilinn í febrúar...

Mikið hrikalega er samt orðið dimmt úti, sérstaklega á morgnana þegar maður er að staulast á lappir. Það er nú eitt af því góða við jólin að þá er daginn farinn að lengja aftur:) Þangað til er bara að gera gott úr skammdeginu og kveikja á kertum...


Image Hosted by ImageShack.us

8.11.05

Sölvína

Söl og sykurlaus ópal fara ekki vel saman í maga... vildi bara láta ykkur vita ef þið skylduð freistast!

7.11.05

Mánudagur

Vitiði það að ég er farin að hlakka til jólanna? Og nóvember rétt að byrja! Ætli þetta sé máttur Ikea auglýsinganna... ja, og reyndar allra hinna sem eru farnir að auglýsa jólavörur og jólaföt? Sennilega. Spurning samt hvaða mynd verður á blessuðu verkefninu um jólin. Æ, það kemur bara í ljós!

Fór uppeftir um helgina þar sem var rólegheita Scrabble helgi. Ég vann samt ekki. Annars eru miklir rólegheitadagar bara í gangi, það gerist ósköp lítið markvert og það er kannski ein ástæðan fyrir litlu bloggi þessa dagana. Næstu helgi á reyndar að fara í sumarbústað í Húsafelli sem verður örugglega rosa gaman. Jú, svo eru White Stripes að koma til landsins og það eru líka tónleikar með Antony and the Johnsons í desember. Svo eru bara komin jól!

Ég ætla samt að massa fræðikaflann í vikunni og hananú! Ef það á að stefna í útskrift í febrúar þá þýðir ekkert annað. Back to work - óverendát!