29.12.06

Allir að koma á tónleika!



Ég ætla á Nasa 27. janúar:)

27.12.06

Jóla jóla

Gleðileg jól og takk fyrir pakka og kort þið sem þetta lesið:)

Maður er búinn að hafa það alltof gott um jólin eins og venjulega. Ég fór uppeftir strax á Þorláksmessu og fór strax í Scrabble og var mikið spilað af því þessa daga. Ég lagði ekki í skötuna heldur eldaði „skötupasta“ með engri skötu handa mér og krökkunum. Þar með hófst átveislan mikla sem lauk ekki fyrr en í gær! Önd og gæs á aðfangadag, hangikjöt í hádeginu á jóladag og nautalund um kvöldið, fyrir utan allar smákökurnar og nammið. Úff! Ég kom í bæinn í gær og í vinnuna í dag. Síðustu dagarnir hér á Orðabókinni og svo eitthvað allt annað í næstu viku! Allt að gerast...

21.12.06

Myndablogg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

3 dagar til jóla!

Stysti dagur ársins í dag, kaldur og hvass. Er maður ekki enn syfjaðri þennan dag en aðra? Mér finnst ég allavega alltaf vera sybbin...

Aðeins þrír dagar til jóla og ég búin að kaupa allar gjafir og pakka þeim öllum inn nema einni! Enn er allt á hvolfi heima en kvöldið verður notað í að gera huggulegt. Fyrsta jólatréð okkar fer upp í kvöld og kannski aðeins lagað til um leið. Svo er jólagleði annað kvöld og getur verið að ég fari bara í sveitina á Þorláksmessu í ár til að nota ferðina sem er þá. Ég hef ekki verið uppfrá á Þorláksmessu síðan í menntaskóla held ég þannig að það verður kósí. Vonandi fæ ég bara pylsur í matinn samt, ég meika ekki skötuna. Mmm, hlakka til:)

15.12.06

Ég þarf greinilega að drífa mig þangað...

You Belong in Barcelona

When it comes to Europe, you don't want to decide between culture and fun. You want art by day and a big party by night.
Barcelona is ideal for you. You can check out some Picasso, eat some tapas, take a siesta, and then dance all night!

9 dagar til jóla!

Leiðinda Gmail virkar ekki hjá mér í dag, einmitt þegar ég þarf að nota póst þaðan til að geta unnið áfram! Alveg dæmigert...

Tíminn líður og aðeins níu dagar til jóla. Helginni verður vonandi eytt í eitthvað gáfulegt eins og að skrifa jólakort, taka smá til, kaupa nokkrar jólagjafir og vonandi horfa á It´s a Wonderful Life, uppáhalds jólamyndina mína, en ég keypti hana einmitt á DVD úti í London um daginn. Kannski að maður horfi líka á Return of the King og klári þá þrennu. Og Lost þættina sem ég var að fá úr nýju seríunni... Greinilegt hvað ég verð að gera um helgina.

11.12.06

13 dagar til jóla!

Það styttist aldeilis í jólin og því var mjög við hæfi að taka eina jólasveitahelgi um helgina. Ég dreif mig uppeftir á föstudag og var helginni eytt í Scrabble (en ekki hvað?), laufabrauðsgerð, lestur, Trivial, sjötugsafmæli, rafmagnsleysi og kertaljós. Rafmagnið fór sem sagt vegna veðurs á laugardagskvöldið eftir matinn og var því ekkert annað að gera en að spila við kertaljós. Langt síðan maður hefur lent í svona svartamyrkri! Síðan var svo vont veður að það þurfti að keyra börn og fatlafól á milli húsa svo að við myndum nú ekki fjúka... ævintýralegt það. Jólaskapið helltist yfir mann þrátt fyrir vatnsveðrið og hef ég verið að söngla jólalög síðan.

Ef fólk hefur áhuga á öðruvísi jólalögum þá ef hægt að hlusta á allar jólaplöturnar hans Sufjans Stevens hér. Þetta kemur mér allavega í jólaskapið!

5.12.06

Hjúkk...

Ég var farin að hafa áhyggjur!

Ég er einmitt búin að horfa aftur á tvær af þremur Hringadróttinssögum í lengri útgáfu og þvílík snilld. Ég er því mjög spennt að sjá Hobbitann í gerð sama leikstjóra.

Annars er að verða ansi jóló út um allt. Við þurfum einmitt að fara að kaupa eitthvað jóló á svalirnar hjá okkur og svona. Þegar maður er kominn í svona stóra íbúð þá týnist alveg þetta litla jóladót sem við áttum! Þá er bara að bæta við...