„Hvað á að gera um helgina?“ „Æ, ég ætla bara að fokka mér eitthvað. Eins og ég er búin að vera í einhverju fokki í dag í vinnunni.“ Já, vissuð þið að „fokk“ þýðir „dundur“ eða eitthvað slíkt? Þetta lærði ég í vinnunni í gær! Alltaf lærir maður eitthvað nýtt... ég á reyndar eftir að fletta orðinu upp í orðabók en það er örugglega þar, ja, í þessari merkingu allavega.
Spurning hvort maður kíki í Hljómskálagarðinn í kvöld, þar eru víst útitónleikar. Á morgun er það svo blessuð sveitin mín - enn og aftur. Það er einhvern veginn ekkert um að vera fyrir utan tónleikana í kvöld.
Bendi á frábæra tónlistarsíðu, á hollensku reyndar. Ef maður smellir á „luisterpaal“ er hægt að hlusta á nýjar plötur og jafnvel horfa á myndbönd og fleira. Nýja Sufjan Stevens platan er þarna og ef maður opnar hana og smellir á „Sufjan Stevens in 3vor12“ er hægt að sjá hann á tónleikum og hlusta á heila tónleika með honum. Skemmtilegt!
1.7.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli