Úff hvað eru erfiðir dagar núna eftir þessa sólskinshelgi, rigning og kuldi og engir aukafrídagar framundan. Helgin var frábær með geggjuðum 17. júní, sól og sumar og fullt af veiði. Öll fjölskyldan var líka sólbrennd eftir daginn enda fæstir með sólarvörn og ég með nýja regngallann minn með mér! Við stoppuðum svo í sveitinni fram á sunnudag og fórum m.a. í sund á Hlöðum þar sem fyrir var eitt stykki ættarmót og því þröngt í pottinum. Afmælisveisla var á laugardeginum með frábærri innkomu leynigestsins frá Finnlandi og var endað á Kaffi Kjós þar sem sveitungarnir dönsuðu við hljómborðsleik Hróksins.
Ég lá yfir sjónvarpinu í gærkvöldi eins og svo oft áður og horfði á hina frábæru mynd Electric Dreams á MGM á meðan nostalgían greip mig. Titillagið var og er eitt uppáhalds eitíslagið mitt en fleiri snilldarlög var að finna í myndinni, m.a. Love is Love með Boy George. Mæli með henni! Nú langar mig að sjá aftur Ladyhawk, Sheena og fleiri uppáhaldsmyndir úr æsku, spurning hvort þær eru jafngóðar og í minningunni...
21.6.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli