Ég hef bara ósköp lítið að segja þessa dagana. Jú, nema að ég fékk svo 7 í prófinu eftir allt saman! Svo er ég hætt að monta mig yfir þessu...
Rólegheitahelgi liðin, kíkti á sýningu Hugleiks á laugardagskvöldið og skemmti mér konunglega og fékk svo nokkra góða gesti heim á eftir. Mjög ljúft. Annars fór helgin mest í leti og sjónvarpsgláp.
Vikan verður stutt að þessu sinni hjá mér. Engir fimm virkir dagar heldur bara þrír og hálfur eiginlega. Þrír í vinnu og einn í stússi og svo er það bara veiði fram yfir helgina. Vonandi get ég veitt eins og einn fisk í þetta skiptið...
29.8.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli