24.2.07
Matur og gaman
Í gærkvöldi skelltum við okkur á Food and Fun hátíðina í Perlunni. Við vorum sein að ákveða að fara svo að það var allt upppantað nema þetta eina borð í Perlunni. Það var gaman að koma þangað og borða, ég hef aldrei stigið fæti inn á veitingastaðinn áður. Svo snýst hann og allt og maður vissi aldrei hvar borðið var þegar maður kom aftur af klósettinu! Maturinn var svaka góður og þá sérstaklega hægeldaði laxinn (hvað ætli taki langan tíma að elda svoleiðis?) og lambalundirnar... mmm. Svo kom kokkurinn og gekk á milli borða og spjallaði við fólkið, mjög almennilegur gæi. Við fórum líka í fyrra en þá var Food and fun sömu helgi og við systurnar útskrifuðumst. Þá fórum við til Sigga Hall og fengum geggjaðan mat. Það væri gaman að gera þetta að árlegum viðburði, maður fer nú ekki það oft fínt út að borða:)
Ég hef ekkert getað sett inn nýjar myndir af kisu, það er allt í rugli með að senda myndir úr símanum á bloggið. Ég verð að fara að finna út úr því eða setja inn myndir af myndavélinni í staðinn. Kisi er annars hress, við keyptum rosa góðan og fínan kattamat handa honum eins og okkur var ráðlagt og mallinn er allur að skána. Þetta er svona þegar maður á ekki börn þá fjallar hvert blogg um gæludýrið manns!!!

20.2.07
Jamm og já
Lífið gengur sinn vanagang hér á bæ. Kobbi, eins og við köllum Kol, er fjörugur og frískur og finnst voða gaman þegar við vöknum á morgnana eða komum heim úr vinnunni. Þá er hann eins og píla um alla íbúð, prílar upp á sófa og nagar sjónvarpssnúrurnar. Við vonum að hann róist bara með aldrinum blessaður! Svo vonum við líka að hann fari að skána e-ð í maganum, það kemur svo ægilega vond lykt úr kattakassanum þegar hann gerir nr. 2...
Annars er nóg að gera þessa dagana. Síðasta helgi var ljómandi skemmtileg og byrjaði á vinnustuði þar sem ég sýndi að ég er ekki mikið betri að spila Pool en að kasta pílu en ég hef nýlega komist að því að hæfileikar mínir liggja ekki á þessum sviðum. Hins vegar finnst mér hvort tveggja mjög skemmtilegt og mun því æfa mig í þessum íþróttum á fullu! Að loknu púli var grímuball hjá 25 ára snót og var feikna fjör þar. Daginn áður hafði ég einmitt farið í Leikbæ í leit að grímubúning og var þar eina fullorðna manneskjan í þeim erindagjörðum! Fann að lokum grænan glimmerhatt og bling specs í stíl. Mér skilst að það komi myndir á síðu afmælisbarnsins við tækifæri. Laugardagurinn var ekki eins hressilegur eins og gefur að skilja en þó lufsaðist ég að horfa á Júróvisjón með krökkunum og var aldeilis hissa þegar að Eiki Hauks vann þetta bara og það víst með yfirburðum. Annars er allt í sambandi við þetta Júróvisjón hætt að koma mér á óvart og alveg eins víst að hann vinni þetta bara, það er ekkert hægt að spá fyrir um úrslit keppninnar. Verra fannst mér þó að lag eftir þennan ágæta höfund skyldi ekki vinna úti í Írlandi (lagið má heyra hér) en ég er nú kannski ekki alveg hlutlaus þar. Fallegt lag þó!

12.2.07
Kolur
Obbosí! Haldiði að Kola litla sé ekki með pung! Litla kisan er sko engin læða heldur hress fress með loðinn pung. Já, við héldum að þetta væri læða eins og okkur var sagt þar til í gærkvöldi að ég var að klóra honum á maganum. Þá blasti dýrðin við! Það verður því að breyta nafninu og er ekki hægt að skíra hann í höfuðið á Selmu. Kolur skal hann heita héðan í frá.
11.2.07
Kola
Já, eins og sjá má á myndunum hér að neðan þá hefur orðið fjölgun á heimilinu. Kola flutti til okkar í gær, 10. febrúar, á 9 ára afmælisdegi Heiðu Maríu frænku. Þetta byrjaði nú allt í tilhugalífi okkar Jóa sem er mikill kattavinur og hefur átt kisu síðan hann var strákur. Ég, sveitastelpan, er að sjálfsögðu ekki vön því að hafa dýr inni á heimilinu, dýrin eiga bara að vera úti í fjósi! En þegar maður er ungur og ástfanginn þá lofar maður öllu fögru og auðvitað myndum við fá okkur kött þegar við værum orðin stór og farin að búa. Ég slapp með skrekkinn á stúdentagörðunum þar sem kattahald er stranglega bannað en þegar við fluttum í okkar eigið húsnæði varð ekki lengur hægt að fresta þessu. Ég hélt ég væri sloppin fyrst við fluttum í fjölbýli en Jói kættist þegar hann sá alla kettina í nágrenninu og hjá nágranna okkar í stigaganginum. Þá var bara að ganga í að leita að kisu. Við fórum í gær og keyptum kassa, kattasand og kattamat og allt sem þarf að eiga þegar ný kisa flytur inn á heimilið og skoðuðum svo smáauglýsingarnar sem eru uppfullar af gefins kisum. Þar fundum við eina sem beið eftir okkur í Vesturbænum, rúmlega 12 vikna gamla. Hún titraði og skalf á leiðinni í úthverfi borgarinnar, enda aldrei farið út úr húsi og hvað þá í bíl. Allt gekk þó vel í fyrstu, hún skoðaði nýju heimkynnin af miklum áhuga og var síðan svo þreytt í gærkvöldi að hún steinsvaf hjá okkur í sófanum. Nóttin leið stórslysalaust en hún var heldur smeyk í morgun eftir allar hroturnar í nótt og ætluðum við aldrei að finna hana en loksins gægðist hún fram þar sem hún hafði sofið bak við tölvuskjáinn... Við skírðum hana fullu nafni Kola Selma í höfuðið á gæludýrinu okkar sem var hérna í haust en ætlum að kalla hana Kolu. Og það fyndna er að hún er búin að taka ástfóstri við herberginu hennar Selmu og hvílir sig þar þegar hún er feimin við okkur. Þetta tekur eflaust einhverja daga fyrir hana að venjast okkur en framundan er spennandi líf hjá okkur sem kisuforeldrar og eflaust verð ég hrifnari en mig hefði grunað af kisu litlu.
10.2.07
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)