4.7.05

Monday, monday

Er búin að vera með lagið Monday monday á heilanum í allan dag, eðlilega. Enda var það spilað í útvarpinu í morgun og þar með var það orðið fast!

Ég kíkti í Hljómskálagarðinn á föstudagskvöldið og sá þar Bubba (rétt missti af Svörtum afgan...), Papana og Hjálma, loksins. Eins og Hjálmar hafa nú verið að spila mikið á árinu þá var þetta í fyrsta skiptið sem ég sá þá. Svaka týpur... Það var fínt að kíkja aðeins út og það mættu alveg vera oftar tónleikar þarna í garðinum.

Á laugardaginn gerði ég tilraun til að veiða í Þingvallavatni og náði um leið að vígja fína regngallann sem ég keypti fyrir 17. júní. Regngallinn virkaði vel í rigningunni og rokinu en alls veiddist ein murta. Þá flúðum við rigninguna, keyptum okkur pylsur og þá stytti auðvitað upp. Nenntum ekki að reyna aftur þannig að við brunuðum bara í Kjósina í dýrindis lambalæri... sem við elduðum samt sjálf.

Er að velta því fyrir mér hvort ég stingi ekki bara af. Fyrst ég er farin að stara út um gluggann og blogga þá geri ég ekki mikið meira í dag.

Engin ummæli: