23.9.05

Heim í heiðardalinn

Mikið er gott að þurfa ekki að blogga alla ferðasöguna þar sem það er í raun búið í gegnum símann minn. Þvílík tækni! Ég er semsagt komin heim úr sólinni og það var frekar mikill munur að koma úr 30 stiga hita í 5 stig hérna - brrr.... Klukkan hálffimm um nóttina var 22 stiga hiti úti. Svo er bara 2 stiga hiti hérna núna og hálka! En nóg um það. Heimferðin gekk ljómandi vel, það var ekkert millilent og því engin seinkun og vorum við lent rétt eftir hádegið. Ég á örugglega eftir að setja inn myndir við tækifæri, ég læt vita þegar þær verða komnar inn.

Það sem við tók hérna heima fyrir utan kuldann var gríðarleg leti. Að vísu er ég búin að vera að ganga frá þvotti og taka til, svona til að gera eitthvað en ég nenni ómögulega að fara að gera eitthvað merkilegt. Enda alveg að koma helgi og þá á maður að vera í fríi... Í næstu viku ætla ég svo að klára það sem ég átti eftir í orðasafninu og svo er það bara alvaran - lokaverkefnið sjálft. Það verður gott að hella sér í það en erfitt að byrja. Ég hlakka ekkert smá til að klára það!

Svo er fullt að gera framundan, klakveiði, Hornafjarðarferð, Airwaves og Antony and the Johnsons. Mér ætti allavega ekki að leiðast á næstunni, það er víst!

Engin ummæli: