28.10.05

Það er komin vetrartíííð...

Ójá, á meðan það er 20 stiga hiti í Evrópu og fólk situr úti á kaffihúsum þá megum við bara frjósa í hel hérna á meðan það geisar snjóstormur og viðbjóður. Og ég ekki á vetrardekkjum... Ég sem ætlaði að hætta að kvarta og kveina hérna á síðunni! En það er bara ekki annað hægt núna, svei mér þá.

Nú stendur yfir íbúðaleit hjá okkur en þar sem útskrift er ráðgerð hjá mér í febrúar þá fáum við víst ekki að búa hér lengur en aðeins fram yfir það. Það er hins vegar ekkert grín að leita sér að íbúð þessa dagana. Sérstaklega þar sem kröfur okkar eru meiri en venjulega af illri nauðsyn: Ekki of margar tröppur, ekki of lágt brunabótamat, helst ekki úti í rassgati, þvottavél á sömu hæð o.s.frv... Það er því eins gott að byrja bara að leita strax svo að við lendum ekki á götunni með vorinu.

Annars er mikil rólegheitahelgi framundan. Pastasalat hjá pastasalatmeistaranum í kvöld (það er hún Anna Katrín ef þið föttuðuð þetta ekki...) og svo verður maður líklega angandi af hvítlauk það sem eftir er helgar. Skoða eins og eina íbúð á morgun og svo bara vídeó og leti.

24.10.05

Mánudagur

Þá er Airwaves lokið og við tekur veturinn. Hátíðin í ár var mjög fín fyrir utan fáránlega langar raðir inn á suma staði þannig að maður komst ekki inn til að sjá það sem maður vildi. Á laugardagskvöldið lenti ég einmitt í því en var komin að Nasa um hálftíu og þá var fimmföld röð frá húsinu að Alþingi... Þá varð bara að virkja plan b og fara í Hafnarhúsið þar sem hin frábæru Zutons voru m.a. að spila. Mjög skemmtilegt!

Nú fer afsökunum hins vegar fækkandi fyrir því að klára ekki helv... nei, ég meina frábæra verkefnið mitt. Það koma dagar, og þeir eru reyndar fleiri en hinir, þar sem ég sit með störu á skjáinn og kem engu í verk. Legg nokkra kapla, blogga pínu, les blogg hjá öðrum, legg fleiri kapla, fer á leikjasíðu á netinu (úff, stórhættulegt!) og er svo að drepast í baki og öxlum á eftir. Spurning um að taka sér bara frí kl. 14:08! Halda svo áfram á morgun...

21.10.05

Loftbylgjur og kindur

Já, þeir hafa löngum verið sérstakir þessir Kjósverjar... Gott hjá þessum að uppgötva heiminn en synd hvernig fyrir þeim fór!

Airwaves airwaves airwaves airwaves... Já, það er gaman á Airwaves. Hátíðin er hálfnuð og nóg eftir. Á miðvikudaginn var ég á Nasa allt kvöldið þar sem mjög svo misjafnir listamenn komu fram en þar var óvæntastur og skemmtilegastur Hermigervill. Í gær var flakkað á milli Hafnarhússins og Þjóðleikhúskjallarans þar sem snillingurinn José González bræddi lýðinn.

Í kvöld er það svo Gaukurinn og vonandi Nasa á morgun. Það er þó eins gott að vera ekki of seint á ferðinni til að komast hreinlega inn á staðina, það eru raðir út um allt. Spurning um að fjölga annaðhvort stöðunum eða fækka miðunum...

18.10.05

Feneyjar austursins

Þá er maður kominn aftur af flóðasvæðunum fyrir austan. Já, Hornafjörður var á kafi um helgina og fólk sigldi bara á bátum um bæinn. Þetta var alveg ótrúlegt! Á leiðinni austur var hins vegar yndislegt veður, allt á kafi í snjó og glampandi sól. Svo var bara allt farið í bakaleiðinni og allt orðið grátt og blautt. Þrátt fyrir mikla rigningu og leiðindaveður var Hornafjarðarferðin alveg frábær eins og venjulega og mikið borðað og drukkið og farið í heita pottinn. Svo keypti ég mér meiraðsegja nýja strigaskó á Höfn fyrir Airwaves!

Iceland Airwaves er nefnilega að byrja í vikunni. Þetta verður algjör veisla í fjóra daga og af nógu að taka. Eins og í fyrra missir maður þó alltaf af einhverju en það fylgir þessu bara. Hins vegar þekki ég voða lítið til hljómsveitanna í ár en hlakka til að sjá José González sem ég hef verið að hlusta á.

13.10.05

Picture(2.jpg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Picture(2.jpg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

7.10.05

Andlaus

Ég er gjörsamlega andlaus í sambandi við verkefnið. Ég stari á tölurnar og setningarnar og fórna höndum... Er þetta hægt?! Mig langar helst að skríða upp í rúm og horfa á sjónvarpið en get það ekki því að þá fæ ég samviskubit og get ekki einbeitt mér að því. Ekki að ég geti einbeitt mér að verkefninu heldur! Úff...

Ég fór á svo skemmtilega mynd á kvikmyndahátíð í vikunni. Þetta var heimildarmynd um George Michael, gamla uppáhaldið mitt. Salurinn var fullur af gömlum Wham aðdáendum og tók fólk andköf þegar gömlu Wham lögin voru spiluð og ekki síður þegar Andrew Ridgeley birtist á skjánum. Það var virkilega gaman að sjá myndina og margt sem maður vissi ekki um feril hans og líf. Svo er hann bara svo aðlaðandi og skemmtilegur... auðvitað!

Og guð minn góður... íslenski bachelorinn. Vá hvað það er hræðilegt að horfa á þetta en samt verður maður. Svo er hann svo klígjulegur sjálfur, ég skil gelluna vel sem sagði bara nei við rósinni. Og plebbabragurinn á þessu, vá! Úff.. þetta er bara einum of hallærislegt. Mér finnst samt að hann hefði átt að gefa frænku minni rós en hún getur kannski bara prísað sig sæla stúlkan. Og af hverju heitir þetta ekki Piparsveinninn??

4.10.05

Töluvert mál - lokasprettur

Þá er komið að því að hella sér aftur í lokaverkefnið - Töluvert mál. Það er soldið erfitt að byrja aftur þar sem frá var horfið en um leið bara gaman. Verkefnið hefur verið að gerjast einhvers staðar á bakvið í kollinum á mér þannig að það er gott að geta komið þeim hugmyndum niður á blað og farið að vinna með þær. En ég hlakka líka ekkert smá til að klára þetta...

Helgin var alveg þrælfín þótt veðrið hefði mátt vera betra. Ég veiddi tvo laxa og einn sjóbirting á meðan ýmist snjóaði á mig eða rigndi. Að venju var vel tekið til matar síns, enda verður maður svangur af allri útiverunni, og var þjóðlegur matur á laugardagskvöldið: heimareykt hangikjöt, svið, reykt nautatunga, rófustappa, jafningur, grænar baunir og hveitikökur! Enda var ég svo södd eftir matinn að ég hefði getað farið beint að sofa. Það varð þó ekki raunin heldur dreif liðið sig á skemmtistað sveitarinnar, Kaffi Kjós, þar sem Eyfi sjálfur spilaði á gítarinn. Það var alveg hreint ágætt þótt hann hafi nú ekki verið sem hressastur sjálfur. Hann er ekki týpan sem spilar óskalög og þegar einhver sagði „æ, ekki vangalag“ þá sagði hann hinn fúlasti: „Ég spila bara það sem mér sýnist sama hvað hver segir!“ Svo mörg voru þau orð.

2.10.05

Örblogg

Eyjòlfur Kristjàns à Kaffi Kjòs!
SMS sendi ég
Powered by Hexia