30.6.04

Rokk og ról

Peaches rokkaði aldeilis í gær. Ég veit ekki við hverju ég bjóst en áður en hún steig á svið var hún á vappi og kom í ljós að hún er bara frekar smávaxin og nett venjuleg stelpa. Á sviði umturnast hún hins vegar í svaka rokkpæju sem skoppar um á nærfötunum einum (og leðurstígvélum) með sólgleraugu og rafmagnsgítar. Getur ekki klikkað. Tónleikarnir voru sem sagt frábærir og flott var þegar hún tók Kick It og Iggy Pop söng sinn hluta á tjaldi fyrir aftan hana. Egill Sæbjörns stóð sig líka prýðilega og gaman að sjá hann loks á sviði. Hins vegar var staðurinn ekki alveg að virka. Ef maður stóð ekki fremst var lítill möguleiki á að sjá eitthvað nema vera a.m.k. 1.80 á hæð og þar sem ég gat hvorki staðið fremst né stækkað mig þá sá ég hreinlega voða lítið. En, svona geta nú tónleikar orðið, maður svitnar og sér lítið... rokk og ról!

29.6.04

Peaches!

Peaches er að spila í kvöld í Klink og bank. Það verður forvitnilegt að sjá hana, hún þykir vægast sagt frökk á sviði og hrópar klúra texta yfir hópinn alein á sviðinu. Spennó. Þetta gefur kannski hugmynd um hvað er í vændum?

28.6.04

Töluvert mál

Þetta er vinnuheiti lokaverkefnisins míns sem ég er að vinna að þessa dagana. Verkefnið snýst um að finna reglur um hvernig bera skuli tölustafi og skammstafanir fram og er þetta helst gert til að talgervill eða þulur geri það rétt. Ég er í því núna að lesa mbl og finna setningar með tölustöfum í, hvort sem það eru prósentur (vinsælt þessa dagana), upphæðir, dagsetningar eða annað. Samhliða því tek ég allar skammstafanir út og held þeim saman. Svo er að sjá hvað kemur út úr þessu öllu.

Ein aðferð er svo að láta fólk hjálpa sér... eða hvað?



hmm

mbl.is Forsíða Frétt


Veröld/Fólk | 28.6.2004 | 8:13

Myrti eiginkonu sína út af EM-veðmálum
Víetnami myrti eiginkonu sína eftir að hún kvartaði yfir því að hann hefði tapað háum fjárhæðum í veðmálum vegna EM í knattspyrnu. Vo Van Nghe, 44 ára, stakk eiginkonu sína fyrir með hnífi fyrir neðan hnakkabeinið þegar hún var bursta tennur sínar. Pham Thi Tuyet Vinh, 42 ára, lést samstundis.
Nghe sagðist hafa ráðist á eiginkonu sína því hún hafði nöldrað í honum fyrir að hafa glatað sem nemur 700 þúsund krónum í veðmálum. Lögregla í Víetnam hefur handtekið fjölda fólks vegna ólöglegra veðmála tengdum EM í knattspyrnu.






27.6.04

Vei!

Já, það þarf ekki mikið til að gleðja mann - ég lærði allt um komment! Endilega tjáið ykkur um allt og ekkert, það er svo gaman.

26.6.04

Laugardagur

Er búin að læra um "komment" í dag... athyglisvert. Verð að geta gert 1 athugasemd og 2 athugasemdir eða eitthvað slíkt. Þyrfti líka að finna út hvernig íslenskar gæsalappir eru í html ef hægt er - þoli ekki þessar útlensku. Annars innipúkadagur fyrir utan að ég fór að kjósa, ágætis ástæða til að fara út úr húsi.

25.6.04

Þar kom að því!

Já, þar kom að því að maður fór að blogga... Á næstunni verður síðan nú eitthvað að breytast og það verður bara að koma í ljós hvort eitthvað af viti kemur inn á hana, allt eftir því hvort andinn er yfir mér eða ekki! Ég þarf líka að læra á þetta alltsaman, setja myndir inn og annað. Öll ráð vel þegin handa byrjandanum!

Prufa

Bara að sjá hvort þetta virkar...