17.8.05

Kool thing!

Sonic Youth spiluðu í gær og mikið svakalega var gaman að sjá þau. Þau eru eitt svalasta band í heimi, öll tæplega fimmtug en rokkuðu eins og unglingar. Við vorum á besta stað í húsinu og sáum yfir allt sviðið alla tónleikana. Dagskráin var sambland af gömlum og nýjum lögum með nettum gítarhávaða á milli og lauk svo með korters gítargjörningi sem var ekki það skemmtilegasta sem ég hef heyrt... Að vísu spiluðu þau ekki mjög lengi, um klukkutíma fyrst, en voru svo klöppuð tvisvar upp. En, samt, frábær upplifum að sjá þau, eitthvað sem ég hef beðið eftir í 15 ár!

Um helgina fórum við Jói svo í veiði í Hrútafjörðinn þar sem við gistum í tvær nætur í rafmagnslausum kofa uppi á heiði með gashitun og köldu vatni. Mjög huggulegt! Ekkert nema við og nokkrar rollur á svæðinu og þrusuveiði að auki. Að vísu gat ég ekkert veitt í ánni vegna slæms aðgengis en Jói gerði sér lítið fyrir og veiddi 5 laxa! Þannig að nú verður lax í hvert mál, soðinn, grafinn og reyktur. Ætlum einmitt að borða einn nýjan í kvöld...

Annars er þetta hreint ömurleg vika þrátt fyrir frábæra tónleika. Lærdómur alla daga og tóm leiðindi. Kennarinn minn er samt svo frábær að hann bauð mér að koma í aukatíma til sín í vikunni þannig að ég fer þangað þrisvar sinnum. Eins gott að fara að gera eitthvað af viti svo að ég geti spurt hann gáfulegra spurninga!

Engin ummæli: