12.7.05

Þriðjudagur

Ojojojoj hvað er ógeðslegt veður úti! Það mætti halda að það væri kominn september - sem að öðru leyti er alveg frábær mánuður... Hvað er málið??

Ég fór á tónleikana í gær með Antony and the Johnsons á Nasa og það var mjög fínt. Alveg stappað af fólki - enda uppselt - og því erfitt fyrir stubba eins og mig að sjá nokkurn skapaðan hlut. Sérstaklega þar sem Antony og félagar sátu allir á sviðinu... Antony greyið var nú svosum ekki mikið fyrir augað þannig að það var kannski í lagi. Skemmtilegur gaur samt og frábært hljóð á staðnum þannig að þetta var bara fínt.

Ég komst líka á Þjóðminjasafnið um helgina í fyrsta skipti. Alveg magnað að skoða þessa sögufrægu hluti eins og Valþjófsstaðahurðina og Guðbrandsbiblíu og fikra sig um leið í gegnum Íslandssöguna. Mæli með þessu fyrir alla sem eiga eftir að fara - það er ókeypis á miðvikudögum!

Finnafjör næstu daga. Í dag sæki ég tvo Finna á flugvöllinn sem verða hér fram á föstudag. Vikan fer því í túristastúss og þess háttar með þeim. Óskandi að þau fengju betra veður samt sém áður. Leiðinlegt að þau fái að kynnast íslenska „sumrinu“ svona...

Engin ummæli: