Það er nú meira hvað ég get verið syfjuð. Það er sama hvað ég sef, alltaf er ég geispandi og gapandi. Ég er búin að sofa út í eitt eftir veiðitúrana, það mætti halda að þeir hefðu tekið einhverja orku frá mér! Svo get ég örugglega ekkert sofið um helgina þegar ég má sofa, það er allavega vaninn...
Við erum annars komin með leigjanda fram í janúar. Við sáum aumur á heimilislausri frænku minni og ætlum að lofa henni að vera í tölvuherberginu næstu mánuðina. Hún er öflug í uppvaskinu svo að við njótum góðs af því!
Svo er hann Jonathan Richman vinur minn að koma í næsta mánuði! Ég hef séð hann í bæði skiptin sem hann hefur komið áður og skemmti mér rosalega vel, ég mæli með því að fólk kíki á hann í Iðnó. Svo er myndband með honum hér á síðunni sem ég setti inn um daginn ef fólk vill tékka á honum...
28.9.06
26.9.06
Vinnudýr
Þá er útivist minni lokið í bili og tími til kominn að sitja við tölvu í borginni næstu mánuðina. Þrír veiðitúrar í röð taka sinn toll! Þó að ég hafi kannski ekki veitt mjög mikið - og þó! Tveir ágætis urriðar í Laxá í Nesjum og tveir laxar í klakveiðinni í Kjósinni. Það er kannski ágætt. Annars var túrinn austur ljómandi góður. Að vísu var veðrið svo vont síðasta daginn að það var varla stætt úti í á og við urðum svo veðurteppt fyrir austan eina nótt. Sem betur fer var enginn að koma í veiðihúsið á eftir okkur svo að við fengum að vera þar eina nótt til viðbótar. Daginn sem við keyrðum aftur í bæinn var svo glampandi sól og blíða alla leiðina og var alveg ótrúlega fallegt að keyra meðfram jöklinum. Ofboðslega falleg leið!
Áður en við héldum austur fór ég svo á Nick Cave tónleika. Þeir voru auðvitað frábærir enda ekki við öðru að búast.
Hann var erfiður mánudagurinn í gær þegar ég byrjaði að vinna á Orðabókinni. Mikið var ég syfjuð enda búin að vera í veiðitúrum meira og minna allan september. Hér verður þó örugglega fínt að vera fram í desember. Allavega verður ágætt að komast inn í rútínu aftur...

16.9.06
September
Það er nóg að gera þessa dagana. Afmælið mitt var fyrir viku og var rosalega gaman þann daginn. Vinir og vandamenn fögnuðu með mér fram á nótt hér heima í skemmtilegri veislu og vil ég þakka þeim sem mættu kærlega fyrir mig! Hlakka til að eiga aftur svona afmæli...
Á miðvikudaginn var haldið í Krossá á Skarðsströnd til veiða. Í hífandi roki og rigningu komu tveir laxar á land fyrsta daginn, í sól og blíðu kom einn lax annan daginn en enginn vildi bíta á síðasta daginn í fínu veðri. Engan fékk ég þó af þessum þremur löxum en það kemur kannski næst. Alltaf jafngaman að fara í Krossána, góður félagsskapur og fallegt umhverfi!
Á morgun er svo haldið af stað í annað ferðalag. Ferðinni er heitið til Hornafjarðar og verður farið að veiða þar rétt hjá, í Laxá á Nesjum, á mánudag. Þar verður veitt í tvo daga og svo haldið í rólegheitum heim á leið með viðkomu e-s staðar á leiðinni.
Svo fer maður kannski bara að vinna! Ég er að fara að vinna að verkefni hjá Orðabók Háskólans sem nú ku vera orðin hluti af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Þar verð ég allavega fram í desember og svo er að sjá hvað tekur við þá.
En fyrst af öllu er það Nick Cave í kvöld! Já, þetta verður í fjórða skiptið sem ég sé hann, eða fimmta ef talinn er með upplestur úr bók í Virgin Megastore í París... Alltaf er ég jafnspennt. Það verður forvitnilegt að vita hvort prógrammið sé mikið breytt að þessu sinni, hvað hann tekur af gömlum lögum o.s.frv. Hlakka til!
Afmælisbarnið og unnustinn

Krossá
Valdís veiðikló

9.9.06
8.9.06
Föstudagur!
Ef þessi snillingur kemur manni ekki í gott skap á föstudegi þá veit ég ekki hvað. Bíð spennt eftir að fá hann til landsins á ný!
7.9.06
Villta Villa
Ég var svaka villt í nótt og vakti alveg til eitt til að horfa á Rockstar! Ég var bara orðin svo spennt eftir að hafa horft á tónleikana, í endursýningu reyndar, að ég bara varð að sjá hvernig þetta fór. Frábært að Magni skuli vera í lokaþættinum. Verst að ég missi af honum.
Sjáið annars muninn á heimkynnum rokkaranna í þættinum hér!
Í dag eru tveir dagar eftir af ungdómsárum mínum...

5.9.06
Paris je t´aime
Ég fór á kvikmyndahátíð í gær á myndina Paris je t´aime. Þetta eru í raun 16 stuttar myndir eftir mismunandi leikstjóra um mismunandi hverfi Parísarborgar. Misgóðar myndir eins og gefur að skilja en í heildina var gaman að myndinni, sérstaklega þegar maður hefur verið í París. Enda var fullt af fyrrverandi au pair stelpum í bíó. Það vantaði þó alveg eina mynd um hressar au pair stelpur að skemmta sér í París! Mig langar svo að sjá miklu fleiri myndir á kvikmyndahátíðinni en hef hvorki tíma né efni á því. Ég ætla þó að sjá I´m your man um Leonard Cohen og jafnvel eins og eina mynd til.
Skyldi maður svo geta vakað yfir Rockstar í nótt? Nú á að vera Magnavaka á Skjá 1 og svaka stemmning. Verst að ég er alltaf sofnuð fyrir miðnætti. Ég hélt mér ekki einu sinni vakandi yfir endursýningunni síðasta miðvikudagskvöld! Og ekki vakna ég fyrir sex á morgnana, það er alveg á hreinu. Hann hlýtur að hafa þetta af án mín hann Magni.
Þetta er kannski aldurinn. Nú er stóri dagurinn eftir fjóra daga! Gráu hárunum fjölgar og svo framvegis. Ég hlakka samt bara til. Ég ætla að skemmta mér stórvel á laugardaginn og vona að aðrir geri það með mér! Minni af því tilefni á óskalistann hér til hliðar...

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)