21.8.05

Dómsdagur

Á morgun kemur að því, próf klukkan hálftvö. Mikið hrikalega verð ég fegin þegar það verður búið... úff! Ég er sem sagt búin að eyða allri helginni í próflestur þegar ég hefði getað verið í bústað með heitum potti, gufu og fullum strákum - nei, ég meina fullt af strákum (ehm...). En, það er ekki á allt kosið og þýðir ekkert að væla yfir þessu. Þó að þið megið alveg vorkenna mér smá.

Mér skildist að menningarnótt hefði verið alveg ágæt, ekkert frábær þó. Allavega var mér sagt að ég hefði ekki misst af neinu merkilegu. Eitthvað var ég að gæla við að kíkja í bæinn í gærkvöldi en nennti svo ómögulega að standa í því að koma mér fram og til baka.

En, þá er það síðasti í próflestri. Vonum það besta...

Engin ummæli: