4.8.05

Fimmtudagur

Góðar svona stuttar vikur eins og þessi, allt í einu er kominn fimmtudagur og alveg að koma helgi! Reyndar er óhugnanlegt hvað tíminn líður hratt, sérstaklega þar sem það líður að sumarprófi hjá mér, mánudaginn 22. ágúst *grátigrátigrát*. Það er kannski kominn tími til að fara að læra þá?

Ég var annars að fá nýju White Stripes plötuna í vikunni og líst mér ansi vel á hana! Jói kom með hana frá útlöndum, maður er nánast hættur að kaupa plötur hérna heima nema á 2 fyrir 2200 eða e-ð svoleiðis. Jói var einmitt að koma frá Mónakó þar sem Hugleikur var á alþjóðlegri leiklistarhátíð með leikrit sitt, Undir Hamrinum. Það er skemmst frá því að segja að bæði leikritið og leikarinn fengu frábæra dóma úti eins og við er að búast! Svo hitti hann bæði Albert fursta (hann er víst ekki prins lengur...) og Alice Cooper sem spilaði undir borðum við hátíðarkvöldverðinn síðasta kvöldið :)

Bendi að lokum á að það er hægt að hlusta á nýju Raveonettes plötuna á hollensku síðunni sem ég benti á um daginn. Smella bara á luisterpaal og hlusta...

Engin ummæli: