Enn og aftur er að koma helgi. Sú síðasta var stórskemmtileg í sumarbústað með tilheyrandi grilli, bjór, heitum potti og júróstemmningu. Allir trylltust af gleði þegar Finnland vann og var ákveðið að fara til Helsinki til að sjá keppnina 2007. Skilst mér að margir Íslendingar ætli að gera hið sama!
Alltaf er svo eitthvað um að vera um helgar því að á laugardaginn er stúdentsútskrift í sveitinni þar sem frænka mín útskrifast úr Menntaskólanum að Laugarvatni. Það verður því enn ein sveitahelgin hjá mér. Ekki skrýtið að maður komi aldrei neinu í verk í íbúðinni!
25.5.06
19.5.06
Föstudagur
Ég er búin að eiga mjög ánægjulega tónleikaviku þessa vikuna. Á miðvikudagskvöldið sá ég CocoRosie á Nasa, mjög spes systur sem gera mjög spes en flotta tónlist. Í gær fór ég svo í Fríkirkjuna að sjá Slowblow, Smog og Joönnu Newsom. Tónleikarnir voru alveg æði og var Joanna sjálf hápunkturinn, pínulítil stelpa með risastóra hörpu sem syngur eins og ég veit ekki hvað! Alveg þess virði að missa af Eurovision fyrir þetta.
Í dag á svo að fara í Eurovisionsumarbústaðaferð og horfa á keppnina á morgun af miklum áhuga þótt Silvía greyið hafi dottið út. Það voru hreint ömurleg lög að fara áfram á meðan önnur sátu eftir. Þó að það komi kannski ekkert svakalega á óvart með Silvíu þá voru önnur lög víst mjög líkleg áfram sem sitja eftir. Þetta er bara svipað og með Selmu í fyrra, lögin virðast ekki skipta öllu máli heldur löndin. Það þarf orðið að hafa sér Eurovision fyrir A-Evrópu svo að hin löndin eigi séns! Finnland fór þó áfram og nú eiga allir að kjósa Lordi á morgun. Áfram Finnland!!!

15.5.06
Mánudagur
Ég tek það fram að ég var ekki að grilla morgunmat þótt myndin hérna að neðan hafi komið inn í morgun. Það er bara búið að vera vesen með að senda myndskilaboð úr símanum um helgina þannig að það virkaði ekkert fyrr en í morgun. Þetta er vesenið við að skipta um símafyrirtæki, ég þoli ekki þegar hlutirnir virka ekki!
Annars vorum við svaka villt á föstudaginn, fórum í Elko og keyptum ísskáp og þvottavél! Það er ÆÐI að vera með þvottavél inni á baði en ekki e-s staðar í kjallara. Ég er búin að vera að þvo stanslaust síðan í gær og horfi með aðdáunaraugum á vélina og klappa henni þess á milli. Ísskápurinn er nú ekki síðri, það eina er að hann er svo stór að ég næ varla upp í efstu hilluna. Jói ætlar að geyma bjórinn alltaf þar...
Vantar annars einhvern ísskáp gefins? Þetta er ágætur gamall ísskápur sem heyrist að vísu soldið í en ef þið vitið um einhvern sem vantar ísskáp (með frystihólfi og allt) og getur sótt hann má láta mig vita.

12.5.06
Föstudagur
Það er ekkert grín að þykjast vera að vinna heima hjá sér þessa dagana. Maður freistast miklu frekar til að fara bara út í sólina og slæpast! Svo horfir maður á alla kassana í kringum sig og vill raða öllu upp á sinn stað. En það dugar ekki að væla, einhvern veginn verður maður að vinna fyrir þessari blessuðu íbúð! Ég er svo búin að fá vinnu fram á haustið sem ég byrja í 1. júní en hún felst víst í því að rannsaka afturbeygingu og miðmynd í íslensku... Spennó! Það verður fínt þar sem það verður unnið uppi í Háskóla og þá kemst maður aðeins út á daginn. Að vísu labba ég ekki í vinnuna eins og í fyrrasumar!
Annars er bara stuð framundan, rólegheitahelgi og síðan tvennir tónleikar í næstu viku. Aðrir tónleikarnir að vísu þegar undankeppni Júróvisjón er en ég tek hana bara upp og horfi á hana eftir tónleikana. Svo er sumarbústaðaferð eftir viku og þá verður sko horft á júró, jafnvel þótt Silvía Nótt verði sjálfsagt ekki með þar...

2.5.06
Úúú...
Spurning um að fara að gera e-ð af viti fyrst það er ekki lengra í þetta...
|
Flutt!
Það hefur aldeilis verið mikið að gera síðustu vikurnar. Við fengum íbúðina afhenta á sumardaginn fyrsta og strax daginn eftir var tekið til við að mála. Og það var málað og málað og málað og þrifið. Svo fluttum við á fimmtudaginn var og þá pakkað og flutt og flutt og þrifið meira. Meira hvað maður getur skitið út eina íbúð á smátíma! Þegar maður var orðinn algerlega dauður af því að pakka, þrífa og flytja var blásið til fermingar í sveitinni þar sem hún Þórdís litla frænka (sem er ekki svo mjög lítil lengur) fermdist á sunnudaginn. Þar þurfti heldur betur að taka til hendinni þar sem veislan var haldin í heimahúsi og tóku við enn meiri þrif! Að vísu fékk ég hlutverk tæknistjóra sem var mun þægilegra, enda voru lappirnar þarna við það að detta af mér. Fermingarveislan heppnaðist með endemum vel og voru kræsingar á boðstólum eins og kengúra, dádýr, heimaveiddur og heitreyktur lax, sniglar, lamb, naut, grillaður (og heimaveiddur) lax o.s.frv. o.s.frv... Næstum því eins og gott laugardagskvöld á Valdastöðum! Eftir þessa frábæru veislu þurfti svo að fara í bæinn að þrífa meira þar sem Eggertsgatan var ekki búin. Í dag er svo loksins búið að skila lyklunum þar svo að það er hægt að fara að einbeita sér að nýja heimilinu þar sem allt er á hvolfi í augnablikinu. Síminn og netið fóru fyrst af stað í dag þannig að það er allt að komast í samt lag. Nú fer maður að verða fastagestur í Ikea og Rúmfatalagernum, Byko og Húsasmiðjunni til að kaupa hitt og þetta sem mann bráðvantar (og allt hitt sem mann langar bara í!). Allir eru velkomnir í heimsókn til að skoða pleisið, látið okkur bara vita fyrst!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)