29.12.04

Miðvikudagur

Mikið er ég nú búin að hafa það gott um jólin... ég fór í sveitina á aðfangadag og kom ekki í bæinn aftur fyrr en í gær. Að venju var mikið borðað, spilað, lesið og sofið - já, og sungið! Frænka mín fékk Singstar leikinn og það var rosa gaman að syngja í honum. Popppunktsspilið kom líka sterkt inn þetta árið. Ég fékk líka fullt af pökkum, m.a. myndavélarsíma þannig að nú fer ég að senda fleiri myndir hingað á bloggið. Tíminn leið ógurlega hratt og fyrr en varði var þetta bara búið. Sem betur fer er ég áfram í fríi fram yfir áramót þannig að þá er bara að halda áfram að lesa, borða og sofa...

24.12.04

GLEÐILEG JÓL




Svona leið mér nokkurn veginn í morgun klukkan hálfátta...

23.12.04

Það er Þorláksmessa!!!

Durururu, dururuddudu - Jólalag Baggalúts klikkar ekki!

Það er allt á fullu í jólaundirbúningnum, búið að pakka inn öllum pökkunum og verið að klára að þrífa soldið fyrir jólin þótt ég verði nú minnst heima yfir hátíðarnar. Í fyrramálið bruna ég upp í sveit þar sem ég verð eitthvað fram yfir helgina. Ooo, ég hlakka svoooo til!!!

Ég ætla að setja hérna inn uppáhaldsjólalagið mitt í öllum heiminum en það er Jólakötturinn sem Björk syngur. Ég fer einfaldlega ekki í jólaskapið fyrr en ég heyri þetta. Hlustið nú á í botni og finnið jólaskapið - GLEÐILEG JÓL!!!

20.12.04

BÚIN!

Búinbúinbúinbúinbúinbúinbúinbúinbúinbúinbúinbúin í prófinu! Gekk sæmilega, er sennilega ekki fallin. Aldrei að segja aldrei samt. Ég var í prófi í Eirbergi en fyrir nákvæmlega 2 árum, 20. desember 2002, var ég í prófi á sama stað og þá fór ég á fæðingardeildina eftir prófið að heimsækja lítinn frænda sem kom í heiminn þann morgun. Sá frændi á því einmitt afmæli í dag og er veisla núna á eftir. Vonandi er þetta því happadagur og happastaður... fyrir utan það að ég er Little Miss Brainy ;)

Já já...

brainy


Congratulations, you're Little Miss Brainy!


Which Little Miss are you?
brought to you by Quizilla


Ef þetta er ekki uppörvandi fyrir prófið þá veit ég ekki hvað!

8 tímar...

Eftir 5 tíma fer ég í próf. Eftir 8 tíma verð ég búin í prófum (ja, eða prófi). Þá verður gaman.

17.12.04

ML

Alias var hörkuspennandi að venju - sjá allt um atburðarásina í kommentakerfi Svölu í dag :)

Skammstöfunin hér að ofan (ML) stendur ekki fyrir Menntaskólann að Laugarvatni heldur er þetta skammstöfun fyrir „mér leiðist“ eins og fjölskyldumeðlimir mínir þekkja vel. Þegar ég var krakki leiddist mér stundum - enda ekki sú afþreying í boði þá og er í dag fyrir utan það að ég bjó í sveit og ekki hægt að hlaupa út að leika við aðra krakka þegar manni sýndist. Þá átti ég til að suða í mömmu minni, systur eða mágkonu „mér leiiiiiðist“ og áttu þær þá einhvern veginn að bjarga því. Þegar á leið fór ég að stytta þetta suð og segja „emm ell“ sem skildist strax. Ekki það að mér hafi leiðst eitthvað minna við það en þar hafið þið söguna af því þegar Valdísi leiddist.

Ég veit að það er einn dyggur lesandi sem hlustar á lögin sem ég set hérna inn, ástkær bróðurdóttir mín í Finnlandi. Jólalagið sem ég ætla að setja hér í dag er tileinkað henni en saman hlustuðum við á áðurnefnda uppáhaldshljómsveit, Wham, þegar við vorum krakkar. Þá leiddist mér sko ekki! Þetta er næstflottasta jólalag í heimi, það flottasta kemur í næstu viku. Njótið vel!

16.12.04

emm ell

Mér leiðist próflestur þótt hann sé bara fyrir 1 próf. Fæ bara hausverk af honum. Rúmlega 3 lesdagar eftir... svo búin! Ætla samt ekki að tapa mér yfir þessu og ætla að horfa spennt á Alias í kvöld. Það er orðinn siður að hittast á Seljaveginum yfir dæet kóki og horfa á þáttinn með athugasemdum eins og „hann er nú frekar sætur“ (þ.e. Vaughn) og „djöfull þoli ég hana ekki, hvenær ætlar hann að fatta að hún* er vond og byrja aftur með Sidney?" (*hún er sko konan hans Vaughns) Kannski gerist það í kvöld...o, ég hlakka til :)

12.12.04

Sunnudagur

Þá er Stekkjastaur kominn til byggða og gaf mér samt ekkert í skóinn! Og ég sem var búin að ganga í fínu jólasveinainniskónum í marga daga honum og bræðrum hans til heiðurs og haga mér alveg svakalega vel í alla staði. Skil þetta ekki... kannski gefur hann ekki þeim sem eru orðnir 28 ára. Eða þá að hann nær ekki upp á þriðju hæð? Hver veit, ef ég haga mér áfram vel í desember fæ ég kannski pakka frá honum.


Image Hosted by ImageShack.us



Ég er til dæmis búin að haga mér rosalega vel um helgina. Í gær fór ég með Önnu Katrínu að kaupa jólagjafir á Laugaveginum. Það er ótrúlegt hvað það er miklu skemmtilegra að fara í búðir þar en í þessum Kringlulindum þarna. Ferskt loft og engin örtöð og fullt af fínum búðum. Mér tókst að kaupa fullt af gjöfum, bæði afmælis- og jóla, og var ekki úrvinda af þreytu á eftir eins og ég hefði verið eftir Kringluna eða Smáralind. Mæli með þessu fyrir jólin!

Fór svo á afskaplega slappa mynd í bíó. Reyndar var lítið í boði, vorum að spá í Surviving Christmas (7% af 100) og Paparazzi (20% af 100) en vegna lélegra dóma ákváðum við að sjá Mindhunters sem við fundum enga dóma um. Sem betur fer. Renny Harlin mynd með Val Kilmer, Christian Slater og LL Cool J meðal annarra. Hljómar ekki svo illa en svei mér þá ef Seed of Chucky hefði ekki bara toppað hana. Kannski. Mæli allavega ekki með henni.

Svo er það lærdómur. Er að svara spurningum um tölfræðilega marktekt og línulega umbreytingu mér til gleði og gamans. Skemmtilegt!

10.12.04

Ha? Ég?

chatterbox


Congratulations! You're Mr. Chatterbox!


Which of the Mr. Men characters are you?
brought to you by Quizilla

Föstudagur!

Ég er bara alveg farin að klikka á því að setja inn föstudagstónlistina - saknar þess nokkur? Æi, hvað með það, ég skelli inn einu stuðlagi fyrir helgina. Það er ekki jólalag, þau koma ekki fyrr en kannski um næstu helgi. Lagið heitir hins vegar Maniac og er úr einhverri dansmyndinni - Flashdance held ég. Þetta var ég með í botni á göngubrettinu í morgun úr nýju græjunni okkar og fílaði mig alveg eins og gellan í myndinni! Hér kemur lagið allavega og njótið vel!

9.12.04

Er þetta hægt?



Sá í Mogganum að verðmunur á leikföngum er ansi mikill milli Bandaríkjanna og Íslands. Finnst ykkur þetta hægt? Nú er dollarinn kominn í rúmlega 60 krónur og ekki hægt að nota það sem afsökun. Ef eitthvað hækkaði í verði hérna um árið þá var það af því að gengið var svo hátt! Er ekki allt í lagi??

8.12.04

Sjitt!

þetta á síðunni hjá Bjössa og mátti til með að deila þessu með ykkur! Er ekki í lagi með sumt fólk??

6.12.04

Mánudagur

Þá er áthelgin mikla búin og við tekur svelti fram að jólum! Á föstudaginn fór ég á jólahlaðborð á Hótel Borg með vinahópnum - Önnu, Svölu, Ólöfu, Hrafni, Möggu, Sigfúsi, Birnu og Sigga. Ljómandi fínt kvöld í alla staði - maturinn aldeilis fínn og það var mjög fyndið að líta yfir hópinn eftir matinn, allir geispandi og gapandi með bumbuna út í loftið! Á laugardaginn fór ég í sveitina í meira át, laufabrauðsgerð um daginn og annað hlaðborð um kvöldið. Nýsteikt laufabrauð og annar veislumatur. Aftur varð maður of saddur og valt útaf eftir matinn.


Image Hosted by ImageShack.us



Ég elska Gretti, við eigum svo margt sameiginlegt - finnst gott að borða og leggja okkur!

2.12.04


Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Aðventan

Ég er bara ekkert búin að komast á netið af ráði alla vikuna, hér er verið að læra í hverju horni og þar sem ekkert þráðlaust net er á heimilinu kemst ég ekkert á netið í ferðatölvunni. Vikan samt búin að vera nokkuð notaleg bara. Ég byrjaði aðventuna á að kveikja á fyrsta kertinu í fína kransinum mínum og fór svo á aðventutónleika í Bústaðakirkju þar sem frænka mín söng svo fallega með kórnum sínum. Mér finnst þetta alltaf svo hátíðleg stund og þegar allir syngja Heims um ból við kertaljós þá kemst maður bara í jólaskap!

Svo fór ég loksins á Bridget Jones og þar sem ég átti boðsmiða fyrir tvo bauð ég Svölu ofurlyfsala með mér og við skemmtun okkur ljómandi vel. Mér fannst myndin mjög skemmtileg þótt hún væri ekkert miðað við þá fyrri - mörg frábær atriði þar!

Í vikunni fór ég líka á ráðstefnu í tungutækni sem var mjög skemmtileg og gaman að sjá hvað öll þessi tungutækniverkefni sem kynnt voru eru flott! Ég bíð svo bara eftir því að það komi umfjöllun um hana í fréttum RÚV þar sem myndatökumaður æddi inn í miðjum fyrirlestri Bjössa tungutæknis - eitthvað sem mér hefði þótt mjög óþægilegt. Svekkjandi þó að menntamálaráðherra skyldi ekki sjá sér fært að komast, maður fékk á tilfinninguna að þetta væri kannski ekki nógu mikilvægt...:(

Síðasta kennslustundin mín í dag! Þetta er búið að ganga alveg ljómandi vel, fyrir utan kannski síðasta tíma þegar ég gerði vitleysur á glærunum - en eins gott að nemendurnir voru svona klárir og gátu leiðrétt mig! Núna ætla ég því að hafa glærurnar réttar og því best að fara að byrja á þeim...

28.11.04


Myndina sendi ég
Powered by Hexia

26.11.04

September

Nei, ég veit að það er að koma desember en ég var að fatta að það er mjög skemmtilegt lag með Earth, Wind and Fire sem heitir September og ég á afmæli í september þannig að hér kemur lagið!

Svo er aldrei að vita nema maður fari að spila jólalög, aðventan er að byrja um helgina og við búin að kaupa í „krans“ sem verður nokkuð nýstárlegur í ár. Set kannski inn mynd við tækifæri.

25.11.04

Jibbí!

Ég var að vinna boðsmiða á Bridget Jones!! Fékk bréf í dag frá KB banka með miða og tilkynningu um að ég hefði unnið en ég skráði mig einmitt til leiks þar um daginn. Er bara fegin núna að vera ekki búin að fara - og hí á ykkur sem fóruð án mín... ég býð ykkur sko ekki að fara aftur! Hinir mega slást um að fara með mér :)

21.11.04

Sunnudagur

Prófið í gær gekk alveg hreint bærilega - kannski að maður reddi þessu lokaprófi bara eftir allt saman! Eftir prófið sótti Selma frænka mig og við fórum í þessa fínu afmælisveislu í sveitinni. Borðið var hlaðið af alls kyns veitingum og hafði yngra afmælisbarnið bakað helling sjálf ásamt bróður sínum - og þau bara 8 og 12 ára! Lúxus hjá mömmunni að eiga svona fyrirmyndarbörn. Svo var maður eiginlega afvelta fram að kvöldmat en þá var meiri veisla alveg ljómandi fín.

Sveitin skartar sínu fegursta þessa dagana, allt á kafi í snjó og rosa jólalegt. Ég vona að það verði svona snjór yfir öllu á jólunum en samt ekki blindbylur... það verður að vera fært í sveitina. Það væri nú samt týpískt að það yrði bara rok og rigning - en ég er samt farin að hlakka fáránlega mikið til jólanna og held ég megi það bara, aðventan byrjar nú bara næstu helgi þannig að fer að styttast í þetta!

20.11.04

Laugardagsmorgunn

Ég sit við tölvuna á laugardagsmorgni og ætti að vera að læra fyrir próf í tölfræði sem hefst eftir klukkutíma og korter. Nenni því samt ómögulega... læri hvort eð er lítið nýtt á klukkutíma! Mikið verð ég samt fegin þegar þetta próf er búið, þá verður aðeins hægt að einbeita sér að öðru - tja, eins og t.d. lokaverkefninu.

Eftir prófið ætla ég svo að fara í sveitina í afmælisveislu en nöfnurnar Þórdís eldri og Þórdís yngri eiga báðar afmæli í dag. Til hamingju með það!


Sætastir!

Eru þeir ekki sætir?



Í tilefni þess að það er laugardagur og því góð ástæða til að vera í stuði kemur hér stuðlag með uppáhaldshljómsveitinni minni, Wham! Þetta get ég hlustað á aftur og aftur... Góða skemmtun!

18.11.04

Fall og Vonbrigði

Furðulegir tónleikar í gær, alveg hreint furðulegir. Vonbrigði byrjuðu, hljómsveit sem ég hef svosum ekkert hlustað á en áttu lagið Ó Reykjavík sem er bráðskemmtilegt. Á meðan sat hálfur salur af fólki sem kinkaði kolli í takt við tónlistina. Þeir spiluðu mjög lengi og tóku uppklappslag og allt. Þá kom Dr. Gunni með nokkur lög og svo byrjuðu furðulegheitin. 10 mínútur af plötu söngvara Fall, Mark E. Smith, þar sem hann talar bara... þá kom hljómsveitin og svo hann sjálfur, vægast sagt útlifaður greyið. Manni brá soldið að sjá hann, ég hafði að vísu heyrt að hann væri sukkari og allt það en hann leit út fyrir að vera á sjötugsaldri en ekki fimmtugsaldri. Svo er eiginlega ekki hægt að lýsa þessu, maður varð að vera á staðnum. Hann ráfaði þarna um og horfði á áhorfendur sitja í sætum sínum, sönglaði á sinn einstaka hátt og var svo alltaf að fikta í græjum á sviðinu, taka alla míkrófónana og setja þá inn í trommuna og alltaf þurftu hinir meðlimirnir að laga eftir hann. Hljómsveitin sjálf var mjög þétt og góð og lögin algjör snilld en ég er hrædd um að Mark hafi munað sinn fífil fegurri - held ég... Samt er hann giftur ungu stúlkunni sem spilar á hljómborðið!
Og hvað á þetta að þýða? Fyrst er boðið upp á sitjandi tónleika á 3.200 kr. og svo stuðtónleika á þúsundkall! Fáránlegt...

17.11.04

Til hamingju Hex!

Hex hugbúnaður er að meika það þessa dagana. Fyrirtækið er komið á lista yfir 200 athyglisverðustu nýsköpunarfyrirtæki í heiminum sem er frábær árangur. 100 athyglisverðustu fyrirtækin verða svo valin í desember og vonandi verða þau þar! Svo voru þau í hádegisfréttunum og allt líka - áfram Hex!

Hmm

Take the quiz: "What Band Are You? (none of that pop shit)"

White Stripes
I like to listen to you when i want to hear intruments. I especially like Megg. Jack is pretty ugly. Sorry kiddo. I admire your talent and variety.

Ég hlakka svo til...

...ég hlakka alltaf svo tiiiil...

Nei, ég er ekki orðin geðveik og farin að syngja jólalög heldur hlakka ég bara svo óskaplega mikið til kvöldins! The Fall eru að spila í kvöld og það verður vonandi rosa gaman. Gallinn er bara sá að þegar maður er svona spenntur eru miklar líkur á að verða fyrir vonbrigðum en með því að vera samt meðvitaður um það gæti það sloppið... er það ekki? Hér er allavega eitt gott Fall lag til að koma öllum í gott skap í þessum vetrarkulda úti.

Talandi um vetrarkulda þá lenti ég einmitt í skemmtilegum torfæruakstri í gær eins og svo margir aðrir á höfuðborgarsvæðinu. Ég þurfti að keyra inn í Kópavog og til baka um sexleytið, þegar allt var stopp vegna hægrar umferðar. Þar sem ég er á svo vel útbúnum fjallabíl var þetta bara smágaman, ég spólaði allavega ekkert eins og sumir þannig að það var bara gott mál.

Svo saumaklúbbur í gærkvöldi. Mjög við hæfi að hafa saumaklúbb íslenskufræðinga á Degi íslenskrar tungu. Fullt af sögum og slúðri og frábærum veitingum - takk fyrir það!

15.11.04

Verkfall

Þetta verkfall teygir anga sína víða...

12.11.04

Stuð stuð stuð!

Tékkið á skónum!



Hvað kemur manni í meira stuð en sænskt Eurovisionlag? Ég bara spyr? Reyndar ekkert nýtt stuð þarna á ferðinni en þetta kemur mér alltaf í gott skap. Svo er ég með fleiri stuðlög uppi í erminni - eða réttara sagt inni í tölvunni - þannig að það verðu stuð hérna næstu vikurnar!

Skemmtið ykkur vel og hækkið í botn!

11.11.04

Stuð?

Ég er búin að hafa miklar áhyggjur af því hvert stuðlag morgundagsins eigi að vera, sérstaklega þar sem það er partýdagur og svona. Svo fór ég að skoða það sem ég er búin að vera að hlusta á og ekki er það nú mikið stuð... Slowblow (slow eins og nafnið gefur til kynna...), Edith Frost (líka slow), Sufjan Stevens (ehm, slow...), Cat Power (já, slow), Beck (slow plötuna hans), Bonnie Prince Billy (mjööög slow), Elliot Smith (já, hann drap sig og gerði slow tónlist) og já, fann ekkert stuð! Mig vantar nýja stuðtónlist!!! Þetta verður semsagt verkefni þar til á morgun. Ég vona að ég finni stuðið í sjálfri mér.

7.11.04

Piaf

Image Hosted by ImageShack.us



Ég fór á alveg frábært leikrit í gær, Edith Piaf í Þjóðleikhúsinu. Leikritið var skemmtilegt og aðalleikkonan, Brynhildur Guðjónsdóttir, var alveg hreint mögnuð í sýningunni. Bæði söng hún alveg snilldarlega og svo náði hún að vera svo svakalega trúverðug bæði sem lítil stelpa og sem Edith í ævilok en þá var hún 47 ára en var víst orðin eins og gömul kona. Ég mæli allavega með þessari sýningu fyrir alla þá sem hafa gaman af tónlist Edith Piaf.

Svo er bara læridagur í dag, helv.... tölfræðiverkefni sem á að skila á fimmtudag. Reyndar verður maður aðeins að kíkja út úr húsi, kannski maður kíki í Kolaportið og kaupi sér harðfisk og kannski venjulegan fisk?

4.11.04

Snjór!

Það er snjór úti og samt er ég ekki á Húsavík eins og sumir! Reyndar spáir rigningu og hita strax á morgun þannig að nagladekkin og mannbroddarnir rétt duga mér í dag...

Nú standa yfir breytingar á heimilinu, við skelltum okkur í Rúmfatalagerinn í gær og keyptum tölvuborð/hillu og sjónvarpshillu. Ekki veitti nú af með öllum þessum tækjum og tólum, digital afruglurum og svoleiðis dóti. Það þýðir að nú þarf að henda fína, gamla, hvíta Ikea skrifborðinu mínu sem ég er búin að nota síðan í barnaskóla. Ekki mikil eftirsjá af því svosum en það hefur þjónað sínum tilgangi í gegnum minn menntaferil.

Og þessi Bush þarna... bölvaður. Þessir Kanar eru ótrúlegir! Restin af heiminum (nema kannski Ísraelar) hristir hausinn yfir þessum úrslitum en Kanar virðast ekki einu sinni vita af heiminum fyrir utan Ameríku. Sussusvei segi ég nú bara!

31.10.04

Digitalis

Svona verð ég...



Ég hef varla tíma til að blogga fyrir öllu þessu sjónvarpi sem er í gangi þessa dagana! Stafrænt sjónvarp er komið inn á heimilið með yfir 30 sjónvarpsstöðvum og allt frítt til áramóta :) Sjónvarpssjúklingurinn ég er frekar ánægð með þetta allt saman þannig að ég verð sennilega upptekin öll kvöld á næstunni... að horfa á Stöð 2, Bíórásina, Private Blue eða eitthvað þaðan af skemmtilegra!

Sleit mig þó frá sjónvarpinu og dreif mig í sveitasæluna í gær þar sem ég fékk dýrindis lambakjöt af grillinu og á eftir spiluðum við manna sem ég auðvitað skíttapaði. Ég er ekki alveg með spilatæknina á hreinu, spila eiginlega nóló í hverju spili.

28.10.04

Nesið rúlar!

Já, þjónusta þeirra fyrirtækja sem ég hef skipt við í gegnum árin er einna best á Seltjarnarnesi skv. óformlegri þjónustukönnun. Í haust nefndi ég frábæra þjónustu Bílaness þegar bíllinn fór í viðgerð og nú voru það öðlingarnir í Nesdekki sem stóðu sig með prýði. Í gær hringdi Nonni sjálfur í mig og sagði að dekkin væru komin og í morgun fór ég að fá þau undir bílinn. Reyndar varð þetta ansi dýrt spaug en þó fékk ég gott verð á nöglunum (þeir fylgja sko ekki með dekkjunum...) og fékk staðgreiðsluverð á visakortið! Mjög almennilegir þarna á Nesinu:)

Svo er það æsispennandi Alias í kvöld þar sem vonda konan sem lítur alveg eins út og besta vinkona Sidney af því að hún þóttist vera hún og það var ekki hægt að breyta henni aftur er lifandi þótt hún hafi verið skotin þrisvar í síðustu seríu og reyndar líka næstum því drepin í síðasta þætti en drap svo alla í sjúkrabílnum og stakk af! Skilduð þið þetta?! Get ekki beðið...

26.10.04

hahahaha!

Myndir af samkvæmislífinu um helgina eru sérstaklega fyndnar núna hjá Baggalúti... Eiki Rö... þessir menn eru ótrúlegir!

Kalt

Ódýrt dekk



Já, það er sko kalt úti!!! Brrr, vona bara að það komi ekki hálka og vesen strax. Ég gerði tilraun til að fá vetrardekkin undir bílinn í morgun en það gekk nú ekki nógu vel. Tvö dekkin eru ónýt, stórt gat á öðru síðan það sprakk í vor og svo lak meðfram nöglunum allan hringinn á hinu... hvað á það að þýða? Þá eru naglarnir víst alltof stórir fyrir þessi dekk eða eitthvað og tímaspursmál þangað til fer að leka meðfram á hinum. Eitt dekk (já, 1 dekk) kostar 12.000 krónur takk fyrir en ég þarf að bíða eftir þeim ódýru og fínu dekkjum fram í næstu viku. Svona er að vera bíleigandi, það er víst meira en bensínið sem þarf að borga fyrir.

Var ég annars búin að segja ykkur hvað var gaman á Airwaves? Laugardagskvöldið var hreint út sagt frábært, The Stills og The Shins voru bara bestir af því sem ég sá á hátíðinni. Þið trúið því ekki hvað ég var glöð þarna um kvöldið, ég tala nú ekki um þegar ég komst óvart að því að bjórinn kostar bara 290 kr. ef maður á stúdentaskírteini! Heppin ég að vera enn í skóla...

22.10.04

Föstudagur

Hafiði tekið eftir því að ég skrifa soldið mikið um tónlist? Hmm... sennilega! Æi, þetta endar alltaf þannig hjá mér, enda svosum lítið annað við að vera þessa dagana. Airwaves er einmitt í gangi um helgina og alveg nóg að gera. Það voru tónleikar bæði í gærkvöldi og fyrrakvöld sem voru mjög skemmtilegir og svo er fullt að gera í kvöld. Þeir tónleikar sem eru búnir voru aðallega á einum stað en í kvöld vandast málið því að ég sé fram á að þurfa að flakka á milli svona 5 staða til að sjá það sem er spennandi - enda ætla ég bara að vera á bíl! Á morgun verð ég hins vegar aðallega á Gauknum og ætli maður fái sér ekki bara öl í tilefni þess og skilji bílinn eftir...

Föstudagsstuðið hlýtur því að vera með The Shins þar sem þeir verða á Gauknum annað kvöld. Njótið vel og góða helgi!

19.10.04

Fín

Ahhh, var að koma úr klippingu sem veitti sko ekki af! Hárið orðið sítt, upplitað og slitið og gráu hárin farin að skína í gegn. Það gengur náttúrulega ekki að vera þannig fyrir Airwaves sjáiði til. Verst að myndavélasíminn er ekki heima...

Svo er bara Airwaves að byrja á morgun! Það verða þá tónleikar á hverju kvöldi fram á sunnudag og svo útskrift (ekki mín samt) á laugardaginn líka. Aldeilis fjör framundan:)

18.10.04

Ónei

Nú er það nýjasta að Stranglers eru að koma í desember. Sem er kannski fínt bara... nema hvað að það er allt annar söngvari í hljómsveitinni núna en þegar þeir komu t.d. síðast. Hugh Cornwell, söngvarinn sem ku hafa stofnað hljómsveitina á sínum tíma, hætti árið 1990 og tók þá við annar söngvari. Þeir voru að spila eitthvað í París á sínum tíma (´97) og að vísu missti ég af þeim þar en þeir sem fóru voru nú ekkert yfir sig hrifnir, söngvarinn var algjör lúði sem passaði ekki alveg inn í Stranglers. Ég sel þetta samt ekki dýrara en ég keypti það... mig langar allavega ekkert rosalega að fara.

16.10.04

Dugleg stelpa

Þá er maður búinn að rífa sig upp úr eymdinni og farinn að gera eitthvað af viti! Ég er búin að taka smátörn í verkefninu aftur og ætla að halda því áfram á meðan ég er í stuði. Algjör handavinna í gangi þessa dagana sem ég hefði átt að vera löngu búin með en svona er þetta bara!

Var annars grasekkja í tvo daga þar sem hjásvæfan var í skólaferðalagi en er svo heppin að eiga góða vinkonu sem eldar handa mér á meðan að svo stendur á. Án hennar hefði ég sennilegast þurft að borða pasta með krukkusósu eins og í gamla daga...

Er líka búin að vera að hlusta á alveg yndislega plötu sem ég hvet alla til að hlusta á. Sufjan Stevens er tónlistarmaður frá Bandaríkjunum sem gerir alveg frábæra tónlist, allavega er platan hans, Seven Swans, alveg yndisleg. Svo er hann líka svaka sætur eins og sjá má af myndinni hér að neðan...


Súffi sæti

15.10.04

Snilld

Það var verið að benda mér á alveg tæra snilld. William Shatner er greinilega margt til lista lagt og er nú nýbúinn að gefa út plötu. Þar tekur hann Pulp-slagarann Common People alveg frábærlega auk annarra laga. Ég hef bara heyrt tvö laganna og er alveg stórhrifin. Hlustið á og njótið yfir helgina!

11.10.04

Ládeyða

Þvílík ládeyða sem er yfir manni þessa dagana! Svona fer haustið með mann... Fór allavega í tölfræðiprófið á laugardag og vona að það hafi gengið ágætlega, það verður bara að koma í ljós samt. Þegar það er búið getur maður líka farið að einbeita sér að öðrum hlutum, ég þarf a.m.k. ekki lengur að ná neinu upp og er komin á rétt ról þar.

Annars er dagskráin fyrir Iceland Airwaves loksins komin og lítur ágætlega út bara. Maður er náttúrulega farinn að skipuleggja sig soldið til að geta séð það sem er mest spennandi en þá þarf maður að gera ráð fyrir því að tímasetningar standist ekki (sem gerist nú yfirleitt á tónleikum) og jafnvel að það sé bara fullt út úr dyrum og maður komist ekki inn, því að þó maður eigi armband hleypir það manni aðeins inn á meðan húsrúm leyfir. Út af þessu öllu þá verður laugardagskvöldið strembið því að helst þyrfti ég að vera á 3 stöðum í einu og það er barasta ekki hægt! Á Nasa er spennandi dagskrá allt kvöldið og í Hafnarhúsinu eru Keane að spila sem mig langar að sjá. En Gaukurinn verður sennilega fyrir valinu því að þar eru The Shins að spila og þeir eru sko skemmtilegir. Nóg að gera framundan!

6.10.04

Ríkið

Image Hosted by ImageShack.us

Ég sá í Morgunblaðinu í gær að verið væri að loka Ríkinu á Seyðisfirði og flytja verslunina inn í bensínstöð. Ekki þó við hliðina á rúðupissinu, heldur í sama húsnæði. Seyðfirðingar munu vera afar óánægðir með þetta enda hefur verslunin verið í sama húsi síðan ég veit ekki hvenær og allir bara kátir með það. Þetta er ekki eina dæmið um að Ríkið flytji inn í bensínstöð. Um helgina sá ég að það var búið að flytja Ríkið á Höfn úr bara fínu húsnæði í pínulitla holu inn af Esso sjoppu. Ég fór þangað á föstudeginum og um leið og það voru komnir 3 inn í búðina gat maður ekkert skoðað í hillurnar fyrir fólki! Þar er fólk víst ekkert of ánægt með þetta og vildi fá búðina inn í Miðbæ sem er eins konar verslunarkjarni á svæðinu með stórri matvöruverslun og fleiri búðum. Þá var málið víst það að Esso gerði samning við ÁTVR um að hafa vínbúðirnar inni í sjoppunum! Þetta finnst mér bara hallærislegt. Þetta er ekki fyrsta skrefið í þá átt að hægt sé að kaupa vín með matnum, því ekki kaupir maður sér kvöldmat í Esso. Er þá ekki þægilegra að hafa vínbúðina í verslunarkjörnum sem svo víða hafa verið að byggjast upp svo fólk geti klárað dæmið á einum stað? Er kannski verið að hvetja til drykkju undir stýri? Kaupir maður sér þá bensín og bjór?? Huggulegt...

4.10.04

Mánudagur

Jæja, nú er ég að hugsa um að stoppa í bænum í nokkra daga... Helgin á Hornafirði var frábær eins og alltaf, maturinn hjá systur minni klikkaði ekki frekar en fyrri daginn þannig að ekki er maður mjórri eftir þessa helgi. Svo var líka heitur pottur hjá þeim sem var algjört æði þannig að það var vel slakað á. Og reyndar farið á diskóball líka!

En nú er bara mánudagur, brjálað rok úti og alþingisumræður í sjónvarpinu. Mikið er ég fegin að ná Skjá 1 núna! Og svo próf á laugardaginn í tölfræði:( Skemmtileg vika framundan!

30.9.04

Harbour in Hornfjord

Enginn tími til að blogga, er að fara út úr bænum... aftur. Hef ekki verið heila helgi í bænum síðan í júlí! Það eru tveir heilir mánuðir! Í þetta skiptið er það Höfn í Hornafirði þar sem systir mín kær býr. Við systkinin sem búum hérna megin á landinu förum árlega austur til að heimsækja þau og er þá líka farið á skytterí. Ekki við stelpurnar reyndar, við nennum ekki að vakna svona snemma til að skjóta fugla. En við ætlum sem sagt að leggja af stað á eftir, verst að ég er að kenna til kl. 4 og ekki getur maður víst skrópað frá því...

Föstudagsstuð verður ekki sett inn vegna af ótta við lögregluna. Svo verð ég ekkert með tölvuaðstöðu á morgun hvort eð er þannig að þá yrði það aldrei föstudagsstuð heldur. Góða helgi samt!

28.9.04

Þriðjudagur

Ég er ekki að nenna að læra og hvað gerir maður þá? Nú, fer á netið auðvitað! Helgin var rosa skemmtileg þrátt fyrir rok og rigningu framan af. Það kom slatti af löxum á land, enda dugnaðarforkar við veiðar. Þar af komu maríulax og maríuurriðar og ég landaði meira að segja laxi með hjálp stóru systur. Svo veiddi ég sjóbirting sem verður í matinn á eftir...


Image Hosted by ImageShack.us

Kajagoogoo 1983


Ég datt annars inn í skemmtilegan raunveruleikaþátt á Vh1 í gærkvöldi. Þátturinn heitir Bands Reunited og gengur út á að þáttastjórnandinn heimsækir meðlimi hljómsveita sem eru hættar og fær þá til að koma aftur saman. Í gær var hljómsveitin Kajagoogoo viðfangsefnið en það er hljómsveitin sem Limahl byrjaði í. Þegar hljómsveitin var orðin vinsæl fannst meðlimunum hún einum of mikil unglingahljómsveit, að aðdáendurnir hugsuðu meira um sæta söngvarann en tónlistina og því ráku þeir Limahl. Hljómsveitin leystist svo upp en Limahl varð rosa frægur með Never Ending Story o.s.frv. Nú, 20 árum síðar, er Limahl enn rosa sár og hefur ekki talað við hina meðlimina síðan hann var rekinn. Þeir samþykktu þó allir að koma saman fyrir Vh1 og spila á tónleikum, Limahl þurfti að leita að textunum sínum á netinu þar sem hann var búinn að gleyma þeim og allt, en þetta endaði allt vel með rosa tónleikum þar sem allir sungu saman! Merkilegt hvað tónlist getur fært fólk saman... Ég hlakka til að sjá hvaða hljómsveitir verða í næstu þáttum!


24.9.04

Föstudagsstuð

Tékkið á hárinu!



Föstudagsstuð vikunnar er með A Flock of Seagulls, snilldarhljómsveit með snilldarhár! Ef þetta kemur ykkur ekki í helgarskapið, þá veit ég ekki hvað...

Föstudagur... aftur

Það er bara alltaf föstudagur - sem er gott, er það ekki?? Ég veit ekki hvert dagarnir fara annars, þetta er ótrúlegt alveg. Nóg að gera í vikunni, tónleikarnir á sunnudaginn voru mjög góðir og fannst mér spilamennskan hjá þeim alveg frábær. Þau hefðu hins vegar mátt spila miklu lengur, ég var allavega ekki búin að fá nóg eftir þennan klukkutíma sem þau spiluðu. Og lagavalið hefði mátt vera betra líka... Samt rosa gaman og upphitunin var líka frábær.

Svo er bara búið að vera fullt að gera eins og gengur. Ég er þessa dagana að byrja í sjúkraþjálfun aftur og nú í Gáska. Mér líst bara mjög vel á það allt og alveg kominn tími á að fara að sprikla aftur eftir gott frí. Svo er það bara tölfræðin og kennslan, ég er alveg að meika það sem kennari bara... djók! Og blessað verkefnið sem ég fer nú að hella mér í aftur. Þetta er svona allt að gera sig bara sem er gott og blessað.

Helgin fer í veiðiskap og almenna skemmtun. Í dag á að fara í Kjósina að veiða í klak... ég ætla rétt að vona að veðrið lagist aðeins, en það verður bara að koma í ljós. Hele familien verður á svæðinu og góður matur snæddur og gaman gaman!

Var annars að komast að því með hjálp góðs fólks að lagið í Umferðarstofuauglýsingunni (Somewhere Over the Rainbow) er EKKI flutt af Israel Kamakawiwo'ole þar heldur ku söngvarinn í Tenderfoot syngja þetta þar svo undurfallega. Þetta er búið að taka mikið á mig og mína nánustu og gott að vera búið að fá þetta á hreint. Nú eru Tenderfoot sem sagt komnir í uppáhald og hlakka ég mikið til að sjá þá á Airwaves eins og svo margt annað.

21.9.04

Hehe

Mér finnst þetta nú bara nokkuð sniðugt hjá Ástþóri. DV má stundum alveg slaka á í „fréttamennsku“ sinni...

19.9.04

Sunnudagur

Það er alveg merkilegt hvað manni verður lítið úr verki á sunnudögum. Ég ætlaði svoleiðis að reikna tölfræðidæmi í allan dag og vera þvílíkt inni í öllu sem kennarinn talar um í tímanum á morgun en... ónei. Er búin að gera meira af því að glápa á tölvuskjáinn, hlusta á Blonde Redhead og spila kapal. Druslaði mér þó í sund þegar ég stóð upp af stólnum og fann að ég var eins og spýtukerling eftir setuna. Afskaplega hressandi að synda nokkrar ferðir og hlýja sér svo í heita pottinum á eftir. Sunnudagslæri hjá tengdó á eftir og svo tónleikar! Vibbívei!

17.9.04

Helgarstuð

Stuðlag helgarinnar hlýtur að vera með Blonde Redhead í tilefni tónleikanna á sunnudaginn. Lagið er af plötunni Melody of Certain Damaged Lemons frá árinu 2000 og ætti að koma fólki í tjúttgírinn! Kannski að ég reyni að setja inn stuðlag helgarinnar á hverjum föstudegi, hvernig líst ykkur á það?


Image Hosted by ImageShack.us

Fyrir utan tónleikana verður nú aldeilis stuð um helgina því að á morgun eru réttir! Það verður smalað og rúið og mömmukjötsúpa handa smalafólki á eftir... mmm. Svo er það lærdómurinn á sunnudag og ekkert múður! Reyndar gekk bara ágætlega að kenna í gær, mér fannst ég nú ekkert kennaraleg svosum þar sem ég beið fyrir utan stofuna með nemendum sem m.a. voru eldri en ég, en held bara að ég hafi staðið mig ágætlega. Er að hugsa um að fara að kalla mig Prófessor Valdís...

16.9.04

Tónleikar

Nú virðist vera komið að seinni tónleikahrinu ársins hjá mér. Framundan eru snilldartónleikar með Blonde Redhead, The Fall og Airwaves. Fyrir utan hvað mig langar á Damien Rice og Lisu Ekdahl en það er víst ekki á allt farið...

Blonde Redhead


Fyrst á stokk stíga Blonde Redhead, snilldarhljómsveit sem hefur komið hingað áður á upprisuhátíð Hljómalindar um árið. Þá spiluðu þeir í Laugardalshöll, sem var nú alveg glatað - alltof stór staður fyrir svona hljómsveit, enda virkaði salurinn tómur með nokkur hundruð manns. Nú á að skella þeim í Austurbæ sem er líka alveg glatað. Þetta er ekki sitjandi-tónleika-hljómsveit! Af hverju er ekki hægt að hafa þetta t.d. á Nasa? Ég hefði haldið að það ætti betur við. Ég hlakka samt rosalega til enda hrifin af öllu sem þau hafa gert.

The Shins

Í október er það Airwaves hátíðin og er ég búin að fjárfesta í passa á alla tónleikana. Ég þekki nú ekki nærri því allt sem verður þar í boði en hef þó hlustað á Keane og The Shins sem ég er mjög hrifin af. Það er bara spurning um að fara að finna sér eitthvað meira á netinu! Ég hlakka líka til að sjá eitthvað af íslensku hljómsveitunum og sá að Slowblow voru að bætast í hópinn. Reyndar hita þeir upp fyrir Blonde Redhead þannig að aldrei þessu vant eru þeir út um allt í ár!


Mark E. Smith í gamla daga

Svo eru það The Fall. Þeir hafa víst komið hingað tvisvar áður en þá var ég svona 6-7 ára og komst ekki... Þeir hafa gefið út allavega eina plötu á ári frá 1979 og á ég ekki allar plöturnar! Ég hef þó hlustað á einar 5 plötur eða svo eru þeir í miklu uppáhaldi hjá mér. Þið sjáið af þessu að það er nóg framundan og ef ég gæti myndi ég fara að sjá Damien Rice og Lisu Ekdahl en það er víst ekki í boði núna nema ég sleppi því bara að gefa jólagjafir í ár...

15.9.04

Stress

Já, það er svona að hanga bara í fríi alla daga, verkefnin sem bíða manns eru svo mörg og mikil. Bíllinn þurfti nú að bila þegar við komum að utan þannig að ég fór með hann á verkstæði í gær. Öðlingarnir hjá Bílanesi tóku hann að sér og skutluðu mér svo heim þar sem ég varð hálfgerður strandaglópur því ekki geng ég langar vegalengdir ennþá. Í dag var svo bíllinn tilbúinn og það var bara náð í mig aftur! Þvílík og önnur eins þjónusta. Ekki nóg með það heldur var hliðarspegillinn líka brotinn á bílnum og ég spurði hvort að það þyrfti að kaupa alveg nýtt stykki. Neinei, sagði maðurinn, ég get bara sent þetta fyrir þig í pósti norður til kunningja míns sem býr til spegil í þetta fyrir skít og kanil. Þannig að nú er spegillinn á leiðinni norður með pósti og ég fæ hann aftur í næstu viku þar sem þeir skella honum bara á bílinn! Hann hefði auðveldlega getað sagt mér að kaupa nýtt stykki á 30.000 kr. í stað þess að hafa fyrir því að senda stykkið með pósti norður og setja í seinna. Og þetta kostar mig svona undir 2000-kalli. Ég mæli sem sagt með Bílanesi úti á Seltjarnarnesi, ég hef oft farið þangað með bíla í viðgerð og alltaf fengið toppþjónustu.

Annars er ég búin að vera að undirbúa fyrstu kennslustundina mína. Þá fyrstu sem ég kenni. Ég lét plata mig í að vera aðstoðarkennari í vetur á meðan ég var úti. Ég sat í makindum úti á svölum með bjór í hendi þegar síminn minn hringdi og var þá á línunni maður sem vildi endilega fá mig til að kenna aðeins í vetur. Ég var í svo góðum fíling að ég játaði umsvifalaust og nú sit ég sveitt að skrifa fyrirlestur um hljóðeðlisfræði! Reyndar eru þetta alls 3 skipti sem ég á að vera með fyrirlestur en annars er þetta aðallega að fara yfir heimaverkefni vikulega og vera með aukatíma þar sem farið er yfir þau. Ég hef verið aðstoðarkennari áður en þá þurfti ég ekkert að kenna heldur bara að fara yfir verkefnin þannig að ég er bara ansi stressuð hreint núna.

Svo er það blessuð tölfræðin. Ég fór í fyrsta tímann í henni og skil bara ekki baun í bala. Ég var aðeins búin að lesa yfir efnið sem var búið að fara í þannig að ég kom nú ekki alveg af fjöllum en ég er ekkert farin að reikna ennþá... þannig að það er næst á dagskrá. Út af öllu þessu hefur svo töluverkefnið minn setið á hakanum í nokkra daga en vonandi fyrirgefst mér það. Ég fer að gera almennilega stundatöflu sem gerir ráð fyrir öllu þessu, svo er bara að sjá hvort hægt verður að fara eftir því...

14.9.04

Veiði

Þá er veiðiferðinni lokið og kannski hægt að fara að snúa sér að skólanum og vinnunni aftur! Krossáin var alveg yndisleg og veiddust 3 laxar í ferðinni og nokkrir litlir sjóbirtingar. Með veiðinni komum við ánni í 200 laxa en metið þar er 212 að sögn Trausta bónda að Á. Við fengum ágætisveður, reyndar var ansi kalt í gær og vindasamt allan tímann, en lopapeysan góða bjargaði því alveg. Veiðihúsið var líka mjög flott, burstahús sem stendur alveg við árbakkann þannig að maður sofnar við árniðinn. Húsinu er líka vel haldið við og var þetta eins og flottasti sumarbústaður. Við ákváðum í lok ferðar að þetta yrði sennilega bara árlegur túr hjá okkur og ég er strax farin að hlakka til næsta árs. Myndir úr ferðinni eru væntanlegar á síðu siggamusar en hann veiddi einmitt síðasta laxinn en Jói veiddi þann fyrsta.

10.9.04

Fjú

Maður hefur bara ekki tíma til að blogga þessa dagana. Nóg að gera síðan ég kom heim, ég er búin að vera að koma mér af stað í vinnunni sem er duldið erfitt eftir svona langt frí, skoða hvort ég sé búin að missa svakalega mikið úr skólanum (sem er nú ekkert svakalegt held ég), eiga afmæli og halda upp á það og undirbúa veiðiferð. Á morgun erum við að fara að veiða í Krossá á Skarðsströnd fram á mánudag. Hún er búin að vera mjög góð í sumar og nú er búið að rigna fullt þannig að vonandi verður mokveiði. Svo fer ég nú að byrja í þessum skóla og svona... alveg satt!

9.9.04

Afsakið

Afsakið útlitið á síðunni, myndirnar voru víst aðeins og stórar og tenglarnir því allir neðst á síðunni...

Annars langar mig að vekja athygli á nýja tungutækniblogginu, http://tunga.hexia.net, en þar verður örugglega margt gáfulegt skrifað um tungutækni... vonandi allavega.

8.9.04

Heim

Þá er þessari vitleysu lokið og alvara lífsins að taka við. Nú er það bara skóli, kennsla og vinna á fullu. Og úti bylur regnið á glugganum... úff. En fríið var yndislegt og afar nauðsynlegt fyrir líkama og sál. Ég læt nokkrar myndir flakka með og af þeim má sjá að þetta snerist mest um sólbað og drykkju - eins og almennileg frí eiga að gera!




Cocoa Puffs lestin

Með þessu fórum við í bæinn daglega

Image Hosted by ImageShack.us

Lesið við hótelið

Ég sit ofan í sundlauginni!

Sundlaugarbarinn

Komið inn í bæinn

Nessebar

Svona býr fólkið þar

Lödur í Nessebar

Meiri lada

Löggan alltaf traust

Ahhh

Útsýnið af svölunum okkar

Og svona gekk lífið nú bara fyrir sig dag eftir dag. Við enduðum svo í Kaupmannahöfn þar sem við nutum lífsins í Tívolí (nýi rússíbaninn er geggjaður!), á Strikinu, í Kongens Have, Nýhöfn og almennt í góðum fílíng bara.

6.9.04

Tìvolì tìvolì tìvolì-lì-lì!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

5.9.04


Sidasti kokkteillinn i Bulgariu
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

4.9.04

Smulgaria

Sidasti dagurinn herna er ekki heitur, thad er eiginlega bara gott ad thad er skyjad nuna, annars vaeri ekki lift. Hongum bara a hotelinu i dag thar sem vid forum um 7 hedan. Eins og eg sagdi her adur tha er thetta alveg ordid gott, eg hefdi ekki viljad vera lengur herna. Ekki thad ad thetta hafi verid leidinlegt, alls ekki, en madur er odinn threyttur a lelegum hushljomsveitum a hverjum einasta veitingastad (nema i Nessebar) og almennt lelegri og havaerri tonlist ut um allt. Svo er madur buinn ad fa yfir sig nog af Thjodverjum. Mikid hrikalega eru their leidinlegir turistar! Their eru svo frekir og hrokafullir ad thad halfa vaeri nog... uff! Og tho ad throngar speedo-sundskylur, yfirvaraskegg og sitt ad aftan se fyndid i svona viku, tha getur madur nu ekki endalaust hlegid ad thvi. Tho ad thad se eitthvad i tisku nuna... Thad verdur gaman ad koma til Kaupmannahafnar og stoppa thar i nokkra daga, thar heyrir madur vonandi goda tonlist - eda enga tonlist eins og a Naesta bar. Og ser venjulegt folk. Ekki halfbert i Speedo. Tschus von Sonnenstrand!
Thà er sìdasti dagurinn ì Bùlgarìu runninn upp. Sìdasta vika hefur verid mjög fljòt ad lìda en nù er thetta ordid gott. Gaman ad koma til Köben og stoppa thar.

SMS sendi ég
Powered by Hexia

3.9.04

Bingòkvöld! Vùhù!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

òmægod! Ég heyrdi ìslensku! Eins gott ad passa sig à hvad madur segir...

SMS sendi ég
Powered by Hexia

1.9.04

Erum ì Nessebar ad fara ad borda og hvìlìk fegurd! Sòlin er farin ad lækka à lofti og vid höfum geggjad ùtsyni yfir sjòinn og sjàlfa Sòlarströnd.

SMS sendi ég
Powered by Hexia

31.8.04

Bingò smingò, unnum ekkert. Jòi komst thò ansi nàlægt thvì ad vinna vìnflöskur tvisvar. Einn sèns eftir à föstudag!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Heitt... get ekki... hugsad...

SMS sendi ég
Powered by Hexia

30.8.04

Bulgaria

Onnur tilraun til ad blogga hedan fra Bulgariu. Eg er fluin inn ur hitanum en thad spair vist rigningu a eftir thannig ad thad kaelir mann adeins fyrir kvoldmatinn. Eg sa ad einhver var farinn ad spyrja um bingoid sem eg nefndi herna fyrr. Thannig var thad nu ad i sidustu viku forum vid a ansi finan stad sem heitir Tropicana og er adallega sottur af Bretum. Finn stadur sem vid hofum oft bordad a. Thar sem vid erum ad klara matinn okkar setjast hja okkur tvenn skosk hjon sem spyrja svo hvort ad vid seum ad fara ad spila i bingoinu. Hvada bingo segjum vid audvitad en tha kemur i ljos ad tvisvar i viku fyllist stadurinn af odum Bretum sem vilja spila bingo! Ad sjalfsogdu keyptum vid okkur mida og spiludum med af kappi. Spilad var a 5 mida, ekki spjold, og a fyrstu 4 midunum voru verdlaunin ogrynnin oll af afengi - naestsidasti midinn gaf t.d. 8 afengisfloskur i verdlaun held eg, gin, vodki, koniak, visky, kampavin o.fl. Vid vorum eiginlega hraeddust vid ad vinna thad! Adalverdlaunin voru hins vegar peningaverdlaun sem fara eftir thvi hversu margir taka thatt. Thetta kvold var metkvold og verdlaunin einar 1500 levur (1 leva = 45 kr.). Thad hefdi nu verid gaman ad enda soguna a thvi ad segja ad vid hefdum unnid en svo var nu ekki, eg hef alltaf verid oheppin i bingoi. Thetta var hins vegar mjog gaman og vid aetlum eiginlega aftur annad kvold... Rosa djamm sem sagt a okkur!

Eg aetla svo rett ad vona ad thessi saga komist inn annars verd eg frekar ful!
Erum aftur komin à sundlaugarbakkann ad kæla okkur nidur en förum örugglega aftur ì Nessebar ad skoda meira àdur en vid förum heim.

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Nessebar er alveg ofsalega fallegur bær thar sem fornminjar eru à hverju götuhorni. òlìkt Sunny Beach bùa lìka adrir en tùristar thar!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Sennilega er heitasti dagurinn hingad til ì dag og thà fòrum vid à stjà! Vid fòrum til Nessebar sem er einn elsti bær Evròpu, frà thvì löngu fyrir Krist.

SMS sendi ég
Powered by Hexia

28.8.04

Thad hefur lìtid farid fyrir sòl ì dag. Vöknudum vid svakalegt thrumuvedur ì nòtt og thurftum thvì ad hvìla okkur vel ì dag. Gerdum thvì ekkert!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

26.8.04

Gràtgràtgràt! Ég var bùin ad skrifa fullt skemmtilegt à bloggid en svo gat ég ekki sett thad inn og allt thurrkadist ùt! Pirr:-(

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Sama blìdan hèr og gott ad sòla sig. Thad er internet à hòtelinu thannig ad næst thegar èg kìki à thad ætla èg ad blogga um bingò og fleira!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

25.8.04

Erum ekki daud, bara löt og med sòlsting!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

24.8.04

Jà, og thetta er bara lìkamlegt hjà okkur Boris! Ekkert meira!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Loksins brunnum vid adeins hèrna ì sòlinni! Aloe vera bjargar thvì nù. Annars gott tsjill à strandbar, nennum ekki ad gera neitt gàfulegt ì dag...

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Bongòblìda ì dag og vid liggjum eins og skötur à sòlstòlum. Bùid ad rigna med thrumum og eldingum tvö kvöld og gàrungarnir farnir ad kalla stadinn Rainy Beach!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

23.8.04

Svo fòr èg nù ì nudd à hòtelinu ì morgun. Nuddarinn heitir Boris og hlustadi à ljòmandi fìna Whitney Houston kassettu à medan hann nuddadi mig! Fìnn nàungi!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Thà er adeins farid ad kòlna, smà vindur og frekar skyjad. ì gærkvöldi fòrum vid ì Sunny Beach ad borda en thangad komumst vid med "cocoa puffs" lestinni!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Eftir matinn ì gær skall svo à thrumuvedur fram à kvöld en thad lìtur nù ekki ùt fyrir svoleidis ì dag, ekki nògu heitt.

SMS sendi ég
Powered by Hexia

22.8.04

Er ekki bara fyndid ad Sex on the beach kosti 200 kr.? Kokkteillinn sko...

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Ahhh, lìfid er yndislegt! Hòtelid er alveg fràbært og hitinn um 30 stig thar sem vid sitjum vid sundlaugarbakkann. Bjòrinn à minibarnum kostar svo bara 90 kr!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

20.8.04


Godur i Koben!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

19.8.04

Útlönd!

Á morgun fer ég til útlanda! Jibbíjei!!!! Köben á morgun, Sunny Beach Búlgaríu á laugardag. Kem ekkert aftur fyrr en í september einhvern tímann. Ég ætla samt að reyna að setja eitthvað skemmtilegt hérna inn á meðan, senda kannski eitt og eitt sms og hver veit nema þeir séu svo tæknivæddir í Búlgaríu að það séu netkaffihús þar? Hins vegar verða myndir hér og á myndasíðunni okkar ekki frá Búlgaríu þar sem ekki er gprs samningur við það land. Það koma samt örugglega myndir frá Köben, því get ég lofað. Síjú!

Verðbréfablogg

Þetta er alveg furðulegt. Allt í einu er bloggið mitt komið í e-r verðbréfaviðskipti! Hmm, skil ekki alveg. Kannski að vinkonan mín viðskiptafræðingurinn skilji eitthvað í þessu?

18.8.04

Brennslan

Jamm, bara tveir dagar í utanlandsferð. Ég er orðin svo spennt og kvíðin og alltsaman en hlakka bara mest til samt. Stúss í gangi þessa dagana, kaupa gjaldeyri, fara í apótek, taka bækur á bókasafni, þvo og pakka! Ekki leiðinlegt stúss samt.

Fór annars á Kaffibrennsluna í gærkvöldi til að borða en þangað hef ég ekki farið í einhver ár. Soldið sorglegt hvað sá staður er staðnaður, það hefur nákvæmlega ekkert verið gert fyrir hann síðan hann var opnaður. Það er allt orðið frekar reykmettað og sjoppulegt þarna. Maturinn var alveg ágætur samt en við þurftum að bíða í 40 mínútur eftir honum - ekki vinsælt hjá svöngum stúlkum. Ég geri ráð fyrir að það hafi þurft að slátra kjúklingnum fyrst en við það hefur honum brugðið svo að bringurnar skruppu saman, a.m.k. voru þær ekki stórar hjá okkur. Mæli sem sagt ekki með Brennslunni ef þið viljið fá kaffihúsamat, þá vel ég frekar gömlu góðu Vegamót.

2 dagar...

Sól!

Veðurspáin næstu daga í Búlgaríu!

16.8.04

Helgin

Jæja, það fer nú bara hrollur um mann í þessum 14 stiga hita úti... kröfurnar eru orðnar svo svakalegar. Þetta er kannski ágætt, það er þá kominn vinnufriður fyrir veðri og að baki alveg frábær löng helgi.

Eins og sést á færslunni að neðan stakk ég af úr bænum á fimmtudag, ég hreinlega gat ekki hugsað mér að hanga í borginni vitandi af iðandi lífi í sveitinni og Jóa í veiðitúr. Maður verður stundum að hugsa um andlega vellíðan líka. Fram á laugardag átti ég yndislegar stundir í sveitinni þar sem var setið á nýlegum palli í Dísukoti, legið á dýnu í sólbaði og farið í lautartúr og berjamó inn með Fossá. Og að sjálfsögðu snæddur ljúffengur matur úr potti og af grilli. Á laugardag fór ég síðan austur á bóginn þar sem við Anna Katrín, Svala og Kata dvöldum yfir nótt að Loftsölum við Dyrhólaey, stórkostlegu húsi sem frænka Önnu var svo elskuleg að lána okkur. Þar tók við meiri sól og blíða, sólbað, öl, vín og góður matur að hætti snilldarkokksins Önnu Katrínar. Útsýnið var til jökla, Reynisdranga, Dyrhólaeyjar og sjávar og alveg einstaklega gott fyrir líkama og sál að fá að koma á þennan stað. Því miður þá varð stafræna vélin batteríslaus og því ekki hægt að birta myndir hér af húsinu og umhverfi þess. Vonandi náði Svala nokkrum myndum... Takk fyrir mig Anna Katrín!

12.8.04

Ég gefst upp! Farin ì sveitina!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Heitt

Sól sól sól

Vá hvað er erfitt að hugsa í svona hita. Það eina sem kemst að er „úff, hvað mér er eitthvað heitt...“ Er að rembast við að gera gáfulegar reglur um tölustafi eins og: „ Ef á eftir tölustaf kemur ára/árs/mánaða/vetra þá er talan í eignarfalli karlkyni“. Hljómar alveg ágætlega þar til fólk fer að skrifa 4ra og 2ja og svoleiðis vitleysu... Samt svo fáar tölur þannig. Ég ætla nú ekki að hanga lengi í dag, það er bara allt of gott veður! Svo eru eitthvað grunsamlega fáir mættir hérna, kannski er frí og ég vissi ekki af því ;o)

11.8.04

Bleik

Rosa gaman á Pink! Allir í bleiku nema Pink sjálf. Þótt það sjáist kannski ekki á myndinni af okkur frænkum þá var ég sko með eitthvað bleikt, ég var með bleika teygju í hárinu og með bleikt naglalakk! Þetta var samt mjög fyndið hvað allar stelpurnar voru í einhverju bleiku... Hitinn var þó svakalegur sökum hitabylgju og leið yfir margar smápíurnar. Hins vegar var mjög skrýtið að það var ekkert uppklapp! Reyndar var hún búin með alla slagarana þannig að ég veit ekki hvað hún hefði átt að taka í viðbót. Við ætluðum að vera rosa sniðugar og fara fyrir uppklapp svo við lentum nú ekki í einhverri örtröð á leiðinni út en þá vara bara kveikt og opnað út... mjög skrýtið allt.

Leiðindadagur framundan í fallegu veðri. Jarðarför á eftir í Grafarvogi og í Mogganum stendur að ég eigi barn með einhverjum Ingva og að Jói búi með Ásdísi. Soldið leiðinlegt samt að Ásdís skyldi svo stinga af með Ingva og barnið mitt til Danmerkur - skamm skamm!

10.8.04


#
Þetta sagði ég
Powered by Hexia

#
Þetta sagði ég
Powered by Hexia

#
Þetta sagði ég
Powered by Hexia

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Þriðjudagur

Vú, hitabylgja á þriðjudegi - týpískt! Og það á þriðjudegi sem ég ætla að gera rosa mikið, er að klára í vinnunni og fer svo á Grensás í sundleikfimi - sem er inni :o( Verð þar til 3 (þrír, þrjár, þrjú?) og sæki svo Þórdísi sem er að koma í bæinn að sjá Pink! Við ætlum að kaupa e-ð bleikt fyrir tónleikana, ég á ekkert í bleiku þannig að það er möst.

Helgin var stórfín, ekki mikið mál að passa þessi börn! Ég ætla bara rétt að vona að mín börn verði svona mikil fyrirmyndarbörn. Það var reyndar hitabylgja í sveitinni um helgina, hitinn fór í 23 stig en það vantaði samt sólina. Það hefði verið fínt að næla sér í smálit áður en haldið er út, þá brennur maður minna þar. Jæja, farin!

6.8.04

2 vikur

Mmm!
Hótel Kotva, Búlgaríu

Í dag eru bara tvær vikur í sólina! Að ofan má sjá hvernig við Jói ætlum að sitja við sundlaugina í góða veðrinu - ekki þrumuveðrinu sem virðist geisa þar þessa dagana samt. Ég bendi áhugasömum á ferðatöskutilboð í Byko, það er alveg hægt að koma einhverjum í þær, ég fæ allavega töskur þaðan í afmælisgjöf ;o)

Image Hosted by ImageShack.us

Grislingarnir Árni Steinn og Heiða María


Enn ein sveitahelgin framundan, ég ætla að hjálpa til með tvo grislinga sem verða þar, aðallega verð ég að elta þennan minni, stóra systirin bjargar sér nú sjálf enda vinnukona hjá Önnu frænku sinni! Hafið það gott um helgina, ég ætla allavega að gera það :o)

Nanananana

Smá stuð á föstudegi (hafið hljóðið á).

5.8.04

Voldemort

Sæti...

Ralph Fiennes á víst að leika Voldemort! Að mínu mati er þessi leikari alltof sætur til að leika þetta illmenni... ef menni skyldi kalla. Reyndar hefur hann nú ekki alltaf „leikið“ fallega menn, eins og t.d. í Red Dragon og hann er nú alveg góður leikari líka. Og mynd með Gary Oldman og Ralph Fiennes saman, namminamm:p Hlakka til!

Topplaus

Ætli þetta sé svona líka í Búlgaríu? Ef svo er þá er nú eins gott að fara að koma sér í form!

4.8.04

Jæja stelpur

Er þetta nóg?

3.8.04

Þriðjudagur

Skrýtið að mæta aftur í vinnuna eftir langa helgi sem þessa, frí á föstudag og mánudag og svo allt í einu kominn þriðjudagur. Reyndar var það bara fínt, ég er að ná mér upp úr verkefnakrísu síðustu viku og er að lesa yfir allar setningarnar, leiðrétta og flokka - svaka fjör (í alvörunni!). Helgin var líka svo róleg að það var ekki til slappleiki í mér í morgun. Vídeó á föstudagskvöld, matur hjá pabba og mömmu í sveitinni laugardagskvöld (farið að sofa um miðnætti) og meira vídeó sunnudagskvöld. Horfði á The Missing, Dawn of the Dead og Mystic River (loksins!) að ógleymdri Election í sjónvarpinu í gær. Svona helgar eru nauðsynlegar líka!

Vei!

Nú get ég sent myndir beint á bloggið mitt! Það borgar sig að vera að vinna með fólkinu sem stjórnar þessu :o)

Myndina sendi Ég
Powered by Hexia

31.7.04

Myndz

Nýja græjan


Þá er kominn myndavélarsími á heimilið. Jói fékk sér nýjan síma í gær þar sem sá gamli var algerlega að niðurlotum kominn (ekki einu sinni hægt að senda sms!) og kom þá tilboð Símans á símum að góðum notum. Þar sem ég get ekki sett myndir úr hans síma á bloggið mitt (allavega tókst það ekki í gær) þá opnuðum við nýja síðu með myndum úr símanum. Vonandi verður svo hægt að setja þar inn myndir frá Búlgaríu en til þess þarf víst að vera GPRS... held ég. Það kemur bara í ljós.

30.7.04

Jæja þá...

Ég vildi kannski pínu að ég væri fyrir norðan eða austan...

Dísan 2004

Ooojj hvað mig langar ekki að vera í útilegu núna! Það stefnir í mestu rólegheitahelgi hjá mér, enda var vel tekið á því þá seinustu... Ein hugmyndin var reyndar að fara á Höfn en það hreinlega spáir ekki nógu vel til að hendast þangað. Fyrir utan alla umferðina á vegunum og allt það. Í bænum verða fullt af Innipúkum en ég nenni ekki þangað þannig að það endar sennilegast á því að við förum í Kjósina þar sem Dísan 2004 verður haldin í Dísukoti! Mjög kósí þar sem bara pabbi og mamma verða heima um helgina... Ef fólk er á ferðinni um Kjósina má alltaf hafa samband og fá að henda á grill!

Svo er þetta ekki svo galið fyrir þá sem eru á ferðinni!

29.7.04

Það hlaut að vera...

Það var verið að benda mér á frétt þar sem segir að hætt hafi verið við seinni tónleika Pink og 50 Cent verði færðir í Laugardalshöllina í staðinn fyrir Egilshöll. Ég get nú ekki sagt að það komi mér á óvart. Þetta tónleikaár er búið að vera með ólíkindum og ljóst að ekki getur orðið endalaust uppselt á þetta alltsaman. 50 Cent hefur ekki jafnbreiðan aðdáendahóp og t.d. Metallica sem er búin að vera starfandi í yfir 20 ár. Þótt bæði 50 Cent og Pink séu risastór úti í heimi og kannski hér líka þá er þetta bara svo lítið land að ekki er hægt að ætlast til þess að 10.000 manns sjái hvora tónleika á sama tíma eftir allt sem er búið að vera! Sjálf er ég svo að fara á Pink, pabbi bauð mér og Þórdísi frænku sem er 11 ára og er að fara á sína fyrstu rokktónleika. Ég er rosalega stolt að vera sú sem fer með henni!

Bleika pían

28.7.04

Krísa

Ég er haldin alvarlegri verkefnakrísu þessa dagana. Vissulega fann ég eitthvað lesefni og get dundað mér við að finna meira á næstunni en hins vegar er ég komin með nokkur þúsund setningar sem ég veit bara ekkert hvað ég á að gera við! Það er svo margt sem ég þarf að gera en veit ekki hvar ég á að byrja. Þá blogga ég bara á meðan.

Á föstudaginn eru svo þrjár vikur í þetta! Þá verður gaman að lifa. Tvær vikur í (vonandi) sólinni í Búlgaríu, syndandi í Svartahafinu og drekkandi Zagorka. Mmmm.

Hvar

Já og svo er auðvitað hvar.is. Alltaf er ég seinust allra að frétta af svona hlutum eða allavega að tileinka mér að nota þá.

Svo er Hvar líka staður í Króatíu eins og Viljandi er staður í Eistlandi.

27.7.04

Kluwer

Alltaf lærir maður nú eitthvað nýtt. Ég er búin að vera að leita að greinum til að lesa í sambandi við lokaverkefnið mitt og satt að segja ekki fundið mikið þar sem Þjóðarbókhlaðan hefur takmarkað efni um tungutækni að geyma. Ég hef legið á netinu og gúgglað á fullu og rekist á eitt og annað þar en bölva því alltaf annað slagið að hafa ekki aðgang að almennilegum greinum hér á þessu skeri. Þá kemur snillingurinn hún Helga og spyr „hefurðu ekkert fundið á Kluwer?“ „Hu?“ spyr ég auðvitað og kem alveg af fjöllum. Þá er til nokkuð sem heitir Kluwer Online sem hefur að geyma fjöldann allan af hvers kyns tímaritum og það besta er að aðgangur að greinunum er öllum Íslendingum opinn, þökk sé Menntamálaráðuneytinu okkar! Þar er meðal annars að finna International Journal of Speech Technology þar sem margt kræsilegt er að skoða. Reyndar rámaði mig eitthvað í að hafa séð eitthvað um svona gagnasöfn á vef Bókhlöðunnar (undir „gagnasöfn!“) en þar er svo mikið af alls konar dóti að maður veit ekkert hvað er gott að nota. Ef þið eruð í hvers kyns rannsóknarvinnu eða bara langar að nördast kíkið þá á þetta.

Blond

Er Orlando Bloom að virka sem James Bond? Reyndar á framhaldsskólaárunum þannig að það er kannski í lagi. Samt...

25.7.04

Sunnudagur

Jájá, alltaf sniðugt að geta sent sms beint á bloggið... ég er bara pínu fegin að eiga ekki myndavélarsíma! Ég vil líka taka það fram að síðustu tvö skilaboðin voru ekki skrifuð af mér heldur stal einhver ónefnd símanum mínum til að skrifa (blikk blikk...) Annars var mjög gaman, matur hér heima þar sem við buðum sænsk/íslensku pari í mat og eftir það var ég svo kurteis að stinga af til að fara í partý hjá Önnu Katrínu. Þar kom bæjarpúkinn upp í mér og fór ég því á Sirkus. Fyrri færslur segja allt um gleðina þar!

Í dag var nú öllu heilsusamlegri afþreying í gangi þar sem við fórum í sveitina með Snorra litla (4 ára)  bróðursyni Jóa og foreldrum hans og ömmu.
 
Snorri í sveitinni
Þetta er hann Snorri
 
Það þótti þeim litla ekki leiðinlegt - einn tuddi skírður (Skorri), farið á hestbak og litlir fiskar veiddir.
 
Snorri og Ingvi á hestbaki
Hetjan á hestbaki

24.7.04

Kvedja sirkuspìurnar

SMS sendi Valdís
Powered by Hexia

Bitch i want you bitch

SMS sendi Valdís
Powered by Hexia

Ég elska vini mìna!

SMS sendi Valdís
Powered by Hexia

Stòladans!

SMS sendi Valdís
Powered by Hexia

Vìha! Er à djamminu:-)

SMS sendi Valdís
Powered by Hexia

Vì!

SMS sendi Valdís
Powered by Hexia

23.7.04

Arrrgh! Hata Ikea ì augnablikinu:-( Ætladi ad kaupa fleiri geisladiskahillur eins og vid eigum en thà er sà litur hættur! Typìskt...

SMS sendi Valdís
Powered by Hexia

Ekki alveg...

Ekki myndi ég tíma rauðvíninu mínu í eitthvað svona!

Jahérna!

Fyrst þetta og nú þetta! Hvað er í gangi?

22.7.04

Likkvid lönsj

O, það er svo gaman á fimmtudögum þegar það er sól! Þá fara Hexarar gjarnan í „liquid lunch“ á Vegamótum sem er bara snilld. Nema núna fór sólin um hádegi og nokkrir litlir regndropar skvettust á borðið en þá var bara farið inn. Snilldarmatur eins og alltaf. Er farin heim að leggja mig eftir ósköpin...

Jafnrétti...

Hvaða rembingur er nú þetta svona á 21. öldinni??

Myndir

Það eru komnar fleiri myndir af Snæfellsnesi hjá Svölu. Það sést betur þar hvað var svakalega fallegt þarna! Já, og hvað ég á svakalega fallega vini;)

Veiðiferð

Mmm, fór í fyrstu veiðiferð sumarsins í gærkvöldi, alla leið upp í Elliðavatn. Við skötuhjúin drifum okkur af stað í góða veðrinu og komum við að kaupa nesti - mjög vondan Subway. Er alveg komin með ógeð af Subway í bili. Héldum svo að vatninu og plöntuðum okkur þar með stöng og makríl (sem beitu, ekki nesti). Fiskurinn ullaði mikið á okkur og borðaði flugur en ekki vildi hann bíta á. Á endanum þegar ekki var orðið þverfótað fyrir forvitnum krökkum og öðrum veiðimönnum gáfumst við upp og fórum heim. Yndislegur bíltúr samt sem áður og hressandi að sitja aðeins úti og hlusta á fuglasöng og horfa á kanínur skoppa um... hlakka til að komast í alvöru veiði í haust.

21.7.04

""

Já, og hvernig gerir maður íslenskar gæsalappir??

Döö

Gemsinn minn er búinn að vera skrýtinn í allan dag, ég hef ekki getað hringt úr honum og það er eins og það sé aldrei samband, kemur bara „no access“ á skjáinn. Ég hringi í þjónustuver Símans og leita hjálpar og þar er mér bent á að slökkva á símanum og kveikja aftur. Auðvitað var það málið! Það virkaði! Ég held alltaf að það sé eitthvað meira vesen hvort sem er með tölvuna eða símann! Vildi bara deila þessu með fólki - ef eitthvað bilar prófiði þá að slökkva og kveikja á tækinu, það virkar oft...

Sólbað

Æ, ég vildi að svalirnar mínar myndu ekki snúa í norður... þá væri ég í sólbaði. Ætla samt að fara út á eftir, alveg satt!

20.7.04

Símblogg

Snillingarnir í Hex eru með símblogg sem ég mæli með. Sérstaklega skemmtilegt ef maður er með myndavélasíma (sem ég á eftir að fá mér...). Maður skráir sig á simblogg.is og getur þá sent sms á bloggið, talað inn á það eða sent myndir beint úr myndavélasíma. Ef þið eruð að blogga, tékkið á þessu.

#
Talskilaboð sendi Valdís
Powered by Hexia
Nù get èg bloggad med sms:-)

Örbloggfærslu sendi Valdís
Powered by Hexia

Þessir Kanar...

Aumingja Linda!

19.7.04

Snæfellsnes

Snæfellsjökull og Arnarstapi  
Snæfellsjökull í öllu sínu veldi

Þá er helginni lokið og þvílík helgi! Ég lagði af stað á Snæfellsnes á laugardag í einstakri veðurblíðu og byrjaði á að koma við hjá Jóa og strákunum þar sem þeir voru í veiðiferð við Núpá. Sögur af þeirri ferð má nánar lesa um hjá siggamusi. Þar fékk ég skilaboð um að göngugarparnir væru hálfnaðir með ferð sína yfir Jökulháls þannig að ég brunaði af stað til að hitta þau. Ég fór á mínum fjallabíl leiðina sem þau gengu, framhjá Sönghelli alveg upp að jöklinum og eftir hverja brekku tók ég andköf yfir náttúrufegurðinni og þótt ég væri pínu fegin að hafa ekki þurft að labba allar þessar brekkur hefði það nú samt verið gaman að getað notið útsýnisins í rólegheitunum. Í staðinn stöðvaði ég bílinn öðru hverju til að vippa mér út og taka myndir sem  þó náðu ekki alveg að fanga fegurðina.

Útsýnið í austurátt Útsýni til Reykjavíkur Séð yfir Arnarstapa Toppurinn á jöklinum
Útsýnið af toppnum

Á niðurleiðinni hitti ég þreytta en sæla göngugarpa sem þáðu far síðasta spölinn þar sem tvísýnt var um að næðist fyrir lokun í sundlaugina í Ólafsvík. Það hafðist nú allt og var það vel þegið að skola rykið af sér þar.
 
Allir hreinir og fínir!  
Göngufólkið eftir sund

Þá var að ferja fólk á Arnarstapa þar sem enginn nennti að labba til baka (skil það nú ekki!). Ég keyrði með fullan bíl af fólki vestur fyrir nesið þannig að þegar komið var að Arnarstapa var búið að fara hringinn í kringum Snæfellsjökul - ekki slæmt dagsverk það.
 
 Snæi
Jökullinn hinum megin frá
 
Svo var grillað og drukkið og sungið fram á rauða nótt og í blíðviðrinu í gær fannst mér bara eins og ég hefði gengið með þeim alla leiðina. Kannski var það svefnleysið og gallaða vindsængin... kannski ekki. Hellnar voru skoðaðar í gær og síðan haldið heim á leið.
 
Grillið undirbúið Allir að grilla Hrafn sýndi snilldartakta Arnarstapi Arnarstapi Hellnar
 
Veðrið átti stóran hlut í því hversu ferðin var vel heppnuð en ekki minni hlut átti félagsskapurinn. Ég legg það hér með til að göngugarparnir velji sér alltaf gönguleiðir sem ég get líka farið í - á bíl.