31.3.05

Sumarið

Ég hlakka mikið til sumarsins, þá verður prófstressið búið og sólin (vonandi) komin. Ég tala nú ekki um þegar ég er búin að fá sumarvinnu líka:) Já, í sumar verð ég líklegast í Árnagarði að vinna annað hvort að tungutækniverkefni eða málfræðirannsóknum. Tungutækniverkefnið snýst um að gera íðorðasafn fyrir tungutækni og verð ég í því allavega fyrri part sumars. Ef peningur fæst svo í það allt sumarið þá verður það sumarvinnan mín. Ef ekki þá sný ég mér að málfræðirannsóknum að einhverju leyti, sennilega einhverju tengdu setningafræði. Meira veit ég í raun ekki en hef lagt örlög mín í hendur málfræðiprófessorunum í Árnagarði að sinni.

Svo styttist í Finnland. Ég hef reyndar ekki fengið að vita hvort ég fæ styrk til að fara eða hversu hár hann verður þá. Eitt er víst að ef ég fæ engan styrk verður þetta ansi dýrt spaug. Það á ekki að byrja að fljúga beint til Helsinki fyrr en 20. maí en ég þarf að komast út 18. eða 19. og fer því í gegnum einhverja norræna borg. Þá vandast málið því að það kostar heilan helling miðað við þá netsmelli sem maður bókar venjulega. Ódýrasta flugfargjald verður því um 47.000 krónur fyrir utan allt annað; lest/innanlandsflug, hótel, ráðstefnugjald og uppihald! Sem betur fer fæ ég ókeypis gistingu og gufubað í Helsinki:)

Nokkuð venjuleg... eða hvað?





You Are 55% Normal

(Somewhat Normal)


While some of your behavior is quite normal...
Other things you do are downright strange
You've got a little of your freak going on
But you mostly keep your weirdness to yourself

29.3.05

Ármóður

Kannast lesendur við orðið „ármóður“? Nei, það gerðum við ekki heldur þegar ég setti alla stafina mína út í Scrabble um helgina og setti fram orðið „ármóðinn“. Ég hafði ekki hugmynd um að þetta væri til og vonaði að hinum þætti það jafnlíklegt orð og mér. Þau keyptu það þó ekki alveg og flettu upp í orðabókinni og viti menn, orðið „ármóður“ þýðir: „ís- eða snjóhrönn við á“. 70 stig þar:) Hehe... ég elska þetta spil!


Ármóður?

Er þetta ármóður?

Þriðjudagur!

Haldiði að það sé ekki þriðjudagur?! Hverjar eru líkurnar á því? Þetta er sumsé þriðjudagurinn „þriðji í páskum“, mjög erfiður dagur að öllu leyti. Maður þarf að trappa sig niður eftir súkkulaðiát og sukk helgarinnar. Ekki samt halda að ég hafi verið að sukka í brennivíni alla helgina, því fer fjarri, heldur var sukkað í mat og tilheyrandi og ég tel að það sé ekkert auðveldara að ná sér eftir svoleiðis sukk...

Byrjað var á fermingarveislu á skírdag sem var alveg frábær. Snillingurinn hún systir mín sá að mestu um matinn sjálf og þvílíkar kræsingar! Fermingarbarnið stóð sig með prýði og var mjög lukkulegur með daginn. Svo var brunað í sveitina eftir veisluna og þar slakaði maður á í vorloftinu sem lék um mann. Það var farið í göngutúr (minn var reyndar styttri en hinna), spilað Scrabble (en ekki hvað?), brennimerktar rollur í fjárhúsunum, spiluð félagsvist á þremur borðum í Dísukoti og lesið og sofið og borðað... Í raun merkilegt hvað maður náði að gera mikið af litlu á ekki lengri tíma! Í dag er ég svo að drepast í bakinu eftir alla letina og get eiginlega ekki beðið eftir að fara í Gáska á morgun að sprikla og fá nudd. En þangað til er það lærdómurinn. Nú er það ekkert nema harkan sex fram á vor!

22.3.05

Þriðjudagur

Það virðist alltaf vera annað hvort föstudagur eða þriðjudagur, alveg merkilegt! Eins og sjá má af færslum hér að framan (eða neðan) var rosa gaman um helgina. Tónleikarnir voru mjög vel heppnaðir og ég er ánægð með prógrammið hjá Finnunum. Það var mjög blandað en ég taldi a.m.k. 5 lög af plötunum tveimur sem ég á, þar af spiluðu þeir tvö uppáhaldslögin mín:) Þegar tónleikarnir voru búnir var ég engan veginn til í að fara heim en treysti mér heldur ekki alveg í mikið pöbbarölt. Við vinkonurnar sátum því eftir á Nasa og hlýddum og Jónsa og félaga hans í Í svörtum fötum spila fyrir dansi til hálffjögur. Svaka stuð!

Svo eru það bara páskar í vikunni! Á morgun held ég til Hornafjarðar þar sem á að ferma systurson minn á skírdag. Eftir veisluna verður svo brunað aftur suður og beint í Kjósina þar sem verður skrabblað, etið og drukkið fram á páskadag. Ljúfir dagar framundan... Gleðilega páska!

Konfektegg frá Nóa Siríus

Svona fáum við um páskana...

20.3.05


Jebbs, thetta er ball med í svörtum fötum!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Jess, thekkti allavega 5 lög! Mjög ànægd med karlana:-)

SMS sendi ég
Powered by Hexia

18.3.05

Föstudagur... aftur

Þá er það bara síðasta helgi fyrir páska. Henni verður nú mestmegnis eytt í lærdóm en svo eru líka tónleikar annað kvöld sem ég ætla á. Fnnska hljómsveitin 22 Pistepirrko ætlar að spila á Nasa mér til mikillar gleði og ánægju. Þetta er hljómsveit sem ég er búin að hlusta ansi lengi á en þeir hafa víst komið tvisvar áður til landsins. Mig langaði alveg óskaplega að fara þá (´91 og ´93) en var svo ung og saklaus að ég komst ekki... Ég vona bara að þeir taki eitthvað gamalt og gott sem ég þekki. Hér er frábært lag með þeim sem ég vona að þeir spili. Hvað skyldi pistepirrko annars þýða? Svar óskast takk fyrir!

Svo eru Franz Ferdinand bara að koma í maí. Þetta fer vel af stað í ár en verður nú sennilega ekki sama brjálæðið og í fyrra þegar voru tónleikar í hverri viku. Sérstaklega þegar Laugardalshöllin verður lokuð mestallt árið.

En... best að fara að læra. Hafið það gott um helgina börnin góð og ekki stelast í páskaeggin strax :)

15.3.05

Þriðjudagur

Æ hvað maður er eitthvað andlaus svona í frostinu. Fín helgi að baki, fór í sveitina þar sem ég var m.a. að leika við þennan sæta sveitastrák! Algjör rúsína... Svo fer maður þangað næst um páskana... sem er bara í næstu viku!!! Og ég sem ætlaði að vera búin að gera svo margt eins og t.d. að ná tökum á C++ :(

Áður en ég fer í sveitina þarf ég samt að skreppa í eitt stykki fermingarveislu á Hornafjörð þar sem systursonur minn fermist á skírdag. Planið er að fara austur á miðvikudaginn og svo beint í sveitina á fimmtudag. Sem betur fer ætla ég nú ekki að keyra heldur fæ ég far með öðrum fjölskyldumeðlimum sem eru í sömu erindagjörðum.

Annars ætlum við að reyna að fara á Hornafjörð í sumar, vonandi á nýjum bíl. Kannski ekki nýjum úr kassanum en við erum að leita okkur að nýrri bíl þessa dagana. Bíllinn okkar er kominn til ára sinna og kominn tími til að skipta. Við erum búin að ákveða tegund, Suzuki Grand Vitara, en þeir stoppa yfirleitt stutt á bílasölunum og er búið að selja tvo bíla sem við vorum spennt fyrir nánast fyrir framan nefið á okkur. Vonandi bjargast það þó og við verðum komin á fína drossíu með vorinu...

11.3.05

Föstudagur

Enn einn föstudagurinn á ferð, kaldur og bjartur að þessu sinni. Idolúrslitin í kvöld og gaman gaman. Held að þetta verði samt lítið spennandi og að Hildur Vala vinni en það er aldrei að vita hvað gerist. Svo á að taka við einhver þáttur með Hemma Gunn á föstudagskvöldum... ætli maður nenni eitthvað að horfa á það!

Talandi um sjónvarpsdagskrána, mitt helsta áhugamál, þá var alveg frábær þáttur að byrja í gær, Desperate Housewives. Þátturinn lofaði allavega mjög góðu um framhaldið og er því búið að blása nýju lífi í fimmtudagskvöldin og búið að fylla í tómarúmið sem Alias skildi eftir...

Um daginn skrifaði ég um nýja þætti eftir höfund Alias sem ég var svo spennt fyrir, Lost. Nú ætlar RÚV að fara að sýna þá í byrjun apríl, einmitt eins og ég óskaði mér! Húrra fyrir RÚV!! Og reyndar Skjá 1 líka því að þar er fullt af skemmtilegum þáttum eins og Boston Legal, CSI og Law and Order. Skil ekki fólk sem tekur bækur fram yfir sjónvarpsdagskrána... ;)

10.3.05

Magnað

Þá er magnarinn loksins kominn í hús. Hallelúja. Og það virðist bara vera allt í lagi með hann, svona ennþá. Reyndar drap hann á sér áðan en það virtist vera straumbreytirinn sem var í ólagi og nú er verið að kaupa nýjan svoleiðis. Okkur brá samt pínu, það hefði verið dæmigert ef hann hefði verið bilaður loksins þegar hann kom til landsins!

Ég fór annars á ansi magnaðan viðburð í fyrrakvöld en það var dagskrá í Íslensku óperunni í tilefni V-dagsins. Þar voru ýmis atriði, söngur, dans og atriði úr Píkusögum. Höfundur Píkusagna, Eve Ensler, var svo heiðursgestur kvöldsins (eða dagsins) og var með einleik auk þess sem hún talaði um baráttu sína og annarra gegn ofbeldi gegn konum og stúlkum um allan heim. Það var ansi áhrifaríkt þegar hún bað alla þá í salnum sem hefðu orðið fyrir einhvers konar kynferðisofbeldi, heimilisofbeldi eða slíku, að standa upp. Stór hluti stóð upp og enn stærri þegar hún bað alla þá sem þekktu einhvern sem hefði orðið fyrir slíku ofbeldi að standa upp. Nær allir í Óperunni stóðu þá upp. Sorglegt en satt.

9.3.05

Finlandia

Já, nú er það ekki lengur Prag heldur Finnland! Við erum hætt við að fara til Prag í bili enda var það orðið meira vesen en hitt að skipuleggja þá ferð. Hins vegar lítur allt út fyrir að ég sé á leið til Finnlands í vor. Dagana 20.-21. maí verður haldin tungutækniráðstefna í bæ sem heitir Joensuu einhvers staðar við rússnesku landamærin. Ég sendi inn útdrátt úr lokaverkefninu mínu til að fá að halda þar fyrirlestur og viti menn, það var bara samþykkt! Ég veit ekki hvað ég er búin að koma mér út í, að halda fyrirlestur á ensku í Finnlandi um verkefni sem ég er ekki einu sinni búin með... meiri vitleysan. Vonandi fæ ég einhvern styrk til fararinnar en það verður að koma í ljós. Á leiðinni heim ætla ég svo að stoppa í Helsinki og heimsækja þar stúlkur sem ég þekki og verða vonandi heima við. Það sparar líka gistinguna:) Svo er það bara sána og vodki...

6.3.05

Jose

Mikið hrikalega var maður menningarlegur í gær með fína fólkinu. Carreras var þrælgóður eins og við var að búast. Minna mátti það heldur ekki vera fyrir 20.000 kallinn sem fólk var að borga að meðaltali... njehehe. Alltaf lærir maður samt eitthvað nýtt. Ég er til dæmis búin að læra það að á djasstónleikum er sérstakt djassklapp svona við og við, nokkuð sem maður þarf að læra inn á. Ekki kúl að klappa á vitlausum stöðum. Í óperunni á maður greinilega að hrópa „Bravó!“ á eftir flottu lagi. Svo klappar maður með framréttar hendur svo tenórinn sjái hvað maður er mikill aðdáandi. Þetta kunni fólkið á dýrasta svæðinu. Mjög fyndið. Á rokktónleikum hristir maður bara hausinn og syngur með, það kann ég.
Annars sátu þeir Statler og Waldorf, gömlu fúlu karlarnir á svölunum í Prúðuleikurunum við hliðina á mér í gær. Reyndar hrópuðu þeir nú ekkert í áttana að Jose en tuðuðu mikið yfir aðstöðunni og fólkinu í salnum. Vissi ekki að þeir væru ennþá á lífi karlarnir...

4.3.05

Lukka

Það er aldeilis heppnin er með okkur þessa dagana eða öllu heldur Jóa. Nú var hann að vinna miða á Jose Carreras á morgun! Reyndar hélt ég að þetta væri kannski miði fyrir einn sem gilti bara fyrir hlé en svo var nú aldeilis ekki. Miði fyrir tvo á alla tónleikana takk fyrir:) Það er eins gott að fara að strauja sparigallann því að þetta verður örugglega ægilega fínt alltsaman...

Ég sá annars mjög góða mynd í gær, Motorcycle Diaries. Hún fjallar um Che Guevara þegar hann var ungur maður, áður en hann fór til Kúbu. Í myndinni er hann ásamt félaga sínum að ferðast um Suður-Ameríku og er hún byggð á dagbók sem hann hélt á ferðalaginu. Flott mynd, flott tónlist (lag úr henni vann einmitt Óskarsverðlaun) og eftir hana langaði mig beint til Perú að skoða Machu Picchu og sigla um Amazonfljótið...


Mig langar að vera þarna...



Hafiði annars tekið eftir því að það er alltaf helgi? Ég bara skil þetta hreinlega ekki...

3.3.05

Prahag

Það er nú meira vesenið með þennan blessaða vinning. Hann hljóðaði upp á flug fyrir einn til Prag frá mánudegi til fimmtudags í mars eða apríl án flugvallarskatta... allt í lagi með það. Við fórum í gær til að bóka hjá Heimsferðum en ætluðum að athuga hvort það væri möguleiki að vera kannski í viku og borga þá eitthvað meira þar sem það er flogið út seinnipart mánudags og því yrðu þetta bara tveir heilir dagar. Það var þá ekkert hægt að eiga við vinninginn, annaðhvort færum við eftir honum eða ekki! Við hættum við að bóka í bili... ætlum aðeins að melta þetta enda er nóg laust í þessar ferðir. Hver fer í miðri viku í mars eða apríl fyrir 2 daga? Sjálfsagt þeir sem vinna ferð fyrir einn.

1.3.05

Prag

Þetta var nú aldeilis fín árshátíð þarna um helgina! Æðislegur matur á boðstólum og svo var happdrætti... og þar vann Jói miða til Prag!! Reyndar bara flug fyrir einn þannig að við þurfum að borga flug fyrir mig og hótel en það er ekkert mál að panta svoleiðis á netinu og þetta er fín afsökun til að fara. Stefnum á þrjár nætur um miðjan apríl en ætlum að reyna að bóka bara á morgun. Gaman gaman:)



Prag



Sunnudagurinn var aðeins erfiðari eins og gefur að skilja og reyndar er ég enn hálfsybbin eftir þessa gleði. En tilhlökkunin um Pragferðina bjargar málunum... ef lærdómurinn er að sliga mig þá læt ég mig bara dreyma um huggulegheitin í útlöndum, mmm...