8.8.05

Partíbær

„Er við komum suðr' í Hafnir þá var rosa mikið stuð
Hafnir eru sko krummapartískuð“

Svo orti einhver meðlimur góðrar hljómsveitar á sínum tíma um fjör á Suðurnesjum. Þangað var ferðinni einmitt heitið á laugardaginn og get ég nú loksins skrifað um það þegar búið er að leysa getraunina sem ég lagði fyrir hér að neðan. Við fengum þá flugu í höfuðið að rúnta um Reykjanes og byrjuðum á að fara í Keflavík. Ég held svei mér þá að ég hafi aldrei komið inn í bæinn sjálfan áður enda rötuðum við ekkert þar! Elskuleg stúlka á bókasafninu vísaði okkur að lokum á veitingastaðinn Duus hús þar sem við fengum þennan fína hádegismat. Svo var rúntað í Garðinn og út á Garðskagavita, þaðan í krummapartískuðið Hafnir og út á Reykjanestá. Við slepptum reyndar Sandgerði en ég sá þó eftir því í dag þegar einhver benti mér á að þar væri hægt að keyra framhjá bleika húsinu hennar Leoncie. En það er gott að eiga eitthvað eftir í næstu ferð. Við Reykjanesvita var svo mikið rok að Jói þurfti að halda sér í klett uppi á einhverju bjargi til að fjúka ekki út í sjó þannig að við stoppuðum ekki lengi þar. Hristumst þá á þvottabrettisvegi dauðans til Grindavíkur að kaupa ís og þaðan í meira þvottabretti Krýsuvíkurleiðina heim. Sem sagt, þessi fíni laugardagsbíltúr!

Í gær átti svo að fara á kaffihlaðborð á Hafinu bláa í tilefni afmælis afa hans Jóa en það var svo fjandi mikið rok að við lögðum ekki í það. Brimið hefði samt örugglega verið geggjað út um gluggann í rokinu. Í staðinn kom fjölskylda Jóa í sunnudagslæri til okkar sem var alveg hreint ljómandi gott.

Í dag eru svo nákvæmlega tvær vikur í próf. Mér finnst viðbjóðslegt að vera að fara í próf í ágúst. Ég hef aldrei gert það fyrr og ætla mér alls ekki að endurtaka það. Ég legg til að endurtektarpróf við Háskóla Íslands verði í janúar og júní. Ekki ágúst. Alls ekki í ágúst...

Engin ummæli: