Ekki urðu nú laxarnir margir um helgina, það náðust á land 8 urriðar og enginn lax! Fallegur dagur samt sem áður og ég bendi á myndir sem siggimus tók af veiðiferðinni.
Áður en ég stakk af úr bænum á föstudaginn lenti ég á íðorðanámskeiði á fimmtudag og íðorðaráðstefnu á föstudag. Það vildi svo til að norrænir íðorðadagar voru haldnir einmitt núna þegar ég er nýbyrjuð á íðorðasafni í tungutækni. Mjög áhugavert svosum en allt á einhverri skandinavísku sem varð til þess að ég skildi ekki eins mikið og ég vildi...
Í dag er ég loksins búin að vera að vinna í Odda þar sem ég verð vonandi í sumar. Hér eru fjórir aðrir að vinna að málfræðiverkefnum og mér skilst að allavega tveir bætist í hópinn í vikunni. Gaman að vera að vinna í kringum annað fólk, það verður hálfleiðinlegt að hanga heima að vinna - enginn til að fara með í mat og kaffi! Nú er ég hins vegar búin að fá nóg af því að hanga inni og ætla því að rölta heim í góða veðrinu.
13.6.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli