25.8.05

Fimmtudagur

Ég er búin að vera í undarlegu ástandi yfir þessu prófastússi. Fyrst var ég alveg búin á því eftir prófið og svo gat ég ekki beðið eftir að fá einkunnina. Á endanum skrifaði ég kennaranum mínum í gær til að spyrja hvort ég hefði náð og þá sagði hann mér að hann væri búinn að fara yfir sinn hluta af prófinu (5 spurningar af 6) og að ég væri bara komin með 6 í einkunn! Sex! Ég hefði verið alsæl með 5! Það er allavega þungu fargi af mér létt núna og ég get farið í frí í september með góðri samvisku.

Sumarið er að verða búið hjá flestum en aðalfríið er eftir hjá mér. Ég vinn hérna í Odda út ágúst og fer svo í veiði í þrjá daga, 2.-5. sept. og svo til Lanzarote 6.-20. sept. í sól og sumaryl. Get ekki beðið núna þegar farið er að hausta hér. Var ekki annars hitabylgja á þessum tíma í fyrra?

Íðorðasafnið verður ekki alveg tilbúið í næstu viku en vonandi verður hægt að birta hluta af því. Svo er spurning hvort að ég klári það kannski seinna. En, fyrst er það veiði, sólarströnd og... lokaverkefni! Júhhú!

Engin ummæli: