...ég hlakka alltaf svo tiiiil...
Nei, ég er ekki orðin geðveik og farin að syngja jólalög heldur hlakka ég bara svo óskaplega mikið til kvöldins!
The Fall eru að spila í kvöld og það verður vonandi rosa gaman. Gallinn er bara sá að þegar maður er svona spenntur eru miklar líkur á að verða fyrir vonbrigðum en með því að vera samt meðvitaður um það gæti það sloppið... er það ekki? Hér er allavega eitt gott
Fall lag til að koma öllum í gott skap í þessum vetrarkulda úti.
Talandi um vetrarkulda þá lenti ég einmitt í skemmtilegum torfæruakstri í gær eins og svo margir aðrir á höfuðborgarsvæðinu. Ég þurfti að keyra inn í Kópavog og til baka um sexleytið, þegar allt var stopp vegna hægrar umferðar. Þar sem ég er á svo vel útbúnum fjallabíl var þetta bara smágaman, ég spólaði allavega ekkert eins og sumir þannig að það var bara gott mál.
Svo saumaklúbbur í gærkvöldi. Mjög við hæfi að hafa saumaklúbb íslenskufræðinga á Degi íslenskrar tungu. Fullt af sögum og slúðri og frábærum veitingum - takk fyrir það!