26.2.05

Helgi

Nei, ekki þú Helgi heldur er komin helgi! Hún byrjaði að sjálfsögðu á Idol þar sem ég var mjög sátt við úrslitin. Þá eru víst bara 2 þættir eftir og þá þarf maður ekki að fylgjast með þessu lengur. Merkilegt hvað maður getur fest sig í svona þáttum...

Svo er árshátíð hjá Mastercard í kvöld sem verður vonandi mjög skemmtileg. Fordrykkur á undan einhvers staðar í Grafarvoginum og svo verður haldið á Grand Hótel þar sem verða skemmtiatriði og góður matur og meiri drykkur:) Reyndar þekki ég bara einn fyrir utan Jóa sem vinnur þarna en kannski kynnist maður bara einhverju fólki. Annars tala ég bara við þá tvo sem ég þekki!

Í dag eru svo tvær vinkonur mínar að útskrifast úr Háskólanum - til hamingju með það! Engar útskriftarveislur þó enda er þetta ekki í fyrsta skipti sem þær útskrifast, þær eru orðnar svo hámenntaðar.

Verð svo að koma einni snilldinni að hérna. Ég dreif mig í að láta framkalla eitthvað af þessum digital myndum sem ég á í tölvunni, aðallega myndir frá Búlgaríu þar sem við vorum bara með digital vélina. Það var einhvern tímann búið að benda mér á Bonusprint í Bretlandi en þá sendir maður myndirnar í gegnum tölvu og fær þær svo framkallaðar í pósti nokkru seinna. Ég prófaði þetta sem sagt og ætlaði ekki að trúa verðinu sem ég fékk gefið upp. 53 myndir sendar heim kostuðu nefninlega 790 krónur með sendingarkostnaði! Hjá Hans Petersen kosta jafnmargar myndir rúmlega 2300 krónur. Myndirnar voru mjög fínar þannig að ekki eru þetta minni gæði. Mæli eindregið með þessu, mér finnst nefninlega gaman að eiga eitthvað af myndum framkallaðar þó að maður láti kannski ekki framkalla allt.

Hehe





Your Dominant Intelligence is Linguistic Intelligence



You are excellent with words and language. You explain yourself well.
An elegant speaker, you can converse well with anyone on the fly.
You are also good at remembering information and convicing someone of your point of view.
A master of creative phrasing and unique words, you enjoy expanding your vocabulary.

You would make a fantastic poet, journalist, writer, teacher, lawyer, politician, or translator.


24.2.05

Brjóst

Þetta er algjör snilld! Hvers konar brjóst eruð þið með stelpur? Melónum finnst gott að borða og láta dekra við sig... gæti það verið?!

21.2.05


Ég fékk líka svona blóm um helgina og gómsætan mat á konudaginn!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Mánudagur

Þó að sólin sé nú alltaf skemmtileg þá finnst mér veðrið sem er úti núna alltaf svo notalegt. Þoka og smáúði og fekar hlýtt... svo dulúðlegt eitthvað. Í svona veðri fór ég t.d. oft út að leika mér þegar ég var yngri, mér fannst það svo spennandi. Vonandi þýða þessi hlýindi að vorið sé á næsta leiti!

Ég slapp við veikindin um helgina, var bara með frekar óskemmtilegt kvef. Það þýddi reyndar að ég varð að læra í staðinn en það var þó skárra en að liggja með flensu, svei mér þá. Þetta var því afskaplega róleg helgi og lítt markvert sem gerðist. Þó gerðumst við Anna Katrín menningarlegar á laugardaginn og fórum að sjá sænsku þöglu myndina Häxan frá 1921 þar sem Sinfóníuhljómsveitin lék tónlist Barða í Bang Gang undir. Þetta var bæði mjög skemmtileg mynd og áhugaverð og tónlistin var líka mjög flott. Gaman að því!

18.2.05

Hjúkk...

...þau voru þá alvöru!

Föstudagur

Ég held að ég sé að verða veik :( Er með kvef og hálsbólgu og bíð nú eftir að flensan hellist í mig. Vona samt að lýsi, vítamín og hvítlaukur verði til þess að þetta verði ekki meira en kvef!

Ég fékk loks diskana sem ég pantaði að utan í gær og viti menn, þeir voru bara í kassanum! Þetta voru nýi diskurinn með Elliott Smith (hér er flott lag af honum) og Seven Swans með Sufjan Stevens. Frábærir diskar báðir tveir. Svo eru líka góðir diskar í 2 fyrir 2000 (eða var það 2200?) sem ég ætla að splæsa í við tækifæri. Við erum annars enn að bíða eftir að fá endurgreitt frá ShopUSA fyrir magnarann en það tekur víst einhverja daga þannig að það er bara að bíða.

Á þessum fallega degi eiga foreldrar mínir 44 ára brúðkaupsafmæli! Vel af sér vikið hjá þeim:) Í morgun voru líka mögnuðustu ský á himni sem ég hef lengi séð, fjögur bleik og skærblá glitský á austurhimni... nema pillurnar mínar séu farnar að hafa þessi áhrif! Sá ekki örugglega einhver annar þessi ský??! Eigiði annars góða helgi, hún verður með rólegasta móti hér, annað hvort verða það veikindi eða lærdómur... veit ekki hvort er skárra!

16.2.05

Brrrrr

Það er hrollur í mér núna enda alveg viðurstyggilegt veður úti. Ojbarasta. Ég vona bara að þetta verði ekki til þess að ég leggist í flensu eins og Michael Jackson og fleiri! Ég var annars mjög menningarleg í gærkvöldi og fór í leikhús. Ég fór að sjá sýningu Stúdentaleikhússins, Þú veist hvernig þetta er. Mjög skemmtileg og öðruvísi sýning. Reyndar voru engin sæti fyrir áhorfendur þannig að ég var orðin ansi þreytt í fótunum í lokin en þetta var bara soldið eins og að vera á tónleikum. Ég mæli sem sagt alveg með sýningunni en því miður of seint því að allra síðasta sýning er í kvöld!

15.2.05

Hehe

Mér datt ég sjálf í hug þegar ég horfði á fréttir Stöðvar 2 í gær um Valentínusardaginn. Hindúar á Indlandi voru alveg brjálaðir yfir þessum Valentínusardegi. Þeir mótmæltu harðlega og brenndu Valentínusarkort! Ég var nú kannski ekki alveg svo reið yfir þessu...

14.2.05

Mánudagur

Valentínusardagurinn í dag, þau amerísku hallærisheit! Er ekki farið að þykja bara púkó að halda upp á þennan dag? Eru það ekki bara gelgjur og kaupmenn sem gera það? Kannski er það bara þannig í kringum mig, ég veit það ekki. Þá er nú skemmtilegra að smella kossi á karlinn á bóndadaginn líkt og aðra daga!

Á þessum degi, 14. febrúar, á nú samt hann frændi minn afmæli og er hann 9 ára í dag. Af því tilefni var heljarinnar veisla á laugardaginn í sveitinni. Ég fór þó uppeftir á föstudaginn í þorraveislu og idolkvöld, eins konar þorraidol. Svo var afmælið á laugardag en mér tókst ekki að drusla mér aftur í bæinn fyrr en í gær sem þýddi það að ég lærði mest lítið um helgina... enda var þetta hin besta helgi. Á laugardagskvöldið spiluðum við Popppunktsspilið sem var ljómandi gaman. Það fer þó alveg svakalega í taugarnar á mér hvað spilið er illa (eða bara ekkert) prófarkarlesið og eru lúðavillur eins og „spreittu þig“ á popphjólinu sjálfu auk þess sem leiðbeiningarnar eru í tómu rugli. Greinilega verið að hraða útgáfunni fyrir jólin... fussogsvei!

10.2.05

ShopUSA

Við erum búin að standa í því undanfarnar vikur að panta vörur frá Bandaríkjunum, 1 stykki magnara og 2 geisladiska og hefur það satt að segja ekki gengið áfallalaust. Við pöntuðum frá Amazon og létum senda vörurnar til okkar í gegnum ShopUSA sem er víst búið að vera svo vinsælt. Aðalatriðið var að fá magnarann en diskarnir voru pantaðir með til að nýta sendinguna og góða verðið í Bandaríkjunum.
Fyrst voru diskarnir sendir af stað á undan magnaranum í vöruhús ShopUSA í Bandaríkjunum. Allt í lagi. Nema hvað að þar sem við getum fylgst með því á netinu hvar varan er stödd í Bandaríkjunum hverju sinni sáum við að innan tveggja daga voru þeir komnir í vöruhúsið - og svo var þeim hafnað og þeir sendir til baka! Eitthvað var þetta nú dularfullt... Þá fór magnarinn af stað eftir að við sendum Amazon fyrirspurn um hvar hann væri eiginlega en þá vorum við orðin hrædd um að magnarinn færi til landsins án diskanna og að við yrðum að borga tvöfaldan sendingarkostnað. Eftir margar tilraunir til að ná í ShopUSA (alltaf á tali...) var okkur sagt að diskarnir hefðu verið sendir til baka vegna þess að pakkinn var skemmdur og að við ættum að fá nýja diska frá Amazon. Það var auðsótt mál og þjónustan hjá Amazon til fyrirmyndar. En ef við vildum fá magnarann strax til landsins (sem þá var nýskriðinn í vöruhúsið) var það ekkert mál en þá þurftum við að borga eitthvað aukalega fyrir diskana. Allt í lagi með það, við vildum fá fjandans magnarann strax heim svo að hann færi nú ekki í einhverja vitleysu. Í gær var svo stóra stundin runnin upp. Magnarinn var kominn til landsins og hægt að sækja hann til ShopUSA í Kópavogi. Við fórum spennt með hann heim og opnuðum kassann og... þar mátti finna 1 búnt ljósritunarpappír, 1 gamlan tóner í ljósritunarvél og bæklinga. Engan magnara. Stolinn. Grrrr... við ekki ánægð (eða réttara sagt alveg öskuvond á öskudaginn). Sem betur fer ætlar ShopUSA að endurgreiða okkur vöruna að fullu (enda keyptum við tryggingu með) þannig að fjárhagstjón verður ekkert en þeir buðu okkur að panta aftur og það er spurning hvort við nennum að standa í því, ætli við jöfnum okkur ekki á þessu fyrst. Og já, svo eigum við von á 2 geisladiskum í næstu viku!



Magnaður magnari


9.2.05

Stóri

Mr. Big að fara að leika í Law and Order! Það líst mér vel á og ekki veitir af að hvíla hinn gaurinn, hann er svo óþolandi...

7.2.05

Bolla bolla

Bolludagur og ég fæ sennilega enga bollu :( Ætlaði að fá mér bollu í gær af því að það var sunnudagur en búðin á horninu seldi bara 9 í pakka... Langar samt eiginlega ekki í búðarbollu hvort eð er, bara svona vatnsdeigsbollur eins og mamma bakar með suðusúkkulaði ofaná og rjóma mmmmm... Fæ nú kannski saltkjöt á morgun samt og svo er afmælisveisla bæði á fimmtudaginn og um helgina þannig að þó það verði ekki bolla þá verður bara eitthvað annað gott.

Róleg helgi aftur. Meiri matur á föstudag, mjög sniðugt að láta bjóða sér svona í mat alltaf. Vídeó á laugardagskvöld enda var maður þreyttur eftir matarboðið sem stóð fram á nótt. Á að vera að læra eins og venjulega en blogga bara í staðinn um nákvæmlega ekki neitt...

3.2.05

Fimmtudagur

Alias í kvöld!!! Þetta er nú orðið ansi spennandi (eins og það sé ekki búið að vera það síðan í 1. seríu!) en í kvöld er næstsíðasti þáttur seríunnar. Mér til mikillar gleði og ánægju las ég í Mogganum að farið væri að sýna 4. seríuna úti í Bandaríkjunum og að þar hefði sko verið tvöfaldur upphafsþáttur! Ekki nóg með það heldur er höfundur Alias þáttanna með nýjan þátt úti sem heitir Lost og er víst líka svaka spennandi. Vonandi fer Sjónvarpið eða einhver að sýna þá þætti áður en langt um líður.

Sæti, sæta og ljóta


Fór annars á Tapas barinn í gærkvöldi og mmmmm hvað það var góður matur þar. Upphaflega ætluðum við að fá okkur mexíkanskan mat á Amigos en svo var bara lokað þegar við mættum. Spurning hvort hann sé búinn að vera lengi lokaður, maður hefur ekkert heyrt um það. Ég var annars dauðfegin því að það var svo miklu betri (örugglega) matur á Tapas eftir alltsaman. Og snilldin er líka sú að geta ráðið hvað maður borðar mikið og hverju maður blandar saman. Reyndar borðuðum við allt of mikið af allskonar dóti og leifðum engu...