30.11.06

Domm

Domm dí domm, ég er hálfdomm. Sísyfjuð í skammdeginu, gæti sofið allan daginn eða allavega legið uppi í rúmi. Hef ekki frá neinu að segja. Vildi bara hafa lífsmark á síðunni. Lofa að ég skrifa eitthvað skemmtilegt næst...

21.11.06

Þriðjudagur

Ég þoli ekki svona mikinn snjó! Ég get ekki labbað í honum, það er leiðinlegt að keyra í honum og það er einfaldlega alltof mikið af honum! En það þýðir víst lítið að tuða yfir því, ekki fer hann við það...

Síðasta helgi var virkilega skemmtileg og tónleikarnir á föstudagskvöldið einfaldlega stórkostlegir. Vá. Frábært að fara á svona góða tónleika þar sem maður fær gæsahúð og tár í augun! Eftir tónleikana fór ég í sveitina þar sem var tekin æfing í skrafli fyrir jólin. Auðvitað burstaði ég annað spilið (hehe) svo að ég kem sterk inn í scrabble tímabilið í ár! Svo var afmæliskaka á laugardeginum enda áttu nöfnurnar Þórdís og Þórdís á Valdastöðum afmæli í gær. Svo var meira afmæli á laugardagskvöldið en Svala og Jenni héldu upp á stórafmælin sín. Flott veisla og rosa gaman - takk fyrir það!

Svo var maður bara fastur í snjóskafli heima á sunnudaginn. Sem betur fer vorum við nú ekki föst í bænum um nóttina eins og sumir voru víst. Dagurinn fór í að horfa á Föruneyti hringsins, extra langa þriggja og hálfs tíma útgáfu! Ekki leiðinlegt það... Ég bíð spennt eftir að horfa á hinar tvær en kassann keypti í einmitt í London.

18.11.06

Myndablogg

Tryna á Valdastödum
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

17.11.06

Súfjan sæti

Í dag er ég í mjög góðu skapi þrátt fyrir kuldabola úti. Í kvöld er t.d. hinn undurfagri Sufjan Stevens að fara að spila fyrir mig undurfagra tónlist í Fríkirkjunni og ég get ekki beðið! Ég sit í vinnunni og hlusta á tónlistina hans og hlakka bara til. Vonandi verð ég ekki fyrir vonbrigðum með tónleikana en væntingarnar eru miklar.

London var annars skemmtileg að venju. Ég var að vísu búin að gleyma því hvað stórborgir krefjast mikillar göngu og voru fæturnir mínir því ansi lúnir eftir ferðina. Þó maður ætli sér alls ekki að skoða allt og gera allt þá er alltaf meira labb en maður ætlar sér. Það var því ágætt að setjast reglulega inn á pöbba til að hvíla sig! Ég ætlaði að kaupa mér fullt af fötum úti en varð fyrir vonbrigðum með búðirnar. Ég fann mér jólapils og götuskó en keypti annars mest í Virgin Megastore og HMV - en ekki hvar? Geisladiskar og DVD, það er langskemmtilegast að kaupa svoleiðis! Svo fórum við í leikhús að sjá The Producers sem var mjög skemmtilegt. Duldið langt en mjög fyndið. Svo fórum við líka í dýragarðinn sem var bara fjör. Stutt ferð en skemmtileg í heildina.

Nú þarf ég bara að fara að uppfæra óskalistann hérna til hliðar svo að fólk viti hvað mig vantar í jólagjöf...

8.11.06

Valdis O.

Hahahahaha! Ég á nafna í útlöndum! Næstum því alnafna meiraðsegja.

Nú líður mér eins og Lýð Oddssyni...

London beibí

Jibbí, ég er að fara til London á morgun! Við skötuhjúin ætlum að skella okkur í helgarferð til stórborgarinnar þar sem við ætlum að njóta lífsins, kannski kíkja í búðir, drekka fullt af bjór, fara út að borða og í leikhús. Svo eitthvað sé nefnt. Vonandi nær maður að gera eitthvað af þessu fram á sunnudag en þá komum við aftur. Vííí!

Mér brá aldeilis í brún í gærkvöldi þegar ég leit út um gluggann en þá var allt fullt af slökkviliðsbílum á bílastæðinu okkar. Það hafði þá kviknað í húsinu við hliðina á okkur. Að vísu urðum við ekki vör við þetta fyrr en búið var að slökkva eldinn en fréttum að þetta hefði verið mikill eldur. Óhuggulegir þessir eldsvoðar...

Ég er núna búin að ætla á The Queen í bíó í nokkrar vikur þar sem ég fékk boðsmiða á hana en er ekki enn farin að fara. Svo fer ég út á morgun og það verður örugglega hætt að sýna hana í næstu viku. Meira hvað maður getur verið latur. Ætli maður gefi ekki leigjandanum bara miðann ef hún nennir...

London beibí á morgun! Jibbí...