31.8.07

Rolegheit

Eftir ys og thys fyrstu vikuna hefur seinni vikan verid heldur rolegri. Thad rigndi herna a thridjudag og midvikudag. A midvikudaginn rigndi alveg stanslaust og thad engin smarigning. Vid notudum thvi taekifaerid og hvildum okkur vel og eyddum mestollum deginum a hotelinu. Thar sem vedrid var svona vont a midvikudag forum vid heldur ekki til Patong. Vid erum ad spa i ad fara thangad a laugardagskvoldinu, enda er thad sidasti sens.

I gaer attum vid lika rolegheitadag en vedrid var tho miklu betra, skyjad og engin rigning. Vid endudum svo daginn a ad fara i minigolf sem er herna vid hlidina en thad er rosa flottur gardur, Dino Park, thar sem madur spilar minigolf innan um risaedlur, eldfjall og fossa! Ja, og svo vann eg lika... enda buin ad vera a golfnamskeidi i sumar:)

I dag er svo glampandi sol og blida og vid kikjum sennilega e-d a strondina a eftir. Svo aetlum vid ad klara ad versla thad sem er eftir og i kvold aetlum vid svo ad fara a Simon Cabaret sem er syning med "ladyboys" a Patong. Thad verdur frodlegt ad sja!

28.8.07

Eg er buin ad skrifa sma vid myndirnar svo ad thad se betra ad skoda thaer. Svo er best ad smella a "Tailand 2007" til haegri a sidunni og smella thar a myndirnar, tha eru thaer i rettri rod...

Myndir!

Thad eru komnar nokkrar myndir inn a Flickr siduna mina her til vinstri. Eg gat ekki sett meira inn, tha var eg komin yfir morkin thennan manudinn... Baeti vid fleiri myndum i Danmorku bara!

Annars er buid ad rigna her i dag svo ad vid bara sloppum af og hongum a netinu. Sjaum bara til med veidiferd, ef thad verdur svona vedur afram tha er ekki mjog gaman ad vera uti a sjo, i grenjandi rigningu og roki! Stefnum a Patong Beach annad kvold, aetlum med Englendingunum thangad. Spennandi ad sja hinn fraega Bangla Road. Eins gott ad halda fast i Joa svo ad gellurnar nai honum ekki...

26.8.07

Filaferd og djamm

Tha er ferdasogunni haldid afram!

A fostudaginn svafum vid vel ut og sloppudum af, enda luin eftir batsferdina a fimmtudaginn. Vid vorum tho buin ad akveda ad fara ut a fostudagskvoldid en tha var skipulagdur gledskapur sem vid forum i. Thannig er ad a sidunni www.tripadvisor.com er m.a. spjallthradur og thadan fengum vid margar gagnlegar upplysingar um hvad aetti ad gera herna. Hjonin Richard og Megumi, Kanadamadur og japonsk kona hans, skipuleggja hladbord og barferd fyrir folkid a thessum spjallthraedi oll fostudagskvold. Vid vorum sott af theim um sexleytid og keyrd aftan i pick-up asamt fleira folki a veitingastad rett hja Rawai beach, a sudurhluta Phuket. Thar hittum vid m.a. folkid sem var med okkur i batsferdinni, en flestir sem vid toludum vid skipulogdu ferdina a svipadan hatt og vid og aetludu thvi ad gera somu hlutina (batsferd med Mark, bilferd med Mr Mor o.s.frv.). Maturinn var hladbord med allskonar bbq mat, svinarif, kjulli, pylsur, alls kyns kartoflur og allt var thetta a godu verdi. Og ekki var verra ad literskanna af Chang bjor kostadi bara 200 kall! Eftir matinn var keyrt med okkur adeins lengra a bar sem heitir Sunshine bar og thar var svaka fjor. Stelpurnar a barnum ekkert sma hressar, dansandi og syngjandi, einn "ladyboy" var svo i starfslidinu sem var kvenlegri en eg:) Thar var drukkid meira og vid kynntumst ferlega finum krokkum fra Englandi sem eru einmitt a sama hoteli og vid. Vid hofdum svo keypt brennivin til ad gefa folki og gafum ollum ad smakka. Vid gafum lika Mark skipstjora fra deginum adur einn pela sem thakklaeti fyrir frabaera ferd en lika af thvi ad hann atti afmaeli. Hann var lika mjog svo anaegdur med thetta.

Laugardagurinn var, eins og gefur ad skilja, mjoooog rolegur. Svafum mikid, lagum vid sundlaugina og forum snemma ad sofa. Afskaplega vidburdalitill dagur.

I morgun voknudum vid hins vegar um 9 til ad fara i ferd sem fyrrnefndur Richard skipuleggur lika. Tha er farid i filaferd, a stad thar sem bua filar sem hefur verid misthyrmt. Their hafa tha verid aldir upp i ad vinna erfidisvinnu en verid t.d. bardir svo mikid og beittir ofbeldi ad their hafa snuist gegn eiganda sinum og ekki getad unnid meira. Tha eru their sendir thangad eda keyptir thangad thar sem their fa ad bua i fridi. Tho er haegt ad nota tha til thess ad ferja folk smahring a bakinu. Vid forum i halftima a filsbak, upp brekku thar sem var stoppad a utsynisstad, og nidur aftur. Thetta var ansi mognud upplifun, furdulegt ad sitja a filsbaki (ad visu a stolum en ekki bakinu sjalfu) med taernar a filnum. Filshudin er svo grof og thykk og svo standa har upp ur sem kitla mann! Filnum stjornadi svo tannlaus Tailendingur sem spjalladi og spjalladi vid filinn a tailensku a medan hann stjornadi honum. Umhverfid tharna var mjog flott, farid var i gegnum skog af gummitrjam og var mikid af litrikum fidrildum tharna a flogri. Eg vil samt eiginlega ekki hugsa um hinar poddurnar sem voru sennilega tharna lika! A thessum stad koma lika oft apar sem madur hittir og faer ad leika vid en thvi midur maettu their ekki akkurat thegar vid vorum tharna sem var ansi svekkjandi. En thar sem thetta er ekki dyragardur tha er ekki haegt ad stjorna thvi hvenaer aparnir birtast. Vid saum tho einn a leidinni a filnum, hann la uppi vid tre og geispadi...

Vid hittum Richard og Megumi aftur i kvoldmat, forum med theim a pizzahladbord i nagrenninu. Allt sem thu getur i thig latid a 200 kall! Richard var svo anaegdur, vid gafum honum restina af brennivininu og staupglas med islenska fananum:) Gaman ad kynnast svona skemmtilegu folki herna! Allt Internetinu ad thakka.

24.8.07

Siglingin hja Brenndu og Brenndon Lee

I gaer attum vid mesta aevintyradag sem vid hofum nokkurn timann upplifad. Vid hofdum bokad siglingu med Captain Mark, Astrala sem byr herna og er med ferdir ut a eyjur her fyrir utan. Vid vorum sott eldsnemma, um 7.45, og vorum thvi pinu sybbin thegar billinn kom ad na i okkur. Vid byrjudum a ad na i fleira folk, 3 manna fjolskyldu fra Englandi sem var a hoteli a Patong Beach, og sidan var keyrt a austurhluta eyjarinnar thadan em baturinn for. Thar tok a moti okkur kapteinninn sjalfur, hress gaur um fimmtugt med gratt skegg og skipstjorahufu. I ferdinni voru bara vid, fjolskyldan sem var sott um leid og vid, Mark, tailensk kona sem kokkadi ofan i mannskapinn og tailenskur skipstjori sem styrdi batnum. Vid sigldum ad eyjaklasa austan af Phuket, i Phang Nga Bay. Thad var frabaert vedur, sol og lygn sjor, gat ekki verid betra. Thessi eyjaklasi er engu likur, haar eyjar sem risa upp ur sjonum. Thad er varla haegt ad lysa thessu. Vid sigldum i kringum eina stora eyju, Ko Phanak, Thetta er ofsalega falleg eyja, gridarlega ha og med fallegum klettamyndunum og eins konar dropasteinum. Vid saum apa a leidinni sem eiga heima tharna, ferlega saetir. Sidan stoppadi baturinn og vid forum i litinn bat ad sigla inn i pinulitid gat a eyjunni og thar fyrir innan var svokallad "Hong", eins konar afgirt lon sem er adeins haegt ad komast inn i i gegnum thetta litla gat. Ekki er haegt ad komst thangad thegar er meira i sjoinn. Thar voru fleiri apar sem vid hentum banonum til. Thessi stadur var hreinlega olysanlegur, thetta var svo oraunverulegt allt saman, eins og ad vera staddur i biomynd. Eg vona ad eg hafi nad myndum af thessu sem geta lyst thessu og reyni ad setja thaer einhvern timann inn. Eftir thetta sigldum vid a litla batnum ad pinulitilli strond thar sem var enginn nema vid og syntum adeins i sjonum. Thadan priludum vid upp i helli og gengum thar i kolamyrkri med vasaljos thar til vid komum ad skoru thar sem sast inn i annad svona "Hong". Vid priludum til baka (ja, thetta gat eg alltsaman!) og heldum afram, skodudum annan helli, saum ledurblokur, og meira hong thar sem lifa edlufiskar, halfar edlur og halfir fiskar... spennandi! Vid stoppudum sidan a litilli strond thar sem vid vorum aftur ein og bordudum hadegismat sem kokkurinn a batnum hafdi eldad. Thau hofdu keypt raekjur a leidnni af veidimonnum tharna thannig ad thad voru splunkunyjar risaraekjur i matinn, fyrst i Tom Yum supu og sidan med hrisgrjonuum, karrykartoflum og graenmeti. Rosa gott. Svo var synt meira i sjonum og ad lokum skodudum vid sjoraeningjahelli thar sem ku vera grafinn fjarsjodur og draugur gaetir hans. Eg thekki nu suma sem hefdu ekki thorad thangad inn! Eins og eg segi, tha var thetta allt frekar oraunverulegt. Captain Mark var alveg frabaer leidsogumadur og folkid sem var med okkur mjog fint. Vid forum lika a stadi thar sem voru engir adrir turistar og thad var alveg meirihattar. Eini stadurinn thar sem var annad folk var vid sjoraeningjahellinn. Vid saum thvi ekki "James Bond Island" thar sem The Man With the Golden Gun var tekin en hun er svosum eins og ein af thessum eyjum, thad sem vid saum var eflaust miklu fallegra. Thegar vid komum aftur a hotelid, um hlfsjo um kvoldid, vorum vid alveg buin a thvi og skadbrunnin eftir solina. Vid bordudum kvoldmat og satum adeins uti en forum svo bara snemma i koju. Thegar eg lokadi augunum fannst mer eg vera enn i batnum og allt ruggadi i kringum mig...

22.8.07

Skodunarferdin o.fl.

Gaerdagurinn var algjor letidagur. Vid svafum bara ut og roltum eitthvad herna um. Thad rigndi reyndar svolitid thannig ad hluti dagsins for i ad sitja einhvers stadar innandyra med drykk og horfa a rigninguna. Svosum oskop notalegt! Svo for eg bara aftur i nudd og vid forum lika i fyrstu matun hja klaedskeranum. Thetta litur allt virkilega vel ut, Eg bad hann reyndar ad hafa pilsid adeins threngra, madur er med bjorvomb a haesta stigi nuna - eg aetla nefnilega ad verda svo mjo i vetur! (Alltaf sama bjartsynin!).

I morgun voknudum vid svo snemma til ad hitta bilstjorann okkar, Mr. Mor, sem kom og sotti okkur kl. 9. Vid letum hann bara um a rada ferdinni og keyrdi hann okkur um sudurhluta eyjunnar til ad skoda hitt og thetta. Vid forum a mjog flotta utsynisstadi thar sem sast yfir strendurnar her i kring. Vid stoppudum a Kata View Point (gaman hvad allt heitir Kata eitthvad herna!) thar sem var einmitt utsyni yfir Kata Beach og Karon Beach. Vid gerdumst lika aegilega heilog en Mr. Mor for med okkur ad skoda risastoran buddha sem er verid ad smida i tilefni attraedisafmaelis kongsins. Hann er stadsettur a fjallstoppi og er 45 m har og 25 m breidur (Buddhinn, ekki kongurinn)! Hann er tho enn i byggingu og verdur thad allavega 1-2 ar i vidbot en thad hefur tekid 3 ar ad byggja thad sem er komid ef eg hef skilid thetta rett. Svo er svona minni gylltur buddha vid hlidina sem var byggdur handa drottningunni thegar hun vard 75 ara. Vid stora buddhann gat madur sidan gefid smapening og fengid ad oska ser heil oskop. Ekki nog med thad heldur fengum vid lika blessun munks sem gaf okkur banana og armbond eftir ad vid vorum buin ad hneigja okkur. Eg bordadi einmitt einn bananann adan og er ekki fra thvi ad hann hafi gefid mer sma orku...

Sidan skodudum vid fleiri buddha en vid forum ad mjog fallegu hofi i Chalong. Thar helt heilagur andi afram ad hellast yfir okkur og okkur leid bara ordid mjog vel:) Vid budum sidan Mr. Mor i hadegismat a mjog finum stad med utsyni yfir Phuket Town. Thar var mjog godur matur - eda svo fannst okkur thar til Joi beit i kjuklingaspjot sem var ekki alveg fulleldad. Thar med for matarlystin eiginlega... sem var synd thvi maturinn var godur a bragdid. Vid vonum bara ad heppnin verdi med okkur eftir allar thessar heimsoknir i buddhahof og vid faum ekki i magann...

Vid endudum daginn a thvi ad kikja i verslunarmidstod i Phuket Town thar sem vid gatum adeins verslad en sidan voru lappirnar ordnar threyttar og vid buin ad sja thad helsta a svaedinu svo vid forum bara a hotelid og kaeldum okkur i sundlauginni. Thad var nefnilega rosa gott vedur, sol og fineri. Eg meira ad segja vard sma raud a oxlunum thennan stutta tima sem eg var uti i solinni. Svo er bara ad vona ad vedrid verdi gott a morgun en tha er stefnt ad batsferd. Sjorinn er haegari austanmegin a eyjunni en thar sem vid erum thannig ad oldugangurinn aetti ad verda litill.

20.8.07

Dagur tvo

Mikid var eg fegin ad geta sofid i nott! Og thad i ruma niu tima. Thad var sko langthradur svefn. Morgunmaturinn a hotelinu er ofsalega godur. Haegt er ad velja um allt mogulegt, kornfleks, croissant, braud, beikon og egg, bakadar baunir, ameriskar ponnukokur og tailenskar nudlur svo eitthvad se nefnt! Fyrsta verk dagsins var ad fara i nudd og lata nudda ur ser ferdathreytuna. Her beint a moti hotelinu er nuddstofa og fekk eg thar klukkutima heilnudd fyrir heilar 700 kronur:) Eg aetla svo ad profa thai massage a morgun, thetta var bara venjulegt oliunudd. Svo gerir madur thetta a hverjum degi...

Ad loknum hadegismat forum vid til klaedskera til ad lata maela fyrir fotum a okkur. Joi aetlar ad lata sauma a sig tvenn kashmir ullarjakkafot og skyrtu en eg laet sauma a mig kjol ur silkiblondu og pilsdragt, pils og jakka (graent audvitad!). Madur er bara kominn med jolakjolinn nu thegar!

Vedrid i dag er buid ad vera frabaert. Naestum thvi sol (samt mest skyjad), 30 stiga hiti og gola. Thad vaeri alltof heitt ef thad vaeri heidskirt svo ad vid erum alsael med thad.

Nu erum vid ad gera okkur klar fyrir kvoldmatinn. Vid erum enn halfferdaluin en thad hlytur ad fara ad lagast. Morgundagurinn verdur tekinn i slokun en svo forum vid i dagserd med bilstjora a midvikudaginn sem verdur spennandi. A fimmtudaginn aetlum vid svo i siglingu svo ad thad er nog framundan!

Thid afsakid svo stafsetningarvillurnar, thad er svolitid erfitt ad skrifa a apple lyklabord med engum islenskum stofum uppi i rumi!

19.8.07

Komin Til Tailands!

Tha erum vid loksins komin a leidarenda. Ferdalagid gekk mjog vel og var allt a tima. Vid voknudum alveg ogedslega myglud klukkan thrju adfararnott laugardags og heldum af stad stuttu seinna. Komum i Leifssod um fimm og thar fekk eg mer svaka godan morgunmat. Flugid var sem sagt a rettum tima svo ad thar var thungu fargi af fokkur lett. Vid hefdum verid i ansi vondum malum ef thad hefdi ordid einhver seinkun. Nujaeja, stoppudum adeins a Kastrup og fengum okkur bjor og samloku og forum svo i adalflugid. Thad var thessi lika risathota sem vid forum i, rosa fin med nogu plassi fyrir lappirnar a manni, sem var eins gott thvi ad alltaf var verid ad segja manni ad hreyfa thaer til... Thar leid timinn og beid og ekki svaf eg mikid eins og eg aetladi aldeilis ad gera. Eg var buin ad adkveda ad reyna ad sofna vel eftir matinn. Maturinn sem var borinn fram tharna var meirihattar. Haegt var ad velja um nautakjot eda kjuklingakarri og voldum vid sitt hvora tegundina og vorum mjog anaegd. Svo tok eg halfa svefntoflu til ad sofna, reyndi a dkoma mer agaetlega fyrir og eftir sma fotaoeirdir fannst mer eg geta sofnad. Og juju, eg sofnadi adeins en thegar eg vaknadi aftur voru adeins thrju korter lidin og eg ekkert a leidinni ad sofna strax aftur:( Eg nadi svo smalur aftur seinna en thad var allt og sumt. Flugid gekk samt svaka vel og tok 10 og halfan tima. A Bangkokflugvelli rett nadum vid ad fara a milli vela og vid tok stutt og laggott flug til Phuket, ekki nema rumlega klukkutimi. A flugvellinum tok a moti okkur madur fra hotelinu sem keyrdi okkur thangad. Vid komum fyrir klukkan tiu ad stadartima (tha var klukkan ad verda thrju og allt vitlaust a menningarnott orugglega) en vid fengum thvi midur ekki hverbergi fyrr en um eitt... Vid bidum thvi og drukkum bjor, eg for ad snarfinna a mer og threytan for ad segja skemmtilega til sin enda adeins buin ad sofa orfaa klukkutima slitrott sidustu tvo solarhringa. Eg var farin ad dotta i stolinn thegar vid loksins fengum herbergid.

Mottokurnar a hotelinu voru alveg otrulegar. Allir buktudu sig og beygdu og okkur var faerdur rosa finn avaxadrykkur med rorum og blomum og allskonar finerii. Loksins fengum vid svo herbergid og thad er ekkert sma flott! Buid var ad skreyta rumid med rosblodum og skreytingu i tilefni brudkaupsferdarinnar og badid var somuleidis med rosablodum i. Her er internettenging og get eg thvi setid i ruminu og bloggad (eg buin ad leggja mig en Joi hrytur enn), tolva med iTunes og fullt af biomyndum, sjonvarp a flatskja og flottasta badherbergi sem eg hef nokkurn timann sed! I' m loving it!

Ja, vedrid, ekki ma gleyma thvi. Thetta leit agaetlega ut thegar vid lentum en svo thegar vid vorum ad bida eftir hotelherberginu tha rigndi alveg rosalega og thegar vid lobbudum a herbergid var thvilik demba. Thad er vist buid ad rigna svolitid og gerir thad eitthvad afram. Thad er samt 30 stiga hiti og soldid eins og ad vera i sanu thegar madur situr uti! En thad hanga regnhlifar handa okkur inni i fataskap thannig ad hotelid ser um thetta alltsaman:)

Eg veit ekki enn hvernig verdur med myndir en thetta er e-d litil tolva og ekki vist ad haegt se ad hlada myndum inn a hana. Vid finnum tha netkaffihus til thess. Thar til naest...

18.8.07

Ahh, fríid byrjad!


Ahh, fríid byrjad!
Originally uploaded by valdiso

Ahh, fríid byrjad!

17.8.07

Sumarfrí!

Ég er komin í sumarfrí! Júhhú!!!

Við þurfum að vakna um þrjú í nótt til að græja okkur af stað... skemmtilegt:) Flug nr. 1 fer kl. sjö og svo tekur eitt við af öðru. Ég er alveg búin að finna til bækur, setja hljóðbækur inn á ipodinn og auðvitað fullt af tónlist. Og svo svefntöflu svo ég sofi kannski í langa fluginu. Vona að þetta verði allt til þess að það líði ekki mjög hægt. Svo er auðvitað e-ð sýnt í sjónvarpinu í flugvélinni.

Ég held að ég sé líka bara búin að pakka öllu. Óvenju lítill farangur með í för enda erum við bara með handfarangur svo við þurfum ekki að standa í að sækja farangurinn og tékka okkur aftur inn á Kastrup. Þetta er langfljótlegast svona. Svo kaupir maður sér bara eitthvað í útlöndunum! Það er nefnilega allt svo ódýrt í Taílandi, a.m.k. ennþá. Vesen á krónunni að vera að veikjast svona akkúrat núna!

Ég reyni að blogga e-ð í ferðinni og setja inn myndir - fylgist spennt með!

12.8.07

6 dagar í frí!

Í dag eru aðeins sex dagar þangað til við förum til Taílands! Sex dagar í þetta! Úúú hvað það verður skemmtilegt:) Við förum sem sagt til Phuket í Taílandi á laugardaginn og verðum ansi marga klukkutíma á leiðinni. Fljúgum fyrst til Kaupmannahafnar og þaðan beint til Bangkok þar sem við skiptum um flugvél og höldum áfram til Phuket. Allt í allt ca. 19 tíma ferðalag... Það verður bara spennandi að prófa það! Svo er ýmislegt planað úti, siglingar og fílaskoðun svo eitthvað sé nefnt. Við ætlum að reyna að vera dugleg að setja myndir inn á myndasíðuna og jafnvel blogga e-ð að utan. Sérstaklega þar sem er internettenging á herberginu!

Annars er svosum ekki mikið búið að vera að gerast. Skrapp á Apavatn í gær þar sem vinnan var í útilegu. Reyndi aðeins að renna fyrir fisk en allt steindautt. Ég er farin að halda að ég sé svaka fiskifæla, ég veit ekki hvað er langt síðan ég fékk fisk! Við fórum einmitt að veiða aftur í Korpu á dögunum en fengum ekkert þar. Þetta gengur nú bara ekki...

Verslunarmannahelgin var ein sú rólegasta í manna minnum, maður var bara heima á kvöldin að slaka á. Við fórum einmitt í Korpu á laugardeginum og fórum út úr húsi hálfsjö að morgni, svaka hress. Maður hefur nú stundum verið að koma heim á þeim tíma, ekki alveg jafnhress!

En, sex dagar! Eftir viku verð ég í Taílandi! Jibbíjei!!!