2.8.05

Þriðjudagur til þrautar

Ó hvað ég var fegin að vakna ekki í Eyjum í gærmorgun í slagveðri og ógeði og vera svo kannski veðurtepptur þangað til í morgun eftir megadjamm í fleiri daga... úff maður! Nei, ég vaknaði alsæl eftir Innipúka helgarinnar sem var mjög skemmtilegur. Helgin byrjaði á tónleikum á Grand Rokki með Jonathan Richman sem heillaði okkur vinkonurnar alveg upp úr skónum með skemmtilegu prógrammi. Hann átti sko lag helgarinnar, I was dancing in a lesbian bar. Já, bara lag ársins held ég - þó að þetta sé eldgamalt lag reyndar. Á laugardeginum hófst svo Innipúkinn (eftir að ég kláraði Harry Potter með tárin í augunum) með stífu prógrammi. Jonathan gamli spilaði þá um kvöldið og sló auðvitað í gegn en í heildina var bara mikið stuð. Cat Power var reyndar ekki stuð en var í fínu formi miðað við hvað maður hefur heyrt af henni (grenjandi ofan í píanóið á tónleikum og svona) og gaman að sjá hana spila. Loksins sá ég líka Mugison spila - mjög góður, svona að mestu leyti. Brim áttu svo frábært kommbakk og hurfum við Parísarpæjurnar aftur í tímann og sörfuðum í metróinu eins og í gamla daga...

Á sunnudaginn var byrjað á að borða hjá Önnu Katrínu snilldarkokki, mjög snemma til að missa nú ekki af neinu spennandi. Prógramminu hafði þá reyndar verið breytt (aftur) þegar við mættum en það kom ekki að sök þar sem við misstum ekki af neinu nema restinni af hvítvíninu hjá Önnu (sem var soldið svekkjandi...). Þetta kvöld átti nú að verða aðalstuðkvöldið en varð það samt ekki. Í fyrsta lagi kláraðist allur bjór úr dælu á Nasa fyrir ellefu þannig að eini bjórinn sem var til í húsinu var lítill Carlsberg í flösku á 600 kall. Eins gott að við höfðum með okkur nesti! Í öðru lagi var hreint óþolandi bið á milli hljómsveita sem varð til þess að maður datt soldið úr stuðinu. Í þriðja lagi var ekkert brjálað stuð á hljómsveitunum, þótt þær hafi margar verið góðar, fyrr en að Trabant spilaði en þá var maður orðinn svo þreyttur...

Skemmtileg helgi í heildina en gott að vakna bara í sínu rúmi á morgnana!

Engin ummæli: