Gat nú verið - tónleikarnir sem ég fór EKKI á fengu svakalega dóma í Mogganum í dag. Fullt hús stjarna takk fyrir! En það þýðir víst lítið að svekkja sig á því, ég bíð bara spennt eftir Antony and the Johnsons á mánudaginn og svo fæ ég vonandi miða á Innipúkann á morgun:)
Ég er búin að vera að fylgjast með fréttum frá London í allan dag, þetta er alveg skelfilegt. Þetta er komið svo nálægt manni, árásir í London og hótanir um jafnvel að sprengja eitthvað í Danmörku...
Sá leiðinlega villu á mbl.is í sambandi við þetta í dag. Talað var um að Elísabet Englandsdrottning hefði verið hrærð yfir sprengjuárásunum. Er ekki jákvætt að vera hrærður yfir einhverju? Er maður ekki hrærður yfir því þegar einhver gerir eitthvað fallegt fyrir mann eða þegar maður vinnur jafnvel til verðlauna? Greinilegt að þetta hafði stuðað fleiri en mig því að nú er Elísabet orðin slegin yfir árásunum...
7.7.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli