30.6.06

Við erum svín!

Geeeðveikir tónleikar í gærkvöldi. Ham komu aftur, sáu og gjörsigruðu salinn. Þvílíkt rokk og ról! 9-11´s hituðu upp berir að ofan í leðurbuxum með sítt hár, ófrumleg tónlist en þétt þungarokk. Svo komu snillingarnir og spiluðu í rúman klukkutíma og spiluðu allt það helsta. Nema Voulez-vous. Sveitt stuð!

Ég rétt náði miða á Nick Cave í gær. Var fyrir framan tölvuna á slaginu 10, tilbúin að kaupa miða en kerfið hjá mida.is höndlaði greinilega ekki álagið. Ég var komin með miða framarlega fyrir miðju þegar kom "system error" og ekki hægt að kaupa. Var á tímabili með tvær tölvur fyrir framan mig að reyna að kaupa en allt í rugli. Loksins fór pöntunin í gegn og ég að fara í fjórða skiptið að sjá meistarann. Ekki á fremsta bekk en ég hef svosum verið þar áður. Jibbí!

Meiri tónleikar framundan, Belle and Sebastian næst á dagskrá í lok júlí. Aðeins huggulegra en Ham, satt best að segja.

Róleg helgi svo framundan, spennandi fótbolti í dag og á morgun. Gaman...

23.6.06

Frábær föstudagur!

Þá vitum við það, í dag er besti dagur ársins!

22.6.06

Hahahahaha

Híhíhí

21.6.06

Skemmtilegt...

Maður getur alveg gleymt sér á þessari síðu. Allskonar myndbönd frá 9. áratugnum, bæði gott og slæmt. Ef ykkur leiðist þá getur þetta bjargað.

Magnaður miðvikudagur

Sólin skín í heiði og Dylan karlinn hljómar í eyrunum. Netið heima er komið í lag og ég get því hætt að tuða í OgVodafone í bili. Týnt lag kom í leitirnar í gær eftir 12 ára leit. Hörkufótbolti í gærkvöldi og kannski jafnvel í kvöld. Já, life is sweet eins og sungið var um í den.

19.6.06

Myglaður mánudagur

Ljómandi fínni helgi lokið og grámyglan tekin við. Fór í afskaplega fínt matarboð á föstudaginn þar sem var dýrindis fiskisúpa á borðum og ljúffeng ostakaka í eftirrétt. Fór þó heim fyrir miðnætti þó það hafi verið gaman til að vakna fersk í þjóðhátíðarveiðina. Dúðaði mig í lopapeysu og regngalla frá toppi til táar en engin var rigningin. Meiraðsegja varð aðeins of heitt á tímabili. Keypti einmitt regngallann sérstaklega fyrir sautjándann í fyrra og þá var nú besta veður í manna minnum. Kaupi nýja regnhlíf á næsta ári eða eitthvað. Engin var þó veiðin í ár en ein flundra slapp naumlega af öngli Þórdísar. Þjóðlegt hangikjöt var á borðum eftir æsispennandi handbolta og fótbolta í Dísukoti. Helginni var svo lokið með því að þrífa sameign (reyndar Jói en ekki ég...) og klára að setja saman Ikea skápinn fræga.

Svo er bara að vinnast.

16.6.06

Ikea raunir

Hafa ekki allir lent einhvern tímann í Ikea raunum? Vara ekki til en væntanleg þegar maður er loksins búinn að velja, vara búin í litnum sem maður hefur verið að kaupa og kemur ekki aftur o.s.frv. Við erum búin að vera tíðir gestir í Ikea undanfarnar vikur vegna íbúðarinnar og yfirleitt hafa hlutirnir gengið ágætlega fyrir sig og við bara ánægð með vörurnar. Svo keyptum við okkur fataskáp til að setja yfirhafnir og slíkt í eftir langa umhugsun og pælingar um hvernig væri best að hafa þetta. Það gekk allt hefðbundið fyrir sig, við sóttum hann á lagerinn og burðuðumst með hann heim (níðþungur andskoti) og höfðum hann svo í kassanum í nokkra daga þar sem við náðum aldrei að setja hann saman. Loksins þegar var komið að því að setja saman skápinn (að kveldi mánudags dauðans) kom í ljós að þetta var VITLAUS SKÁPUR! Við fengum einfaldan skáp en ætluðum að kaupa tvöfaldan. Grrrr. Mér var ekki skemmt, svo vægt sé til orða tekið, kassinn tættur í sundur og kassakvittunin týnd. Ég þakka enn fyrir það að skyldi vera búið að loka þetta kvöld því að ég var tilbúin að hella mér duglega yfir aumingja starfsfólkið í Ikea. Daginn eftir sendi ég hins vegar mjög kurteislegt tölvubréf til Ikea þar sem ég skýrði frá þessu og var lofað að ég gæti skilað þessu þó að kassinn væri rifinn upp og kvittunin týnd. Í gær drusluðum við (eða Jói) skápnum aftur í Ikea, fengum fyrirtaks þjónustu og fría heimsendingu á nýja skápnum sem nú er næstum því búið að setja saman. Happy ending og allir kátir. Mórall: Það borgar sig að vera kurteis!

15.6.06

Hann var á!

Nú er ég montin yfir fjölskyldunni...

13.6.06

Zzzzzzz

Meira hvað mann syfjar svona seinnipart dags. Sérstaklega þegar maður situr einn úti í horni og er að lesa sér til um miðmynd. Svo vantar mig líka tónlist í vinnuna. Verð að fara að gera eitthvað í því þó að hún pandóra hafi dugað ágætlega hingað til. Þetta lagast líka í vikunni þegar við fáum aðgang að tölvustofu nokkur saman, þá getur maður farið að geispa í takt við aðrar sálir.

Svindl þessi skítakuldi úti. Sól og kalt eða rigning og hlýtt. Hvað á það að þýða? Ætli það verði ekki blautur sautjándi í ár. Veðrið í fyrra endurtekur sig sennilega ekki næstu árin, jafnvel áratugina svo maður sé nú ekki of bjartsýnn.

Þrettándinn í dag sem þýðir að stóra systir á stórafmæli. Til lukku gamla mín! Allt er fertugum fært og allt það. Tilefni til að mæta í afmælismat í kvöld allavega.

Jæja, mætir bossinn. Þá fer maður að vinna.

9.6.06

9. júní

Þetta fer að verða svona vikuleg skýrsla hjá mér: þetta gerði ég í vikunni og svona verður helgin ... blablabla. Allavega: Síðasta helgi var frábær, æðislegt brúðkaup, dansað og djammað fram á nótt, sumarnótt í júní, æði. Vikan bissí, vinna á fullu og gera klárt fyrir innflutningsafmælisboð í kvöld. Mikið þreytt á kvöldin núna. Í dag: afmæli og HM í fótbolta. Jói karlinn á afmæli í dag, til hamingju með það! Af því tilefni fyrrnefnt boð í fínni íbúð.

Verst finnst mér að hafa ekki Sýn til að horfa á boltann. Mér finnst gaman að horfa á HM, stælta gæja fara úr að ofan, já og svo auðvitað leikina líka (ehemm...). Ég er á móti Sýn, þeir rukka 14.000 kall fyrir þennan mánuð! Glætan spætan að ég fari að splæsa í það. Eða að taka fleiri en einn mánuð, til hvers? Allir sem eru með Sýn fá því heimsóknir frá okkur næstu vikurnar. Svo er líka bara hægt að skella sér á Players...

2.6.06

Bloggast í miðmynd

Í sumar ætla ég að leitast við að notast sem mest við st-sagnir, sagnir sem enda á -st. Ég ábyrgist ekki að það takist en vonast til að það heppnist. Ég efast einnig um að þið kannist við þær allar en sumar virðast ansi furðulegar. Þetta verður hluti af sumarvinnunni minni, sagnirnar hrúgast upp í tölvunni minni og munu þar flokkast og greinast eftir stöðu og merkingu. Skemmtilegt, ekki satt?

Um helgina ætlar góð vinkona mín að giftast og yfir því ber að gleðjast. Fólk ætlar að hittast í þar til gerðri búðkaupsveislu og kætast í tilefni dagsins. Ég er viss um að veitingarnar bragðast vel þar á bæ. Það á því ekkert að ferðast innanlands um helgina þó að það spái 20 stiga hita fyrir norðan. Frekar á eitthvað að gerast í íbúðinni, gluggar að lakkast og loft að málast. Sjáumst!

1.6.06

Definitely not...

Ég er nú ekki alveg sammála þessu vali...