31.3.06

Bakkabúinn

Við erum loksins búin að skrifa undir kaupsamning! Jibbí! Við fáum afhent 22. apríl, vonandi allavega, og höfum þá viku til að mála, þrífa og flytja. Vá hvað ég hlakka til! Hér eru nokkrar myndir af slotinu:


Gaman að grilla þarna!
Borðstofan/Stofan. Þarna er gengið út á grillsvalirnar...


Þarna ætlar Jói að elda:)
Eldhúsið/Borðstofan.


Bjart og fínt.
Stofan.


Gengið inn í íbúð hægra megin.
Gangurinn, þarna sést í inngang inn í herbergin og baðherbergi.


Svalirnar snúa inn í lengjuna.
Þetta er svo húsið, okkar íbúð merkt með rauðu.

Já, svona lítur það út. Þá getum við farið að bjóða fólki í almennilegt grill og innflutningspartí og, tja, bakkelsi... Nóg pláss og allt!

27.3.06

Áfram Wham!

Ég vissi alltaf að Wham væru betri...

21.3.06

In the ghetto...

Það er orðið ansi langt síðan ég hef skrifað eitthvað hérna en ég hef einhvern veginn ekki nennt að standa í því, sérstaklega þar sem allt er búið að vera í óvissu með íbúðamál, vinnumál og fleira skemmtilegt. Nú er þetta hins vegar allt að skýrast. Við erum sennilega að fara að kaupa okkur íbúð í gettóinu. Já, nú ætlum við að flytja í Breiðholtið, nánar tiltekið í Grýtubakkann. Þetta varð niðurstaðan eftir mikla leit og fáránlega hátt fasteignaverð alls staðar. Íbúðin er 3 herbergja og mjög rúmgóð og björt. Að vísu erum við ekki búin að skrifa undir neitt en málin eru í vinnslu í bankanum og svoleiðis og vonandi verður gengið frá þessu í þessari eða næstu viku. Jibbí!

Annars eru vinnumálin óljós enn, ég fékk að vísu smáverkefni tímabundið en er að bíða eftir svörum með annað. Það skýrist líka vonandi allt saman á næstunni. Nóg að gera sem sagt þessa dagana! Fylgist spennt með...

11.3.06

Lördag

Þetta er mjög, mjög illa skrifuð frétt. Ég skil alveg að sá sem skrifar hafi verið þreyttur fyrir klukkan sjö í morgun - en samt! Nöfn foreldra hennar eru ekki einu sinni beygð!

Ég dreif mig í bíó í vikunni sem þykir teljast til tíðinda þessa dagana. Fór á Walk the Line sem er alveg frábær. Tónlistin auðvitað mjög skemmtileg og alveg nauðsynlegt að heyra hana í bíó. Enda er ég búin að vera með Cash á heilanum og í græjunum síðan og kom sér vel að eiga alla þessa diska með honum sem ég fékk í útskriftargjöf! Saga hans og June er líka svo falleg og leikararnir ná að gera þetta allt mjög vel. Og svo syngja leikararnir sjálfir í myndinni - sem er ótrúlegt en satt. Mæli sem sagt með myndinni alveg hiklaust.

Sá líka The Constant Gardener á dögunum og mæli með henni. Og það ekki bara af því að Ralph Fiennes foli leikur í henni heldur er myndin alveg svakalega góð.

Talandi um bíómyndir, ég sá eitthvað af Bafta verðlaununum um daginn. Þar var Rachel Weisz tilnefnd sem besta leikkona í aðalhlutverki (en Reese Witherspoon vann) en svo vann hún Óskarinn fyrir besta leik í aukahlutverki... Skil þetta ekki alveg.


Annars er algjör rólegheitahelgi hér á bæ. Ekkert planað nema vídeó í kvöld bara. Það er reyndar mjög fínt þar sem síðustu tvær helgar hafa farið í veislur og læti.

8.3.06

Ekki vitlaust!

You scored as Linguistics. You should be a Linguistics major!

Linguistics

92%

English

75%

Philosophy

75%

Psychology

67%

Mathematics

67%

Dance

58%

Engineering

58%

Sociology

50%

Theater

50%

Journalism

42%

Anthropology

42%

Biology

33%

Art

25%

Chemistry

17%

What is your Perfect Major? (PLEASE RATE ME!!<3)
created with QuizFarm.com

6.3.06

Á forsíðu!

Jahérna, ég var barasta sett á forsíðuna líka!

3.3.06

Á barmi heimsfrægðar?

Ég lenti í mjög skrýtnu í dag. Var búin að koma mér fyrir til að horfa á bíómynd (enn ekki farin að vinna...) þegar síminn hringir. Þá er það stúlka frá Fréttablaðinu sem segist vilja taka viðtal við mig fyrir dálkinn „tímamót“ þar sem ég hafi verið að útskrifast úr Háskóla Íslands um síðustu helgi. Ég verð auðvitað mjög hissa og spyr hvort að það sé nú ekki aðallega eitthvað frægt fólk þarna (t.d. átti Þorvaldur Bjarni fertugsafmæli í dag og var þarna). Þá segir hún að það sé ekkert gaman að tala alltaf við sama fólkið og fannst forvitnilegt að ég hefði verið að útskrifast ein úr einhverju sem héti tungutækni. Ég lét þá bara til leiðast og tók stúlkan við mig stutt viðtal sem birtist í Fréttablaðinu á mánudaginn skilst mér! Ljósmyndari frá þeim kom svo og tók nokkrar myndir af mér fyrir framan Háskólann... mér leið pínu svona eins og í „America´s Next Top Model“, með vindinn í hárið og svona - nema að ég var auðvitað ekki á bikiní. Allir að skoða svo Fréttablaðið á mánudaginn:)

1.3.06

Miðvikudagur

Þá er maður rétt að ná sér eftir helgina, það varð hálfgert spennufall eftir laugardaginn. Dagurinn heppnaðist þó alveg frábærlega, við systur héldum afskaplega vel heppnað hanastél, þótt ég segi sjálf frá, og fórum svo út að borða á eftir hjá Sigga Hall á Óðinsvéum. Þar var Food and Fun í gangi og alveg svakalega góður matur. Mest á óvart kom þorskurinn sem ég hélt að hlyti að vera vondur en reyndist síðan það besta á matseðlinum!

Nú er ég að rembast við að útbúa stuttan fyrirlestur um verkefnið mitt sem ég á að halda í fyrramálið. Ég er hreint alveg dottin úr stuði til að skrifa nokkuð eða segja um verkefnið mitt. Kosturinn við þetta er að fyrirlesturinn er stuttur þannig að þetta verður ekkert stórmál. Samt erfitt að vera að gera eitthvað... úff, þarf að leggja mig!