27.9.05

Þriðjudagur

Þvílík grámygla! Ég segi ekki annað... Ég vaknaði í nótt við rokið hérna uppi og gat ekki sofið, svitnaði og kólnaði á víxl og er svo eins og tuska í dag. Ojbara. Ég nenni ekki að fara að verða veik núna. Ég verð vonandi hressari strax á morgun.

Annars leiðist mér massa mikið hérna heima, ég er eitthvað að pjakkast í orðasafninu er er samt eiginlega búin og er að bíða eftir frekari leiðbeiningum. Ég ætla ekki að byrja á verkefninu fyrr en í næstu viku held ég, ég þarf að undibúa mig andlega fyrir það þangað til...

Ég hitti annars svo sætan strák í gær, hann er rétt rúmlega tveggja vikna gamall og skeit í fanginu á mér. Mér var samt alveg sama. Ég verð nú bara að hrósa vinkonum mínum með það hversu vel hefur heppnast í þessari barnagerð. Hvert barnið öðru myndarlegra og ég er strax farin að hlakka til að hitta grislingana aftur.

Svo er ég búin að fá nokkra nýja geisladiska mér til mikillar gleði og ánægju. Það er svona að eiga afmæli og góða vini;) Ég eignaðist sem sagt disk með Caribou, nýja Sufjan Stevens diskinn og Pink Moon með snillingnum Nick Drake. Takk fyrir það!

Engin ummæli: