Það er aldeilis ég er búin að vera bissí, enginn tími til að röfla eitthvað á þessari síðu! Ýmislegt búið að gera í vorblíðunni síðustu daga. Fór t.d. með finnskan gest í „golden circle“ bíltúr og prófaði um leið nýja bílinn á þjóðveginum. Að sjálfsögðu stóð hann sig með mestu prýði. Svo er ég að klára eitt stykki ritgerð í setningafræði og býst fastlega við því að kíkja í sveitina um helgina að hlusta á fuglana syngja og lömbin jarma úti í móa.
Svo er það nefnilega dauðans alvara framundan. Próf í tölvunarfræði á laugardaginn eftir viku. Úff, ég á örugglega eftir að fela mig í fjóshaugnum bara í staðinn fyrir að mæta í prófið. Líst hreinlega ekkert á það!
Eftir prófið hefst svo undirbúningur fyrir Finnlandsför en ég var að komast að því í vikunni að ég þarf ekki að halda fyrirlestur eftir alltsaman. Ég á að kynna verkefnið mitt á plakati eða nokkrum A4 blöðum sem eru límd á spjald. Svo á ég að vera við þetta plakat í ákveðinn tíma og svara spurningum þeirra sem meira vilja vita. Ég hef aldrei gert neitt þessu líkt þannig að það verður spennandi að prófa það. Ég er nú samt hálffegin að þurfa ekki að halda fyrirlestur á ensku fyrir framan fullt af fólki... það finnst mér alltaf svolítið stressandi.
Góða helgi gott fólk!
29.4.05
22.4.05
Stuðlagið
Er ekki kominn tími á gott stuðlag svona í tilefni af fyrstu helgi sumars? Lagið er með þeirri hýru hljómsveit Scissor Sisters og kemur manni aldeilis í gírinn fyrir helgina. Ekki það að ég stefni á neitt sukk eða svoleiðis... þetta kemur manni meira í góða skapið. Hlýðið á og njótið yfir grillinu eða ölinu - og góða helgi!
21.4.05
Sumar!
Gleðilegt sumar gott fólk! Loskins, loksins er veturinn búinn og það er meira að segja bara ágætis veður þennan fyrsta sumardag. Ég las líka að sumar og vetur hefðu frosið saman í nótt en það ku boða hlýtt sumar:)
Í gær var líka góður dagur en þá gengum við frá kaupum á bíl! Samningar tókust um kaggann flotta og settum við hinn upp í. Reyndar verður nokkur söknuður af gamla góða bílnum enda hefur hann staðið sig frábærlega þau 3 ár sem við höfum átt hann. En nú var kominn tími til að skipta og loksins er maður á bíl með rafdrifnum rúðum, samlæsingum og... hita í sætum! Okkur vantar bara nafn á hann - númerið er RD-001 en ég fæ ekki samþykkt að kalla hann Rosa Dúllu - skil það bara ekki! Allar hugmyndir vel þegnar takk.
Í vikunni sá ég aðra afskaplega góða mynd á kvikmyndahátíð, Hotel Rwanda. Svakalega góð mynd sem gerist í Rúanda árið 1994 þegar allt varð vitlaust þar en Vesturlandabúar sneru sér í aðra átt og gerðu ekkert í málunum. Vönduð mynd og góður leikur. Vekur mann aldeilis til umhugsunar...
Enn ein helgin framundan og allt óráðið. Vonandi kemst maður allavega í smábíltúr á fína bílnum. Maður þarf að prófa hann á þjóðvegunum líka:)

16.4.05
Laugardagur
Ægileg rólegheit eru á manni þessa dagana, sónvarpsgláp og ef til vill bíó helgi eftir helgi. Ekki að það sé einu sinni neitt merkilegt í sjónvarpinu um helgar. Ég slysaðist til að horfa á byrjunina á Djúpu lauginni 2 í gærkvöldi en hætti þegar þáttastjórnandinn (18 ára stráklingur sem var í Idol) spurði stúlkurnar þrjár sem sátu þarna ljóshærðar: Jæja, haldiði að hann geti framfleytt ykkur, svona af röddinni að dæma? Úff, skipti yfir á þáttinn hans Hemma Gunn þar sem voru gaulandi karlar og kerlingar en endaði á að horfa á allt sem ég hafði tekið upp í vikunni þegar ég var ekki heima. Guði sé lof fyrir vídeóið!
Annars erum við kannski búin að finna okkur bíl, ég vona bara að kaupin gangi upp. Þetta er gripurinn sem er í sigtinu en það kemur betur í ljós eftir helgina hvort þetta gengur allt eftir...
Svo er það harkan sex enn eina ferðina. Af hverju þarf maður alltaf að trassa allt fram á síðustu stundu? Ég ætlaði að vera búin að gera svo miklu, miklu meira en ég er búin með. Stórhættuleg þessi tölva með sínu bloggi, Skype og iTunes...

12.4.05
Þriðjudagsblogg
Hvað á þetta að þýða að hafa snjó úti á miðju vori? Það þurfti að skafa snjó af bílnum í morgun! Eins gott að sumardekkin voru ekki komin undir bílinn. Annars gengur ekkert hjá okkur að finna bíl. Það er afskaplega lítið af notuðum fínum Grand Vitara bílum til sölu og þeir sem við vildum kaupa voru seldir áður en við komumst að. Einhvers staðar þarna úti er kagginn minn að keyra og bíður eftir að komast til mín... ég verð bara að bíða eftir honum.
Ég fór á svo yndislega mynd um helgina, The Garden State, sem sýnd er á kvikmyndahátíð. Ég mæli með henni ef þið viljið sjá eitthvað á hátíðinni. Ég væri alveg til í að sjá fleiri myndir þarna og vonandi kemst ég í það á næstunni. Reyndar þurfti ég að hugsa málið þegar ég var beðin um að koma í bíó því að ég er orðinn alltof háð sjónvarpsdagskránni. Ég vissi ekki alveg hvernig ég gæti tekið upp af þremur stöðvum í einu en að lokum lét ég til leiðast og sá ekki eftir því. Þökk sé Stöð 2+:)
Að öðru leyti var þetta hin rólegasta helgi, ég fór í leikhús á laugardagskvöldið að sjá sýningu Hugleiks, Patataz. Ágætis skemmtun það. Svo frumsýnir Hugleikur nýtt leikrit í maí sem maður verður að sjá...
Sá svo furðulega mynd á Skjá 1 á föstudagskvöldið, Tremors með Kevin Bacon og fleirum. Alveg ágætis skemmtun en algjör vitleysa að sjálfsögðu. Ef þið lesið um hvað myndin er þá skiljið þið kannski hvað ég á við!

9.4.05
Lúði
Ég er algjör lúði. Ég átti að skila verkefni fyrir klukkan sex í gær og aldrei þessu vant var ég löngu búin með það. Samt hugsaði ég með mér að ég skyldi nú ekki skila því fyrr en á föstudeginum. Í morgun fattaði ég svo allt í einu að ég hafði gleymt að skila verkefninu eftir alltsaman. Og var það af því að ég var svo önnum kafin við annan lærdóm? Ónei, ég sat allan daginn að flokka tónlistina mína inn í iTunes... og er ekki búin enn! Ég skilaði helv... verkefninu áðan og vona að ég fái það metið. Og ekkert iTunes rugl í dag, ég lofa því.
5.4.05
Flugið bókað
Ég er búin að bóka til Finnlands! Ég verð alltaf svo spennt þegar ég er að bóka ferð, hjartað slær örar og maður getur ekki einbeitt sér að neinu öðru:) Ég ætlaði að bóka í gegnum Icelandair en þá kostaði flugið minnst 50.000 krónur. Eftir margar tilraunir og allskonar samsetningar fann ég fínan díl þar sem ég fæ netsmell til Stokkhóms 18. maí og frekar ódýrt flug með SAS áfram til Helsinki þar sem ég verð svo til 26. maí. Og svo er eiginlega búið að lofa mér styrknum líka þannig að þetta verður allt í gúddí... gaman gaman!
Þriðjudagur
Ég elska góða spennuþætti, er algjörlega sokkin í 24 og það virðist sem Lost ætli að verða annar svoleiðis þáttur. Þvílíkur þáttur í gær, eins konar sambland af Survivor og Stephen King! Hlakka til að fylgjast með þáttunum á næstunni.
Ég var að enda við að skrá mig í Háskólann eina ferðina enn. Hvað ætli ég sé búin að skrá mig oft í þennan blessaða skóla? Vonandi verður þetta þó í síðasta skipti í bili enda skráði ég mig í MA-ritgerð og brautskráningu í febrúar.
Annars hef ég ekki hugmynd um hvað verður kennt lengi á önninni. Einhvers staðar heyrði ég að næsta vika væri síðasta vikan í Hugvísindadeild og það þýðir þá að þarnæsta vika sé síðasta kennsluvika í tölvunarfræðinni! Það er alveg ágætt, þá verður ekki mikið meira efni til prófs en það þýðir hins vegar að ég þarf aldeilis að spýta í lófana. Eitt stykki ritgerð fyrir mánaðamót, próf 7. maí og svo Finnland 20. maí!

1.4.05
Föstudagur
Ég var að fá svo frábæran disk í hendurnar, eða réttara sagt diska. Þrefaldur safndiskur með Nick Cave, B-Sides & Rarities, sem inniheldur alls konar b-hliðarlög og annað skemmtilegt eins og titillinn gefur til kynna. Margt gott á diskunum sem maður hefur aldrei átt en samt fullt af dóti sem maður á fyrir, mætti vera meira um „rarities“ kannski. Fyrir utan það fékk ég hann svo á 1200 krónur (20 dollara) frá Bandaríkjunum! Ekki slæm kaup það:)
Annars er lítið planað þessa helgina, mig langar óneitanlega að kíkja út úr húsi í svona fallegu veðri þannig að það er aldrei að vita hvað mér dettur í hug að gera. Svo er líka svo mikið um að vera í næturlífinu... góðar stundir!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)