30.7.05

Picture(1.jpg


Jonathan... aftur! Hann er ædi!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

29.7.05

Picture(1.jpg


Jonathan Richman!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Trukkar

Það eru meira en 10 trukkar fyrir utan Odda núna sem ætla að keyra lúshægt í gegnum borgina að Vesturlandsvegi. Ég sem ætlaði að fara í Kringluna að kaupa mér Innipúkaföt fyrir skattpeninginn sem ég fékk í dag. Ég ætla bara beint heim eftir vinnu, er hrædd við trukkana...

Verslunarmannahelgi

Hjálp, hvað tíminn er fljótur að líða. Skyndilega er komin verslunarmannahelgi og sumarið að verða búið... svona næstum því! Eins og ég hef nefnt hér áður þá er ég að fara á Innipúkann um helgina þar sem verður þétt dagskrá. Helgin byrjar þó í kvöld á tónleikum á Grand rokk með Jonathan Richman sem verður reyndar líka á Innipúkanum. Það verður samt öðruvísi að sjá hann á minni tónleikum þar sem hann er einn og vonandi bara gaman.

Helgin á því eftir að snúast um tónleika og kannski, ef tími vinnst til, næ ég að lesa meira í Harry Potter. Gaman gaman! Góða helgi gott fólk og farið varlega í umferðinni...

28.7.05

Útvarp

Það var verið að benda mér á snilldarsíðu með útvarpi á netinu. Á síðunni má finna útvarp - ekki með neinu kjaftæði á milli laga - með hreint allskonar tónlist. Maður getur valið um 80´s tónlist, alternative tónlist, kristilega tónlist og írska tónlist svo eitthvað sé nefnt! Þetta er alveg frábært t.d. ef maður vill hlusta á eitthvað í vinnunni eins og ég geri eða bara heima. Gaman að finna eitthvað nýtt svona...

26.7.05

Þriðjudagur

Ég á ekki orð yfir veðrinu hérna, sól og blíða dag eftir dag - en svo spáir bara rigningu um verslunarmannahelgina... Æ, ég verð Innipúki hvort eð er þannig að veðrið skiptir ekki öllu máli fyrir mig.

Image Hosted by ImageShack.us



Ég var í sveitinni um helgina í hreint yndislegri blíðu og fékk það verkefni að mála girðingarstaura sem var bara fínt. Mér leiðist hvort eð er að liggja bara í sólinni að gera ekki neitt! Að vanda var veislumatur á borðum og síðan var sungið við varðeld í kolagrilli fram á nótt... alveg hreint afskaplega ljúft.

Ég keypti svo Harry Potter á sunnudaginn og er hálfnuð með hana. Líst vel á, mjög spennandi eins og hinar bækurnar...

Vitið þið annars hvað það heitir sem maður þræðir beltið í gegnum á buxum?

23.7.05

Picture(1.jpg


Yndislegt sumarkvöld í sveitinni.
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

21.7.05

Og?

Þetta er ein besta frétt á mbl.is sem ég hef séð lengi. Segir manni mikið...

20.7.05

Sumarsumarsumar

Er loksins komið sumar? Á maður að þora að segja það? Það er allavega alltof heitt til að vinna inni í lokuðu tölvuveri, það er alveg ljóst. Mig vantar svo stuttbuxur til að nota í sólinni en ég þori ekki að kaupa þær því að þá fer góða veðrið alveg örugglega. Ég ætti kannski að kaupa stígvél við regngallann fyrir helgina svo það verði nú gott veður?

19.7.05

Nördapróf...

Semantics
SEMANTICS: You are semantics. Be true to your
field, but remember: debating the meaning of
the word
"Supercalifragilisticexpealidocious"
never got Mary Poppins anywhere.


What's Your Linguistic Sub-Discipline?
brought to you by Quizilla

Hvað er það nú þá?

You scored as agnosticism. You are an agnostic.
Though it is generally taken that
agnostics neither believe nor disbelieve
in God, it is possible to be a theist
or atheist in addition to an agnostic.
Agnostics don't believe it is possible
to prove the existence of God (nor lack thereof).

Agnosticism is a philosophy that God's
existence cannot be proven. Some say it
is possible to be agnostic and follow a
religion; however, one cannot be a devout
believer if he or she does not truly believe.

agnosticism

79%

Buddhism

58%

Islam

50%

Christianity

50%

atheism

42%

Hinduism

38%

Paganism

38%

Judaism

29%

Satanism

25%

Which religion is the right one for you? (new version)
created with QuizFarm.com

Ég er eiginlega engu nær um hverju ég trúi...

18.7.05

Hmm

Þannig var það þá...

Skemmtilizzle

Híhí, ég þýddi síðuna mína á gangsta mál. Kíkið á það! Mizzle skemmtilizzle...

15.7.05

mbl dagsins

mbl.is er fróðlegur og skemmtilegur vefur en skemmtilegast er þó þegar maður finnur fáránlegar villur í fréttunum þar. Ég veit ekki alveg hvers konar fólk fær að skrifa fréttirnar og auðvitað gerir maður oft innsláttarvillur en samt...

Í dag eru t.d. tvær skemmtilegar fréttir:

„Pitt var lagður inn á sjúkrahús skömmu eftir að hann kom heim frá Eþýópíu en þangað fór hann ásamt leikkonunni Angelinu Jolie, sem var að sækja barn sem hún ættileiddi.“

„Að minnsta kosti tveir slösuðust er strætisvagn og rúta lentu í rekstri á Túngötu við Landakot í Reykjavík klukkan 11:16 í dag.“

Oft er svona fréttum þó breytt til hins betra en svona lagað á ekki að sjást...

Annars hefur verið nóg að gera í vikunni, Finnarnir fengu geggjað veður í gær þegar við fórum túristahringinn og eru þau alveg veik í að koma aftur sem þau gera vonandi. Sveitin - enn og aftur - um helgina. Góður matur í vændum og vonandi ekki alltof mikil rigning. Þá er bara að taka innipúkann á þetta og spila eða lesa í rólegheitunum!

14.7.05

Picture(1.jpg


Ég og Gullfoss
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

13.7.05

Hmmmm

Spurning um að fá símann hjá honum...

12.7.05

Þriðjudagur

Ojojojoj hvað er ógeðslegt veður úti! Það mætti halda að það væri kominn september - sem að öðru leyti er alveg frábær mánuður... Hvað er málið??

Ég fór á tónleikana í gær með Antony and the Johnsons á Nasa og það var mjög fínt. Alveg stappað af fólki - enda uppselt - og því erfitt fyrir stubba eins og mig að sjá nokkurn skapaðan hlut. Sérstaklega þar sem Antony og félagar sátu allir á sviðinu... Antony greyið var nú svosum ekki mikið fyrir augað þannig að það var kannski í lagi. Skemmtilegur gaur samt og frábært hljóð á staðnum þannig að þetta var bara fínt.

Ég komst líka á Þjóðminjasafnið um helgina í fyrsta skipti. Alveg magnað að skoða þessa sögufrægu hluti eins og Valþjófsstaðahurðina og Guðbrandsbiblíu og fikra sig um leið í gegnum Íslandssöguna. Mæli með þessu fyrir alla sem eiga eftir að fara - það er ókeypis á miðvikudögum!

Finnafjör næstu daga. Í dag sæki ég tvo Finna á flugvöllinn sem verða hér fram á föstudag. Vikan fer því í túristastúss og þess háttar með þeim. Óskandi að þau fengju betra veður samt sém áður. Leiðinlegt að þau fái að kynnast íslenska „sumrinu“ svona...

7.7.05

Fimmtudagur

Gat nú verið - tónleikarnir sem ég fór EKKI á fengu svakalega dóma í Mogganum í dag. Fullt hús stjarna takk fyrir! En það þýðir víst lítið að svekkja sig á því, ég bíð bara spennt eftir Antony and the Johnsons á mánudaginn og svo fæ ég vonandi miða á Innipúkann á morgun:)

Ég er búin að vera að fylgjast með fréttum frá London í allan dag, þetta er alveg skelfilegt. Þetta er komið svo nálægt manni, árásir í London og hótanir um jafnvel að sprengja eitthvað í Danmörku...

Sá leiðinlega villu á mbl.is í sambandi við þetta í dag. Talað var um að Elísabet Englandsdrottning hefði verið „hrærð“ yfir sprengjuárásunum. Er ekki jákvætt að vera hrærður yfir einhverju? Er maður ekki hrærður yfir því þegar einhver gerir eitthvað fallegt fyrir mann eða þegar maður vinnur jafnvel til verðlauna? Greinilegt að þetta hafði stuðað fleiri en mig því að nú er Elísabet orðin „slegin“ yfir árásunum...

5.7.05

Innipúki

Ég verð þokkalega á Innipúkanum um Verslunarmannahelgina! Cat Power að koma!!!! Mikið rosalega hlakka ég til, eins gott að ég fái miða...

Bjartsýn...

Ef einhvern langar að bjóða mér á tónleikana í kvöld þá er bara að láta vita! Verst að maður var ekki á Stokkseyri í gær...

4.7.05

Monday, monday

Er búin að vera með lagið Monday monday á heilanum í allan dag, eðlilega. Enda var það spilað í útvarpinu í morgun og þar með var það orðið fast!

Ég kíkti í Hljómskálagarðinn á föstudagskvöldið og sá þar Bubba (rétt missti af Svörtum afgan...), Papana og Hjálma, loksins. Eins og Hjálmar hafa nú verið að spila mikið á árinu þá var þetta í fyrsta skiptið sem ég sá þá. Svaka týpur... Það var fínt að kíkja aðeins út og það mættu alveg vera oftar tónleikar þarna í garðinum.

Á laugardaginn gerði ég tilraun til að veiða í Þingvallavatni og náði um leið að vígja fína regngallann sem ég keypti fyrir 17. júní. Regngallinn virkaði vel í rigningunni og rokinu en alls veiddist ein murta. Þá flúðum við rigninguna, keyptum okkur pylsur og þá stytti auðvitað upp. Nenntum ekki að reyna aftur þannig að við brunuðum bara í Kjósina í dýrindis lambalæri... sem við elduðum samt sjálf.

Er að velta því fyrir mér hvort ég stingi ekki bara af. Fyrst ég er farin að stara út um gluggann og blogga þá geri ég ekki mikið meira í dag.

2.7.05

Örblogg

Hvernig dyr eru sokkapar?

SMS sendi ég
Powered by Hexia

1.7.05

Fokk

„Hvað á að gera um helgina?“ „Æ, ég ætla bara að fokka mér eitthvað. Eins og ég er búin að vera í einhverju fokki í dag í vinnunni.“ Já, vissuð þið að „fokk“ þýðir „dundur“ eða eitthvað slíkt? Þetta lærði ég í vinnunni í gær! Alltaf lærir maður eitthvað nýtt... ég á reyndar eftir að fletta orðinu upp í orðabók en það er örugglega þar, ja, í þessari merkingu allavega.

Spurning hvort maður kíki í Hljómskálagarðinn í kvöld, þar eru víst útitónleikar. Á morgun er það svo blessuð sveitin mín - enn og aftur. Það er einhvern veginn ekkert um að vera fyrir utan tónleikana í kvöld.

Bendi á frábæra tónlistarsíðu, á hollensku reyndar. Ef maður smellir á „luisterpaal“ er hægt að hlusta á nýjar plötur og jafnvel horfa á myndbönd og fleira. Nýja Sufjan Stevens platan er þarna og ef maður opnar hana og smellir á „Sufjan Stevens in 3vor12“ er hægt að sjá hann á tónleikum og hlusta á heila tónleika með honum. Skemmtilegt!