31.12.05

2005

Þá er síðasti dagur ársins runninn upp. Þetta ár er búið að vera fáránlega fljótt að líða, mér finnst allavega ekki 12 mánuðir frá síðustu áramótum. Árið 2005 er búið að vera mjög skemmtilegt, ég fór tvisvar til útlanda á árinu sem var frábært, ég fór í veiðiferðir og sumarbústaðaferð, alveg fullt í sveitina og vinkonur mínar eignuðust alveg fullt af börnum! Ég vona svo sannarlega að næsta ár verði ekki síðra en þá verður nóg um að vera eins og öll þrítugsafmælin og hin stórafmælin, útskriftirnar, ferming og brúðkaup svo eitthvað sé nefnt...

Annars er jólafríið búið að vera stórfínt líka fyrir utan að ég er búin að vera hálfslöpp. Það var alveg yndislegt í sveitinni að venju, mikið borðað og spilað og m.a. sló Buzz leikurinn alveg í gegn, frábær leikur! Svo var saumaklúbbur, afmæli og pastasalat og allt í einu rann gamlársdagur upp!

Gleðilegt nýtt ár allir og takk fyrir það sem er að líða! Sjáumst hress eftir áramót...



Gleðilegt ár!

23.12.05

Jóla jóla jóla hvað?

Nú er ég að leggja lokahönd á jólaundirbúninginn, búin að þrífa það mesta og pakka inn flestum jólagjöfunum. Og mér líður bara vel. Á morgun fer ég svo í sveitina þar sem ég ætla að hafa það eins gott og ég get í faðmi fjölskyldunnar. Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og hafið það sem best yfir hátíðirnar!


Image Hosted by ImageShack.us

21.12.05

Jólafrí!

Haldiði að ég sé ekki bara komin í jólafrí! Ég sendi frá mér fyrsta almennilega uppkastið að ritgerðinni áðan og ætla því ekki að hugsa meira um hana í bili. Ekki fyrr en ég fæ hana í hausinn aftur...

Þá er það bara jólastúss framundan. Ég er reyndar búin með allar gjafirnar nema eina en svo þarf aðeins að ganga frá skóladraslinu hérna út um allt og þrífa svolítið svo manni líði vel hérna í kringum jólin. Að vísu verð ég nú mest uppfrá en það þýðir ekki að maður geri ekki aðeins hreint hérna heima. Ég held svei mér þá að jólaandinn megi fara að hellast yfir mig núna:)

20.12.05

Jájá...

You're a Wild Drunk

You can get enough drink. Seriously, you'll just go puke and start pounding them back again!

18.12.05

Picture(2.jpg

Styttist í jólin!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

15.12.05

Fimmtudagur

Þá er það bara lokaþátturinn í piparsveinaþættinum í kvöld! Já, ég viðurkenni það - ég horfi á þennan viðbjóð... Fyrst maður byrjaði á þessu þá verður maður að sjá hvaða gellu hann velur. Ætli það verði þessi sem var í sleik við aðra stelpu framan á DV í gær? Varð hún svona eyðilögð eftir höfnunina eða er hún bara að halda framhjá Steina? Spennó...

Tónleikarnir á sunnudaginn með Antony og félögum voru æðislegir. Fríkirkjan er allavega betri staður fyrir svona tónleika en Nasa, og það þótt maður hafi lítið séð úr sætinu sínu. Hljómurinn var æði, kertaljós og huggulegt. Leikritið hjá Hugleik var líka stórfínt, soldið margir krakkar að spjalla á meðan en það fylgir bara svona miðdegissýningum.

Ég vinn enn hörðum höndum að því að koma mér í jólaskap og er fullviss um að það bresti á um helgina. Þá á að kólna og fara að snjóa, þá fer ég í jólaglögg og út að borða og þá ætla ég að skrifa jólakort við undirspil jólalaga. Þá hlýtur þetta nú að koma. Ég held líka að ritgerðin taki jólaskapið soldið frá mér en þar sem hún er í blússandi gangi þessa dagana læt ég það vera. Maður má nú heldur ekki vera kominn yfir jólaskapið á jólunum, er það?

10.12.05

Tvær vikur til jóla...

Já, það eru tvær vikur til jóla í dag - jibbííí! Að vísu er ég ekki alveg komin í jólaskapið þótt ég hlakki voðalega mikið til en ég ætla að reyna að bæta úr því í dag. Fyrst ætla ég að byrja að kaupa jólagjafir og jafnvel jólakort og jólapappír. Kannski finn ég mér jólakjól í leiðinni en þar sem maður finnur aldrei flíkina sem mann vantar þegar maður leitar að henni þá tel ég ekki miklar líkur á því. Klukkan fjögur ætla ég síðan að sjá Jólaævintýri Hugleiks en á heimasíðu þeirra segir að sýninging sé kjörin til þess að koma fólki í jólaskap. Þá er að sjá hvort að það standist hjá þeim... Í kvöld ætla ég svo í kirkju, nánar tiltekið Fríkirkjuna. Að vísu eru það ekki jólatónleikar sem ég ætla að sjá heldur hinn hjáróma Antony og the Johnsons. Ég hlakka mikið til að sjá hann spila þar og vonandi sér maður betur en á Nasa um daginn. Það er svo aldrei að vita nema hann taki eins og eitt jólalag!

Ég er búin að vera að skrifa eins og óð manneskja í ritgerðinni, allavega í gær. Ég hitti leiðbeinandann á fimmtudaginn og hann sagði mér bara að skrifa sem mest fram að jólum. Ég tók hann bara á orðinu og skrifaði fullt í gær. Ég vona að andinn verði líka yfir mér næstu vikurnar og að jólaandinn taki ekki yfir skrifandann. Þeir hljóta að geta lifað í sátt og samlyndi... er það ekki?

7.12.05

Vááá

Ætli það þrífi sig sjálft líka?

2.12.05

Sammála

Ég er svo hjartanlega sammála Núma Fannsker með þetta. Það er verið að taka út fastan punkt í tilverunni með því að taka Með grátt í vöngum af dagskrá! Ég tala nú ekki um ef hann fer af morgundagskránni líka, hver á þá að spila Jussa Björling og Jólaköttinn með Björk???

Föstudagur

Þá er enn einn föstudagurinn runninn upp, meira hvað tíminn líður þessa dagana. Niðurtalning til jóla er byrjuð en ég á ekkert dagatal með súkkulaði... kannski eins gott, maður fær víst nóg af því um jólin!

Lítið markvert að gerast þessa dagana, ég er á fullu í reglusmíð fyrir lokaverkefnið og sit sveitt við alla daga. Ef ég næ að klára reglurnar í dag þá ætti ég að vera í ágætis málum. Þá er bara að finna einhverja leið til að prófa þær en það virðist ætla að verða allt annar og meiri hausverkur.

Hins vegar er víst búið að opna fyrir íðorðasafnið sem ég var að búa til í sumar. Hægt er að leita að spennandi orðum eins og „talgervill“ og „talþjónn“ eða bara hverju sem er... innan tungutækni! Svo er auðvitað hægt að leita á ensku og finna íslenska samsvörun. Ég er nú samt hálffeimin við að hafa þetta þarna þar sem hver sem er getur skoðað.

Helgin framundan verður róleg býst ég við, helst að maður geri hreint eða eitthvað. Næstu tvær helgar eru líka annasamar þannig að það er nauðsynlegt að slappa af inn á milli.