5.4.05

Þriðjudagur

Ég elska góða spennuþætti, er algjörlega sokkin í 24 og það virðist sem Lost ætli að verða annar svoleiðis þáttur. Þvílíkur þáttur í gær, eins konar sambland af Survivor og Stephen King! Hlakka til að fylgjast með þáttunum á næstunni.

Ég var að enda við að skrá mig í Háskólann eina ferðina enn. Hvað ætli ég sé búin að skrá mig oft í þennan blessaða skóla? Vonandi verður þetta þó í síðasta skipti í bili enda skráði ég mig í MA-ritgerð og brautskráningu í febrúar.

Annars hef ég ekki hugmynd um hvað verður kennt lengi á önninni. Einhvers staðar heyrði ég að næsta vika væri síðasta vikan í Hugvísindadeild og það þýðir þá að þarnæsta vika sé síðasta kennsluvika í tölvunarfræðinni! Það er alveg ágætt, þá verður ekki mikið meira efni til prófs en það þýðir hins vegar að ég þarf aldeilis að spýta í lófana. Eitt stykki ritgerð fyrir mánaðamót, próf 7. maí og svo Finnland 20. maí!

1.4.05

Föstudagur

Ég var að fá svo frábæran disk í hendurnar, eða réttara sagt diska. Þrefaldur safndiskur með Nick Cave, B-Sides & Rarities, sem inniheldur alls konar b-hliðarlög og annað skemmtilegt eins og titillinn gefur til kynna. Margt gott á diskunum sem maður hefur aldrei átt en samt fullt af dóti sem maður á fyrir, mætti vera meira um „rarities“ kannski. Fyrir utan það fékk ég hann svo á 1200 krónur (20 dollara) frá Bandaríkjunum! Ekki slæm kaup það:)

Aðalfolinn í bænum!



Annars er lítið planað þessa helgina, mig langar óneitanlega að kíkja út úr húsi í svona fallegu veðri þannig að það er aldrei að vita hvað mér dettur í hug að gera. Svo er líka svo mikið um að vera í næturlífinu... góðar stundir!

31.3.05

Sumarið

Ég hlakka mikið til sumarsins, þá verður prófstressið búið og sólin (vonandi) komin. Ég tala nú ekki um þegar ég er búin að fá sumarvinnu líka:) Já, í sumar verð ég líklegast í Árnagarði að vinna annað hvort að tungutækniverkefni eða málfræðirannsóknum. Tungutækniverkefnið snýst um að gera íðorðasafn fyrir tungutækni og verð ég í því allavega fyrri part sumars. Ef peningur fæst svo í það allt sumarið þá verður það sumarvinnan mín. Ef ekki þá sný ég mér að málfræðirannsóknum að einhverju leyti, sennilega einhverju tengdu setningafræði. Meira veit ég í raun ekki en hef lagt örlög mín í hendur málfræðiprófessorunum í Árnagarði að sinni.

Svo styttist í Finnland. Ég hef reyndar ekki fengið að vita hvort ég fæ styrk til að fara eða hversu hár hann verður þá. Eitt er víst að ef ég fæ engan styrk verður þetta ansi dýrt spaug. Það á ekki að byrja að fljúga beint til Helsinki fyrr en 20. maí en ég þarf að komast út 18. eða 19. og fer því í gegnum einhverja norræna borg. Þá vandast málið því að það kostar heilan helling miðað við þá netsmelli sem maður bókar venjulega. Ódýrasta flugfargjald verður því um 47.000 krónur fyrir utan allt annað; lest/innanlandsflug, hótel, ráðstefnugjald og uppihald! Sem betur fer fæ ég ókeypis gistingu og gufubað í Helsinki:)

Nokkuð venjuleg... eða hvað?





You Are 55% Normal

(Somewhat Normal)


While some of your behavior is quite normal...
Other things you do are downright strange
You've got a little of your freak going on
But you mostly keep your weirdness to yourself

29.3.05

Ármóður

Kannast lesendur við orðið „ármóður“? Nei, það gerðum við ekki heldur þegar ég setti alla stafina mína út í Scrabble um helgina og setti fram orðið „ármóðinn“. Ég hafði ekki hugmynd um að þetta væri til og vonaði að hinum þætti það jafnlíklegt orð og mér. Þau keyptu það þó ekki alveg og flettu upp í orðabókinni og viti menn, orðið „ármóður“ þýðir: „ís- eða snjóhrönn við á“. 70 stig þar:) Hehe... ég elska þetta spil!


Ármóður?

Er þetta ármóður?

Þriðjudagur!

Haldiði að það sé ekki þriðjudagur?! Hverjar eru líkurnar á því? Þetta er sumsé þriðjudagurinn „þriðji í páskum“, mjög erfiður dagur að öllu leyti. Maður þarf að trappa sig niður eftir súkkulaðiát og sukk helgarinnar. Ekki samt halda að ég hafi verið að sukka í brennivíni alla helgina, því fer fjarri, heldur var sukkað í mat og tilheyrandi og ég tel að það sé ekkert auðveldara að ná sér eftir svoleiðis sukk...

Byrjað var á fermingarveislu á skírdag sem var alveg frábær. Snillingurinn hún systir mín sá að mestu um matinn sjálf og þvílíkar kræsingar! Fermingarbarnið stóð sig með prýði og var mjög lukkulegur með daginn. Svo var brunað í sveitina eftir veisluna og þar slakaði maður á í vorloftinu sem lék um mann. Það var farið í göngutúr (minn var reyndar styttri en hinna), spilað Scrabble (en ekki hvað?), brennimerktar rollur í fjárhúsunum, spiluð félagsvist á þremur borðum í Dísukoti og lesið og sofið og borðað... Í raun merkilegt hvað maður náði að gera mikið af litlu á ekki lengri tíma! Í dag er ég svo að drepast í bakinu eftir alla letina og get eiginlega ekki beðið eftir að fara í Gáska á morgun að sprikla og fá nudd. En þangað til er það lærdómurinn. Nú er það ekkert nema harkan sex fram á vor!

22.3.05

Þriðjudagur

Það virðist alltaf vera annað hvort föstudagur eða þriðjudagur, alveg merkilegt! Eins og sjá má af færslum hér að framan (eða neðan) var rosa gaman um helgina. Tónleikarnir voru mjög vel heppnaðir og ég er ánægð með prógrammið hjá Finnunum. Það var mjög blandað en ég taldi a.m.k. 5 lög af plötunum tveimur sem ég á, þar af spiluðu þeir tvö uppáhaldslögin mín:) Þegar tónleikarnir voru búnir var ég engan veginn til í að fara heim en treysti mér heldur ekki alveg í mikið pöbbarölt. Við vinkonurnar sátum því eftir á Nasa og hlýddum og Jónsa og félaga hans í Í svörtum fötum spila fyrir dansi til hálffjögur. Svaka stuð!

Svo eru það bara páskar í vikunni! Á morgun held ég til Hornafjarðar þar sem á að ferma systurson minn á skírdag. Eftir veisluna verður svo brunað aftur suður og beint í Kjósina þar sem verður skrabblað, etið og drukkið fram á páskadag. Ljúfir dagar framundan... Gleðilega páska!

Konfektegg frá Nóa Siríus

Svona fáum við um páskana...

20.3.05


Jebbs, thetta er ball med í svörtum fötum!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Jess, thekkti allavega 5 lög! Mjög ànægd med karlana:-)

SMS sendi ég
Powered by Hexia

18.3.05

Föstudagur... aftur

Þá er það bara síðasta helgi fyrir páska. Henni verður nú mestmegnis eytt í lærdóm en svo eru líka tónleikar annað kvöld sem ég ætla á. Fnnska hljómsveitin 22 Pistepirrko ætlar að spila á Nasa mér til mikillar gleði og ánægju. Þetta er hljómsveit sem ég er búin að hlusta ansi lengi á en þeir hafa víst komið tvisvar áður til landsins. Mig langaði alveg óskaplega að fara þá (´91 og ´93) en var svo ung og saklaus að ég komst ekki... Ég vona bara að þeir taki eitthvað gamalt og gott sem ég þekki. Hér er frábært lag með þeim sem ég vona að þeir spili. Hvað skyldi pistepirrko annars þýða? Svar óskast takk fyrir!

Svo eru Franz Ferdinand bara að koma í maí. Þetta fer vel af stað í ár en verður nú sennilega ekki sama brjálæðið og í fyrra þegar voru tónleikar í hverri viku. Sérstaklega þegar Laugardalshöllin verður lokuð mestallt árið.

En... best að fara að læra. Hafið það gott um helgina börnin góð og ekki stelast í páskaeggin strax :)

15.3.05

Þriðjudagur

Æ hvað maður er eitthvað andlaus svona í frostinu. Fín helgi að baki, fór í sveitina þar sem ég var m.a. að leika við þennan sæta sveitastrák! Algjör rúsína... Svo fer maður þangað næst um páskana... sem er bara í næstu viku!!! Og ég sem ætlaði að vera búin að gera svo margt eins og t.d. að ná tökum á C++ :(

Áður en ég fer í sveitina þarf ég samt að skreppa í eitt stykki fermingarveislu á Hornafjörð þar sem systursonur minn fermist á skírdag. Planið er að fara austur á miðvikudaginn og svo beint í sveitina á fimmtudag. Sem betur fer ætla ég nú ekki að keyra heldur fæ ég far með öðrum fjölskyldumeðlimum sem eru í sömu erindagjörðum.

Annars ætlum við að reyna að fara á Hornafjörð í sumar, vonandi á nýjum bíl. Kannski ekki nýjum úr kassanum en við erum að leita okkur að nýrri bíl þessa dagana. Bíllinn okkar er kominn til ára sinna og kominn tími til að skipta. Við erum búin að ákveða tegund, Suzuki Grand Vitara, en þeir stoppa yfirleitt stutt á bílasölunum og er búið að selja tvo bíla sem við vorum spennt fyrir nánast fyrir framan nefið á okkur. Vonandi bjargast það þó og við verðum komin á fína drossíu með vorinu...

11.3.05

Föstudagur

Enn einn föstudagurinn á ferð, kaldur og bjartur að þessu sinni. Idolúrslitin í kvöld og gaman gaman. Held að þetta verði samt lítið spennandi og að Hildur Vala vinni en það er aldrei að vita hvað gerist. Svo á að taka við einhver þáttur með Hemma Gunn á föstudagskvöldum... ætli maður nenni eitthvað að horfa á það!

Talandi um sjónvarpsdagskrána, mitt helsta áhugamál, þá var alveg frábær þáttur að byrja í gær, Desperate Housewives. Þátturinn lofaði allavega mjög góðu um framhaldið og er því búið að blása nýju lífi í fimmtudagskvöldin og búið að fylla í tómarúmið sem Alias skildi eftir...

Um daginn skrifaði ég um nýja þætti eftir höfund Alias sem ég var svo spennt fyrir, Lost. Nú ætlar RÚV að fara að sýna þá í byrjun apríl, einmitt eins og ég óskaði mér! Húrra fyrir RÚV!! Og reyndar Skjá 1 líka því að þar er fullt af skemmtilegum þáttum eins og Boston Legal, CSI og Law and Order. Skil ekki fólk sem tekur bækur fram yfir sjónvarpsdagskrána... ;)

10.3.05

Magnað

Þá er magnarinn loksins kominn í hús. Hallelúja. Og það virðist bara vera allt í lagi með hann, svona ennþá. Reyndar drap hann á sér áðan en það virtist vera straumbreytirinn sem var í ólagi og nú er verið að kaupa nýjan svoleiðis. Okkur brá samt pínu, það hefði verið dæmigert ef hann hefði verið bilaður loksins þegar hann kom til landsins!

Ég fór annars á ansi magnaðan viðburð í fyrrakvöld en það var dagskrá í Íslensku óperunni í tilefni V-dagsins. Þar voru ýmis atriði, söngur, dans og atriði úr Píkusögum. Höfundur Píkusagna, Eve Ensler, var svo heiðursgestur kvöldsins (eða dagsins) og var með einleik auk þess sem hún talaði um baráttu sína og annarra gegn ofbeldi gegn konum og stúlkum um allan heim. Það var ansi áhrifaríkt þegar hún bað alla þá í salnum sem hefðu orðið fyrir einhvers konar kynferðisofbeldi, heimilisofbeldi eða slíku, að standa upp. Stór hluti stóð upp og enn stærri þegar hún bað alla þá sem þekktu einhvern sem hefði orðið fyrir slíku ofbeldi að standa upp. Nær allir í Óperunni stóðu þá upp. Sorglegt en satt.

9.3.05

Finlandia

Já, nú er það ekki lengur Prag heldur Finnland! Við erum hætt við að fara til Prag í bili enda var það orðið meira vesen en hitt að skipuleggja þá ferð. Hins vegar lítur allt út fyrir að ég sé á leið til Finnlands í vor. Dagana 20.-21. maí verður haldin tungutækniráðstefna í bæ sem heitir Joensuu einhvers staðar við rússnesku landamærin. Ég sendi inn útdrátt úr lokaverkefninu mínu til að fá að halda þar fyrirlestur og viti menn, það var bara samþykkt! Ég veit ekki hvað ég er búin að koma mér út í, að halda fyrirlestur á ensku í Finnlandi um verkefni sem ég er ekki einu sinni búin með... meiri vitleysan. Vonandi fæ ég einhvern styrk til fararinnar en það verður að koma í ljós. Á leiðinni heim ætla ég svo að stoppa í Helsinki og heimsækja þar stúlkur sem ég þekki og verða vonandi heima við. Það sparar líka gistinguna:) Svo er það bara sána og vodki...

6.3.05

Jose

Mikið hrikalega var maður menningarlegur í gær með fína fólkinu. Carreras var þrælgóður eins og við var að búast. Minna mátti það heldur ekki vera fyrir 20.000 kallinn sem fólk var að borga að meðaltali... njehehe. Alltaf lærir maður samt eitthvað nýtt. Ég er til dæmis búin að læra það að á djasstónleikum er sérstakt djassklapp svona við og við, nokkuð sem maður þarf að læra inn á. Ekki kúl að klappa á vitlausum stöðum. Í óperunni á maður greinilega að hrópa „Bravó!“ á eftir flottu lagi. Svo klappar maður með framréttar hendur svo tenórinn sjái hvað maður er mikill aðdáandi. Þetta kunni fólkið á dýrasta svæðinu. Mjög fyndið. Á rokktónleikum hristir maður bara hausinn og syngur með, það kann ég.
Annars sátu þeir Statler og Waldorf, gömlu fúlu karlarnir á svölunum í Prúðuleikurunum við hliðina á mér í gær. Reyndar hrópuðu þeir nú ekkert í áttana að Jose en tuðuðu mikið yfir aðstöðunni og fólkinu í salnum. Vissi ekki að þeir væru ennþá á lífi karlarnir...

4.3.05

Lukka

Það er aldeilis heppnin er með okkur þessa dagana eða öllu heldur Jóa. Nú var hann að vinna miða á Jose Carreras á morgun! Reyndar hélt ég að þetta væri kannski miði fyrir einn sem gilti bara fyrir hlé en svo var nú aldeilis ekki. Miði fyrir tvo á alla tónleikana takk fyrir:) Það er eins gott að fara að strauja sparigallann því að þetta verður örugglega ægilega fínt alltsaman...

Ég sá annars mjög góða mynd í gær, Motorcycle Diaries. Hún fjallar um Che Guevara þegar hann var ungur maður, áður en hann fór til Kúbu. Í myndinni er hann ásamt félaga sínum að ferðast um Suður-Ameríku og er hún byggð á dagbók sem hann hélt á ferðalaginu. Flott mynd, flott tónlist (lag úr henni vann einmitt Óskarsverðlaun) og eftir hana langaði mig beint til Perú að skoða Machu Picchu og sigla um Amazonfljótið...


Mig langar að vera þarna...



Hafiði annars tekið eftir því að það er alltaf helgi? Ég bara skil þetta hreinlega ekki...

3.3.05

Prahag

Það er nú meira vesenið með þennan blessaða vinning. Hann hljóðaði upp á flug fyrir einn til Prag frá mánudegi til fimmtudags í mars eða apríl án flugvallarskatta... allt í lagi með það. Við fórum í gær til að bóka hjá Heimsferðum en ætluðum að athuga hvort það væri möguleiki að vera kannski í viku og borga þá eitthvað meira þar sem það er flogið út seinnipart mánudags og því yrðu þetta bara tveir heilir dagar. Það var þá ekkert hægt að eiga við vinninginn, annaðhvort færum við eftir honum eða ekki! Við hættum við að bóka í bili... ætlum aðeins að melta þetta enda er nóg laust í þessar ferðir. Hver fer í miðri viku í mars eða apríl fyrir 2 daga? Sjálfsagt þeir sem vinna ferð fyrir einn.

1.3.05

Prag

Þetta var nú aldeilis fín árshátíð þarna um helgina! Æðislegur matur á boðstólum og svo var happdrætti... og þar vann Jói miða til Prag!! Reyndar bara flug fyrir einn þannig að við þurfum að borga flug fyrir mig og hótel en það er ekkert mál að panta svoleiðis á netinu og þetta er fín afsökun til að fara. Stefnum á þrjár nætur um miðjan apríl en ætlum að reyna að bóka bara á morgun. Gaman gaman:)



Prag



Sunnudagurinn var aðeins erfiðari eins og gefur að skilja og reyndar er ég enn hálfsybbin eftir þessa gleði. En tilhlökkunin um Pragferðina bjargar málunum... ef lærdómurinn er að sliga mig þá læt ég mig bara dreyma um huggulegheitin í útlöndum, mmm...

26.2.05

Helgi

Nei, ekki þú Helgi heldur er komin helgi! Hún byrjaði að sjálfsögðu á Idol þar sem ég var mjög sátt við úrslitin. Þá eru víst bara 2 þættir eftir og þá þarf maður ekki að fylgjast með þessu lengur. Merkilegt hvað maður getur fest sig í svona þáttum...

Svo er árshátíð hjá Mastercard í kvöld sem verður vonandi mjög skemmtileg. Fordrykkur á undan einhvers staðar í Grafarvoginum og svo verður haldið á Grand Hótel þar sem verða skemmtiatriði og góður matur og meiri drykkur:) Reyndar þekki ég bara einn fyrir utan Jóa sem vinnur þarna en kannski kynnist maður bara einhverju fólki. Annars tala ég bara við þá tvo sem ég þekki!

Í dag eru svo tvær vinkonur mínar að útskrifast úr Háskólanum - til hamingju með það! Engar útskriftarveislur þó enda er þetta ekki í fyrsta skipti sem þær útskrifast, þær eru orðnar svo hámenntaðar.

Verð svo að koma einni snilldinni að hérna. Ég dreif mig í að láta framkalla eitthvað af þessum digital myndum sem ég á í tölvunni, aðallega myndir frá Búlgaríu þar sem við vorum bara með digital vélina. Það var einhvern tímann búið að benda mér á Bonusprint í Bretlandi en þá sendir maður myndirnar í gegnum tölvu og fær þær svo framkallaðar í pósti nokkru seinna. Ég prófaði þetta sem sagt og ætlaði ekki að trúa verðinu sem ég fékk gefið upp. 53 myndir sendar heim kostuðu nefninlega 790 krónur með sendingarkostnaði! Hjá Hans Petersen kosta jafnmargar myndir rúmlega 2300 krónur. Myndirnar voru mjög fínar þannig að ekki eru þetta minni gæði. Mæli eindregið með þessu, mér finnst nefninlega gaman að eiga eitthvað af myndum framkallaðar þó að maður láti kannski ekki framkalla allt.

Hehe





Your Dominant Intelligence is Linguistic Intelligence



You are excellent with words and language. You explain yourself well.
An elegant speaker, you can converse well with anyone on the fly.
You are also good at remembering information and convicing someone of your point of view.
A master of creative phrasing and unique words, you enjoy expanding your vocabulary.

You would make a fantastic poet, journalist, writer, teacher, lawyer, politician, or translator.


24.2.05

Brjóst

Þetta er algjör snilld! Hvers konar brjóst eruð þið með stelpur? Melónum finnst gott að borða og láta dekra við sig... gæti það verið?!

21.2.05


Ég fékk líka svona blóm um helgina og gómsætan mat á konudaginn!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Mánudagur

Þó að sólin sé nú alltaf skemmtileg þá finnst mér veðrið sem er úti núna alltaf svo notalegt. Þoka og smáúði og fekar hlýtt... svo dulúðlegt eitthvað. Í svona veðri fór ég t.d. oft út að leika mér þegar ég var yngri, mér fannst það svo spennandi. Vonandi þýða þessi hlýindi að vorið sé á næsta leiti!

Ég slapp við veikindin um helgina, var bara með frekar óskemmtilegt kvef. Það þýddi reyndar að ég varð að læra í staðinn en það var þó skárra en að liggja með flensu, svei mér þá. Þetta var því afskaplega róleg helgi og lítt markvert sem gerðist. Þó gerðumst við Anna Katrín menningarlegar á laugardaginn og fórum að sjá sænsku þöglu myndina Häxan frá 1921 þar sem Sinfóníuhljómsveitin lék tónlist Barða í Bang Gang undir. Þetta var bæði mjög skemmtileg mynd og áhugaverð og tónlistin var líka mjög flott. Gaman að því!

18.2.05

Hjúkk...

...þau voru þá alvöru!

Föstudagur

Ég held að ég sé að verða veik :( Er með kvef og hálsbólgu og bíð nú eftir að flensan hellist í mig. Vona samt að lýsi, vítamín og hvítlaukur verði til þess að þetta verði ekki meira en kvef!

Ég fékk loks diskana sem ég pantaði að utan í gær og viti menn, þeir voru bara í kassanum! Þetta voru nýi diskurinn með Elliott Smith (hér er flott lag af honum) og Seven Swans með Sufjan Stevens. Frábærir diskar báðir tveir. Svo eru líka góðir diskar í 2 fyrir 2000 (eða var það 2200?) sem ég ætla að splæsa í við tækifæri. Við erum annars enn að bíða eftir að fá endurgreitt frá ShopUSA fyrir magnarann en það tekur víst einhverja daga þannig að það er bara að bíða.

Á þessum fallega degi eiga foreldrar mínir 44 ára brúðkaupsafmæli! Vel af sér vikið hjá þeim:) Í morgun voru líka mögnuðustu ský á himni sem ég hef lengi séð, fjögur bleik og skærblá glitský á austurhimni... nema pillurnar mínar séu farnar að hafa þessi áhrif! Sá ekki örugglega einhver annar þessi ský??! Eigiði annars góða helgi, hún verður með rólegasta móti hér, annað hvort verða það veikindi eða lærdómur... veit ekki hvort er skárra!

16.2.05

Brrrrr

Það er hrollur í mér núna enda alveg viðurstyggilegt veður úti. Ojbarasta. Ég vona bara að þetta verði ekki til þess að ég leggist í flensu eins og Michael Jackson og fleiri! Ég var annars mjög menningarleg í gærkvöldi og fór í leikhús. Ég fór að sjá sýningu Stúdentaleikhússins, Þú veist hvernig þetta er. Mjög skemmtileg og öðruvísi sýning. Reyndar voru engin sæti fyrir áhorfendur þannig að ég var orðin ansi þreytt í fótunum í lokin en þetta var bara soldið eins og að vera á tónleikum. Ég mæli sem sagt alveg með sýningunni en því miður of seint því að allra síðasta sýning er í kvöld!

15.2.05

Hehe

Mér datt ég sjálf í hug þegar ég horfði á fréttir Stöðvar 2 í gær um Valentínusardaginn. Hindúar á Indlandi voru alveg brjálaðir yfir þessum Valentínusardegi. Þeir mótmæltu harðlega og brenndu Valentínusarkort! Ég var nú kannski ekki alveg svo reið yfir þessu...

14.2.05

Mánudagur

Valentínusardagurinn í dag, þau amerísku hallærisheit! Er ekki farið að þykja bara púkó að halda upp á þennan dag? Eru það ekki bara gelgjur og kaupmenn sem gera það? Kannski er það bara þannig í kringum mig, ég veit það ekki. Þá er nú skemmtilegra að smella kossi á karlinn á bóndadaginn líkt og aðra daga!

Á þessum degi, 14. febrúar, á nú samt hann frændi minn afmæli og er hann 9 ára í dag. Af því tilefni var heljarinnar veisla á laugardaginn í sveitinni. Ég fór þó uppeftir á föstudaginn í þorraveislu og idolkvöld, eins konar þorraidol. Svo var afmælið á laugardag en mér tókst ekki að drusla mér aftur í bæinn fyrr en í gær sem þýddi það að ég lærði mest lítið um helgina... enda var þetta hin besta helgi. Á laugardagskvöldið spiluðum við Popppunktsspilið sem var ljómandi gaman. Það fer þó alveg svakalega í taugarnar á mér hvað spilið er illa (eða bara ekkert) prófarkarlesið og eru lúðavillur eins og „spreittu þig“ á popphjólinu sjálfu auk þess sem leiðbeiningarnar eru í tómu rugli. Greinilega verið að hraða útgáfunni fyrir jólin... fussogsvei!

10.2.05

ShopUSA

Við erum búin að standa í því undanfarnar vikur að panta vörur frá Bandaríkjunum, 1 stykki magnara og 2 geisladiska og hefur það satt að segja ekki gengið áfallalaust. Við pöntuðum frá Amazon og létum senda vörurnar til okkar í gegnum ShopUSA sem er víst búið að vera svo vinsælt. Aðalatriðið var að fá magnarann en diskarnir voru pantaðir með til að nýta sendinguna og góða verðið í Bandaríkjunum.
Fyrst voru diskarnir sendir af stað á undan magnaranum í vöruhús ShopUSA í Bandaríkjunum. Allt í lagi. Nema hvað að þar sem við getum fylgst með því á netinu hvar varan er stödd í Bandaríkjunum hverju sinni sáum við að innan tveggja daga voru þeir komnir í vöruhúsið - og svo var þeim hafnað og þeir sendir til baka! Eitthvað var þetta nú dularfullt... Þá fór magnarinn af stað eftir að við sendum Amazon fyrirspurn um hvar hann væri eiginlega en þá vorum við orðin hrædd um að magnarinn færi til landsins án diskanna og að við yrðum að borga tvöfaldan sendingarkostnað. Eftir margar tilraunir til að ná í ShopUSA (alltaf á tali...) var okkur sagt að diskarnir hefðu verið sendir til baka vegna þess að pakkinn var skemmdur og að við ættum að fá nýja diska frá Amazon. Það var auðsótt mál og þjónustan hjá Amazon til fyrirmyndar. En ef við vildum fá magnarann strax til landsins (sem þá var nýskriðinn í vöruhúsið) var það ekkert mál en þá þurftum við að borga eitthvað aukalega fyrir diskana. Allt í lagi með það, við vildum fá fjandans magnarann strax heim svo að hann færi nú ekki í einhverja vitleysu. Í gær var svo stóra stundin runnin upp. Magnarinn var kominn til landsins og hægt að sækja hann til ShopUSA í Kópavogi. Við fórum spennt með hann heim og opnuðum kassann og... þar mátti finna 1 búnt ljósritunarpappír, 1 gamlan tóner í ljósritunarvél og bæklinga. Engan magnara. Stolinn. Grrrr... við ekki ánægð (eða réttara sagt alveg öskuvond á öskudaginn). Sem betur fer ætlar ShopUSA að endurgreiða okkur vöruna að fullu (enda keyptum við tryggingu með) þannig að fjárhagstjón verður ekkert en þeir buðu okkur að panta aftur og það er spurning hvort við nennum að standa í því, ætli við jöfnum okkur ekki á þessu fyrst. Og já, svo eigum við von á 2 geisladiskum í næstu viku!



Magnaður magnari


9.2.05

Stóri

Mr. Big að fara að leika í Law and Order! Það líst mér vel á og ekki veitir af að hvíla hinn gaurinn, hann er svo óþolandi...

7.2.05

Bolla bolla

Bolludagur og ég fæ sennilega enga bollu :( Ætlaði að fá mér bollu í gær af því að það var sunnudagur en búðin á horninu seldi bara 9 í pakka... Langar samt eiginlega ekki í búðarbollu hvort eð er, bara svona vatnsdeigsbollur eins og mamma bakar með suðusúkkulaði ofaná og rjóma mmmmm... Fæ nú kannski saltkjöt á morgun samt og svo er afmælisveisla bæði á fimmtudaginn og um helgina þannig að þó það verði ekki bolla þá verður bara eitthvað annað gott.

Róleg helgi aftur. Meiri matur á föstudag, mjög sniðugt að láta bjóða sér svona í mat alltaf. Vídeó á laugardagskvöld enda var maður þreyttur eftir matarboðið sem stóð fram á nótt. Á að vera að læra eins og venjulega en blogga bara í staðinn um nákvæmlega ekki neitt...

3.2.05

Fimmtudagur

Alias í kvöld!!! Þetta er nú orðið ansi spennandi (eins og það sé ekki búið að vera það síðan í 1. seríu!) en í kvöld er næstsíðasti þáttur seríunnar. Mér til mikillar gleði og ánægju las ég í Mogganum að farið væri að sýna 4. seríuna úti í Bandaríkjunum og að þar hefði sko verið tvöfaldur upphafsþáttur! Ekki nóg með það heldur er höfundur Alias þáttanna með nýjan þátt úti sem heitir Lost og er víst líka svaka spennandi. Vonandi fer Sjónvarpið eða einhver að sýna þá þætti áður en langt um líður.

Sæti, sæta og ljóta


Fór annars á Tapas barinn í gærkvöldi og mmmmm hvað það var góður matur þar. Upphaflega ætluðum við að fá okkur mexíkanskan mat á Amigos en svo var bara lokað þegar við mættum. Spurning hvort hann sé búinn að vera lengi lokaður, maður hefur ekkert heyrt um það. Ég var annars dauðfegin því að það var svo miklu betri (örugglega) matur á Tapas eftir alltsaman. Og snilldin er líka sú að geta ráðið hvað maður borðar mikið og hverju maður blandar saman. Reyndar borðuðum við allt of mikið af allskonar dóti og leifðum engu...

31.1.05

Búkolla

Það er enginn tími til að blogga orðið! Maður ætti bara að slá þessu upp í kæruleysi og hugsa eins og Færeyingurinn gerði:„Það er nægur tími, það kemur alltaf meira af honum!“ Það er sem sagt enn og aftur bannsett tölvunarfræðin sem er að hrella mig, hvernig á maður að botna í þessum bendum og minnishólfum og hvað þetta heitir nú allt...


Þetta er nú ekki Búkolla...



Ég átti annars notalega helgi með góðum mat að venju. Lærði þess á milli og varð afar kát ef einhver vildi tala við mig á MSN. Átti meðal annars athyglisvert samtal um Búkollu á laugardagsmorguninn. Frænka mín sagði mér frá því er hún var stödd uppi í sveit eitt sinn og rauðvínsbeljan var að klárast og fannst henni þá tilvalið að segja erlendum vinum sínum söguna af Búkollu. Þar sem hún sagði söguna í enskri þýðingu fór hún að spá í hvað þetta er stórundarleg saga. Þarna er piltur sem á svakalega vonda foreldra að bjarga talandi belju frá óðri skessu. Skessan er svo svakaleg að hún á naut sem drekkur upp heilt stórfljót og pissar svo á stóra bálið til að slökkva það. (Reyndar vorum við frænkur eitthvað búnar að gleyma sögunni því við héldum því blákalt fram að skessan hefði sjálf drukkið vatnið og pissað á eldinn...) Svo gerir undrabeljan fjall úr halahári sínu og hvað þá? Kemur skessa ekki bara með BORVÉL og borar í gegnum fjallið! Hvurslags snilld er það? Þar sat hún svo föst og varð að steini og... sagan búin. Þetta þótti útlendingunum alveg stórskemmtileg saga og stórundarleg. Lesið söguna og veltið þessu fyrir ykkur. Hérna má líka finna fleiri ævintýri sem maður hefur heyrt frá barnæsku en kannski ekki spáð í hversu furðuleg mörg þeirra eru...

27.1.05

Ung í anda...





You Are 24 Years Old



24





Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.

13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.

20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.

30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!

40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.



25.1.05

Lygilegt

Vá hvað fólk getur verið bilað...

24.1.05

Þorrablót

Eins og sjá má af myndinni hér að neðan fór ég á þorrablót um helgina. Það var alveg hreint frábærlega gaman og ég hef bara sjaldan skemmt mér svona vel. Vaknaði þunn með bros á vör eftir herlegheitin en það gerist nú ekki á hverjum degi. Það var nú samt hálferfitt að vakna áðan til að fara í skólann en ég fór nú svo snemma að sofa að það slapp til.

Er annars fólk hætt að lesa þetta blogg eða bara alveg hætt að kommenta? Það er alveg smágaman að fá komment, þau þurfa ekki að vera neitt merkileg, bara að maður sjái að einhver lesi þetta...

22.1.05


Myndina sendi ég
Powered by Hexia

20.1.05

Pirr

Ég er frekar pirruð þessa stundina. Vaknaði eldsnemma til að vera mætt í skólann kl. 8:15. Fer út og get ekki opnað læstan bílinn fyrir þessu andskotans frosti!
Sit því núna að drepast úr pirri fyrir framan tölvuna og hugsa með mér að ég hefði getað verið undir sæng... Það er hins vegar of seint núna, ég sofna ekki aftur úr þessu :(

19.1.05

Merkilegt

Ég var að lesa nokkuð mjög merkilegt á netinu sem hún Magga Dóra benti á hjá sér. Þetta er tilraun sem var gerð í Stanford háskóla í Bandaríkjunum árið 1971 til að rannsaka áhrif fangelsislífs á fólk. Auglýst var eftir sjálfboðaliðum og þeir sem voru valdir voru settir í hlutverk fangavarða annars vegar og fanga hins vegar. Varpað var hlutkesti um hverjir færu í hvaða hlutverk. Ég hvet ykkur til að lesa allt um tilraunina því að þetta er alveg ótrúlegt. Það er líka fróðlegt að bera þetta saman við hegðun fangavarða í Abu Ghraib á dögunum...

18.1.05

Dammdídamm

Jamm og já. Mikið er þessi vetur orðinn þreytandi, frost og snjór og hálka hvert sem litið er! Svo er maður á ferðinni út um allan bæ í þessu ógeði. Má maður nú biðja um auða jörð þótt ekki væri nema það.

Ég er farin að sjá fram á mjög einsleitar vikur framundan. Verkefnaskil mánudaga og miðvikudaga og þess á milli svitnar maður yfir verkefnunum sem á að skila. Og áður en maður veit af er komið að næstu verkefnaskilum og svo er allt í einu komið vor. Reyndar er alveg fínt að vorið komi sem fyrst en maður myndi nú ekki fúlsa við smástund til að anda annað slagið... segi ég eftir rúma viku í skólanum! Neinei, þetta er alveg ágætt og maður á ekki að kvarta yfir öllu. Það er líka svo gaman þegar verkefnin eru tilbúin:) Sem þýðir að ég ætti að hætta þessu bulli og fara að klára verkefnið sem ég á að skila á morgun.

16.1.05

Helgin

Nokkuð ljúfri helgi að ljúka. Reyndar er ég búin að vera að læra og ætti svosum að vera að því núna... en þið vitið nú hvernig það er! Í gær fór ég að skoða afskaplega fallega stúlku sem heiti Ísold og má sjá mynd af henni á Myndz. Vel af sér vikið hjá foreldrunum, Móu og Arnari:) Í gærkvöldi komu svo tvær góðar vinkonur í heimsókn og áttum við góða stund yfir góðum mat og blaðri fram á nótt. Annars er ég hálfandlaus þessa stundina og er að melta það með mér hvort ég eigi að sökkva mér í Íslenska setningafræði og byrja á verkefni úr henni eða klára að horfa á Marnie sem ég tók upp á föstudagskvöldið. Æ, ætli það verði ekki vídeóið...

14.1.05

Föstudagur!

Ég er búin að vera að berjast við fyrstu dæmin í Tölvunarfræðinni. Á blaðinu stendur: „Þessi fyrstu skiladæmi verða líklega þau léttustu sem þið fáið í þessu námskeiði. Reynið því endilega við þau og skilið lausnunum í hólf...“ Þau léttustu! Og ég get ekkert í þessu :( Reyndar vantar sáralítið upp á og ég vaknaði meira að segja í morgun og hugsaði einhverja lausn, fór eldsnemma á fætur til að prófa hana - en svo var hún vitlaus. Þetta er að gera mig brjálaða!!!


Diskó!



Svo ég víki að öðru þá þykir mér mikill missir af Skonrokki og Radíó Reykjavík. Þetta voru stöðvar sem maður gat yfirleitt stillt á í bílnum en það er allt farið bara! Nema, ja, FM957 og Létt! Já, og Bylgjan! Reyndar stendur Rás 2 fyrir sínu, svona oftast. Nema þegar leiðindakonan er á morgnana, ég nenni ekki að hlusta á hana. Gestur Einar er hins vegar alveg ágætur og kom mér í ljómandi skap í morgun á leiðinni í ræktina með hressu diskói. Af því tilefni ætla ég að setja hérna inn lagið sem bjargaði deginum fyrir mér: Hot Stuff með Donnu Summer! Njótið vel og góða helgi:)

11.1.05

Skóli

Þá er skólinn byrjaður af krafti. Búin að fara í báða kúrsana og sýnist að það verði nóg að gera þessa önnina! Mér líst rosa vel á Setningafræðina, þar er farið yfir kunnuglegt efni og tel ég mig vera nokkurn veginn á heimavelli þar. Mér líst ekki eins vel á Tölvunarfræðina en hef ákveðið að vera svakalega dugleg og negla þetta bara, það þýðir ekkert annað. Það stefnir semsagt í mikla vinnu næstu mánuðina og ef allt fer vel eru þetta síðustu kúrsarnir sem ég þarf að taka. Og hananú.

8.1.05

Laugardagur

Jájá, maður er bara alveg dottinn út úr þessu bloggstússi! Það er svona þegar maður er lítið fyrir framan tölvuna, þetta kemur allt eftir helgina þegar maður þarf að fara að læra. Skólinn byrjar semsagt á mánudaginn og leggst það bara ágætlega í mig. Stundataflan er ágæt að sjá, ég er ekki nema einu sinni í viku klukkan átta en annars yfirleitt fyrir hádegi.

Ég er líka búin að hafa nóg fyrir stafni í vikunni, saumaklúbbur á mánudag og bíó á þriðjudag. Sá Ocean´s Twelve sem kom skemmtilega á óvart. Ég hafði ekki séð fyrri myndina en hafði mjög gaman af þessari. Svo var það þrettándaboð á fimmtudaginn með þvílíkum veitingum. Þar var líka spilað Trivial og nokkrum rakettum skotið upp í lokin. Svo vorum við með fólk í mat í gærkvöldi og í kvöld er afmælisveisla... Blogga svo meira þegar ég er í stuði til þess - það verður örugglega eftir helgina.

3.1.05

Leti

Vá hvað er hægt að vera mikið latur. Ég sem aldrei sef út get ekki vaknað á morgnana þegar er svona dimmt og ógeðslegt veður. Svo liggur maður og les og þykist svo þurfa að leggja sig líka - haldiði að þetta sé hægt?? Ekki skrýtið að maður fái haus- og bakverk af þessu innipúkalífi. Sennilega fæ ég enga samúð samt hjá vinnandi fólki, er það?

Var að fá einkunn í tölfræðinni og náði henni vel, miðað við 50% fall og meðaleinkunn í kúrsinum upp á 4,3! Svo byrjar skólinn aftur á mánudag, Tölvunarfræði II og Setningafræði. Engin aðstoðarkennsla í þetta skiptið! Það verður erfitt en um leið gott fyrir mig að fara að vakna á morgnana og gera eitthvað af viti. Annars nóg að gera næstu daga, saumaklúbbur í kvöld, hitta afmælisbarn á morgun, spilakvöld á fimmtudag og afmælisveisla á laugardag - gaman gaman!

2.1.05

GLEÐILEGT ÁR

Gleðilegt ár gott fólk og takk fyrir allt á gamla árinu! Mikið er ég fegin að árið 2004 er liðið því að árið 2005 verður svo miklu miklu betra. Síðasta ár var þó ekki alslæmt og átti sína punkta. Til dæmis var sumarbústaðarferðin í vor afskaplega notaleg, ferðin á Snæfellsnes alveg frábær, veiðiferðin í Krossá ekki síðri og Búlgaríuferðin í haust var yndisleg.

Og ekki má gleyma öllum tónleikunum á árinu. Allt byrjaði þetta nú með geggjuðum tónleikum Violent Femmes í vor og svo hélt stuðið áfram: Kraftwerk, Pixies, Peaches, Pink, Metallica, Blonde Redhead, Airwaves með öllum tónleikunum þar og nú síðast The Fall. Ég held ég sé ekki að gleyma neinu! Bestu tónleikar ársins: Violent Femmes, The Shins á Airwaves og Metallica.

Það er margt framundan á nýju ári og vonandi fullt af tónleikum í viðbót. Krossáin er frátekin í byrjun september og er því strax hægt að hlakka til þess. Svo verður vonandi farið í sumarbústað, nýja hústjaldinu tjaldað og kannski farið meira til útlanda. Annars er best að plana sem minnst, þá er maður ekki að svekkja sig þegar plönin breytast! Aðalatriðið er að njóta nýja ársins til hins ýtrasta.

29.12.04

Miðvikudagur

Mikið er ég nú búin að hafa það gott um jólin... ég fór í sveitina á aðfangadag og kom ekki í bæinn aftur fyrr en í gær. Að venju var mikið borðað, spilað, lesið og sofið - já, og sungið! Frænka mín fékk Singstar leikinn og það var rosa gaman að syngja í honum. Popppunktsspilið kom líka sterkt inn þetta árið. Ég fékk líka fullt af pökkum, m.a. myndavélarsíma þannig að nú fer ég að senda fleiri myndir hingað á bloggið. Tíminn leið ógurlega hratt og fyrr en varði var þetta bara búið. Sem betur fer er ég áfram í fríi fram yfir áramót þannig að þá er bara að halda áfram að lesa, borða og sofa...

24.12.04

GLEÐILEG JÓL




Svona leið mér nokkurn veginn í morgun klukkan hálfátta...

23.12.04

Það er Þorláksmessa!!!

Durururu, dururuddudu - Jólalag Baggalúts klikkar ekki!

Það er allt á fullu í jólaundirbúningnum, búið að pakka inn öllum pökkunum og verið að klára að þrífa soldið fyrir jólin þótt ég verði nú minnst heima yfir hátíðarnar. Í fyrramálið bruna ég upp í sveit þar sem ég verð eitthvað fram yfir helgina. Ooo, ég hlakka svoooo til!!!

Ég ætla að setja hérna inn uppáhaldsjólalagið mitt í öllum heiminum en það er Jólakötturinn sem Björk syngur. Ég fer einfaldlega ekki í jólaskapið fyrr en ég heyri þetta. Hlustið nú á í botni og finnið jólaskapið - GLEÐILEG JÓL!!!

20.12.04

BÚIN!

Búinbúinbúinbúinbúinbúinbúinbúinbúinbúinbúinbúin í prófinu! Gekk sæmilega, er sennilega ekki fallin. Aldrei að segja aldrei samt. Ég var í prófi í Eirbergi en fyrir nákvæmlega 2 árum, 20. desember 2002, var ég í prófi á sama stað og þá fór ég á fæðingardeildina eftir prófið að heimsækja lítinn frænda sem kom í heiminn þann morgun. Sá frændi á því einmitt afmæli í dag og er veisla núna á eftir. Vonandi er þetta því happadagur og happastaður... fyrir utan það að ég er Little Miss Brainy ;)

Já já...

brainy


Congratulations, you're Little Miss Brainy!


Which Little Miss are you?
brought to you by Quizilla


Ef þetta er ekki uppörvandi fyrir prófið þá veit ég ekki hvað!

8 tímar...

Eftir 5 tíma fer ég í próf. Eftir 8 tíma verð ég búin í prófum (ja, eða prófi). Þá verður gaman.

17.12.04

ML

Alias var hörkuspennandi að venju - sjá allt um atburðarásina í kommentakerfi Svölu í dag :)

Skammstöfunin hér að ofan (ML) stendur ekki fyrir Menntaskólann að Laugarvatni heldur er þetta skammstöfun fyrir „mér leiðist“ eins og fjölskyldumeðlimir mínir þekkja vel. Þegar ég var krakki leiddist mér stundum - enda ekki sú afþreying í boði þá og er í dag fyrir utan það að ég bjó í sveit og ekki hægt að hlaupa út að leika við aðra krakka þegar manni sýndist. Þá átti ég til að suða í mömmu minni, systur eða mágkonu „mér leiiiiiðist“ og áttu þær þá einhvern veginn að bjarga því. Þegar á leið fór ég að stytta þetta suð og segja „emm ell“ sem skildist strax. Ekki það að mér hafi leiðst eitthvað minna við það en þar hafið þið söguna af því þegar Valdísi leiddist.

Ég veit að það er einn dyggur lesandi sem hlustar á lögin sem ég set hérna inn, ástkær bróðurdóttir mín í Finnlandi. Jólalagið sem ég ætla að setja hér í dag er tileinkað henni en saman hlustuðum við á áðurnefnda uppáhaldshljómsveit, Wham, þegar við vorum krakkar. Þá leiddist mér sko ekki! Þetta er næstflottasta jólalag í heimi, það flottasta kemur í næstu viku. Njótið vel!

16.12.04

emm ell

Mér leiðist próflestur þótt hann sé bara fyrir 1 próf. Fæ bara hausverk af honum. Rúmlega 3 lesdagar eftir... svo búin! Ætla samt ekki að tapa mér yfir þessu og ætla að horfa spennt á Alias í kvöld. Það er orðinn siður að hittast á Seljaveginum yfir dæet kóki og horfa á þáttinn með athugasemdum eins og „hann er nú frekar sætur“ (þ.e. Vaughn) og „djöfull þoli ég hana ekki, hvenær ætlar hann að fatta að hún* er vond og byrja aftur með Sidney?" (*hún er sko konan hans Vaughns) Kannski gerist það í kvöld...o, ég hlakka til :)

12.12.04

Sunnudagur

Þá er Stekkjastaur kominn til byggða og gaf mér samt ekkert í skóinn! Og ég sem var búin að ganga í fínu jólasveinainniskónum í marga daga honum og bræðrum hans til heiðurs og haga mér alveg svakalega vel í alla staði. Skil þetta ekki... kannski gefur hann ekki þeim sem eru orðnir 28 ára. Eða þá að hann nær ekki upp á þriðju hæð? Hver veit, ef ég haga mér áfram vel í desember fæ ég kannski pakka frá honum.


Image Hosted by ImageShack.us



Ég er til dæmis búin að haga mér rosalega vel um helgina. Í gær fór ég með Önnu Katrínu að kaupa jólagjafir á Laugaveginum. Það er ótrúlegt hvað það er miklu skemmtilegra að fara í búðir þar en í þessum Kringlulindum þarna. Ferskt loft og engin örtöð og fullt af fínum búðum. Mér tókst að kaupa fullt af gjöfum, bæði afmælis- og jóla, og var ekki úrvinda af þreytu á eftir eins og ég hefði verið eftir Kringluna eða Smáralind. Mæli með þessu fyrir jólin!

Fór svo á afskaplega slappa mynd í bíó. Reyndar var lítið í boði, vorum að spá í Surviving Christmas (7% af 100) og Paparazzi (20% af 100) en vegna lélegra dóma ákváðum við að sjá Mindhunters sem við fundum enga dóma um. Sem betur fer. Renny Harlin mynd með Val Kilmer, Christian Slater og LL Cool J meðal annarra. Hljómar ekki svo illa en svei mér þá ef Seed of Chucky hefði ekki bara toppað hana. Kannski. Mæli allavega ekki með henni.

Svo er það lærdómur. Er að svara spurningum um tölfræðilega marktekt og línulega umbreytingu mér til gleði og gamans. Skemmtilegt!

10.12.04

Ha? Ég?

chatterbox


Congratulations! You're Mr. Chatterbox!


Which of the Mr. Men characters are you?
brought to you by Quizilla

Föstudagur!

Ég er bara alveg farin að klikka á því að setja inn föstudagstónlistina - saknar þess nokkur? Æi, hvað með það, ég skelli inn einu stuðlagi fyrir helgina. Það er ekki jólalag, þau koma ekki fyrr en kannski um næstu helgi. Lagið heitir hins vegar Maniac og er úr einhverri dansmyndinni - Flashdance held ég. Þetta var ég með í botni á göngubrettinu í morgun úr nýju græjunni okkar og fílaði mig alveg eins og gellan í myndinni! Hér kemur lagið allavega og njótið vel!

9.12.04

Er þetta hægt?



Sá í Mogganum að verðmunur á leikföngum er ansi mikill milli Bandaríkjanna og Íslands. Finnst ykkur þetta hægt? Nú er dollarinn kominn í rúmlega 60 krónur og ekki hægt að nota það sem afsökun. Ef eitthvað hækkaði í verði hérna um árið þá var það af því að gengið var svo hátt! Er ekki allt í lagi??

8.12.04

Sjitt!

þetta á síðunni hjá Bjössa og mátti til með að deila þessu með ykkur! Er ekki í lagi með sumt fólk??

6.12.04

Mánudagur

Þá er áthelgin mikla búin og við tekur svelti fram að jólum! Á föstudaginn fór ég á jólahlaðborð á Hótel Borg með vinahópnum - Önnu, Svölu, Ólöfu, Hrafni, Möggu, Sigfúsi, Birnu og Sigga. Ljómandi fínt kvöld í alla staði - maturinn aldeilis fínn og það var mjög fyndið að líta yfir hópinn eftir matinn, allir geispandi og gapandi með bumbuna út í loftið! Á laugardaginn fór ég í sveitina í meira át, laufabrauðsgerð um daginn og annað hlaðborð um kvöldið. Nýsteikt laufabrauð og annar veislumatur. Aftur varð maður of saddur og valt útaf eftir matinn.


Image Hosted by ImageShack.us



Ég elska Gretti, við eigum svo margt sameiginlegt - finnst gott að borða og leggja okkur!

2.12.04


Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Aðventan

Ég er bara ekkert búin að komast á netið af ráði alla vikuna, hér er verið að læra í hverju horni og þar sem ekkert þráðlaust net er á heimilinu kemst ég ekkert á netið í ferðatölvunni. Vikan samt búin að vera nokkuð notaleg bara. Ég byrjaði aðventuna á að kveikja á fyrsta kertinu í fína kransinum mínum og fór svo á aðventutónleika í Bústaðakirkju þar sem frænka mín söng svo fallega með kórnum sínum. Mér finnst þetta alltaf svo hátíðleg stund og þegar allir syngja Heims um ból við kertaljós þá kemst maður bara í jólaskap!

Svo fór ég loksins á Bridget Jones og þar sem ég átti boðsmiða fyrir tvo bauð ég Svölu ofurlyfsala með mér og við skemmtun okkur ljómandi vel. Mér fannst myndin mjög skemmtileg þótt hún væri ekkert miðað við þá fyrri - mörg frábær atriði þar!

Í vikunni fór ég líka á ráðstefnu í tungutækni sem var mjög skemmtileg og gaman að sjá hvað öll þessi tungutækniverkefni sem kynnt voru eru flott! Ég bíð svo bara eftir því að það komi umfjöllun um hana í fréttum RÚV þar sem myndatökumaður æddi inn í miðjum fyrirlestri Bjössa tungutæknis - eitthvað sem mér hefði þótt mjög óþægilegt. Svekkjandi þó að menntamálaráðherra skyldi ekki sjá sér fært að komast, maður fékk á tilfinninguna að þetta væri kannski ekki nógu mikilvægt...:(

Síðasta kennslustundin mín í dag! Þetta er búið að ganga alveg ljómandi vel, fyrir utan kannski síðasta tíma þegar ég gerði vitleysur á glærunum - en eins gott að nemendurnir voru svona klárir og gátu leiðrétt mig! Núna ætla ég því að hafa glærurnar réttar og því best að fara að byrja á þeim...

28.11.04


Myndina sendi ég
Powered by Hexia

26.11.04

September

Nei, ég veit að það er að koma desember en ég var að fatta að það er mjög skemmtilegt lag með Earth, Wind and Fire sem heitir September og ég á afmæli í september þannig að hér kemur lagið!

Svo er aldrei að vita nema maður fari að spila jólalög, aðventan er að byrja um helgina og við búin að kaupa í „krans“ sem verður nokkuð nýstárlegur í ár. Set kannski inn mynd við tækifæri.

25.11.04

Jibbí!

Ég var að vinna boðsmiða á Bridget Jones!! Fékk bréf í dag frá KB banka með miða og tilkynningu um að ég hefði unnið en ég skráði mig einmitt til leiks þar um daginn. Er bara fegin núna að vera ekki búin að fara - og hí á ykkur sem fóruð án mín... ég býð ykkur sko ekki að fara aftur! Hinir mega slást um að fara með mér :)

21.11.04

Sunnudagur

Prófið í gær gekk alveg hreint bærilega - kannski að maður reddi þessu lokaprófi bara eftir allt saman! Eftir prófið sótti Selma frænka mig og við fórum í þessa fínu afmælisveislu í sveitinni. Borðið var hlaðið af alls kyns veitingum og hafði yngra afmælisbarnið bakað helling sjálf ásamt bróður sínum - og þau bara 8 og 12 ára! Lúxus hjá mömmunni að eiga svona fyrirmyndarbörn. Svo var maður eiginlega afvelta fram að kvöldmat en þá var meiri veisla alveg ljómandi fín.

Sveitin skartar sínu fegursta þessa dagana, allt á kafi í snjó og rosa jólalegt. Ég vona að það verði svona snjór yfir öllu á jólunum en samt ekki blindbylur... það verður að vera fært í sveitina. Það væri nú samt týpískt að það yrði bara rok og rigning - en ég er samt farin að hlakka fáránlega mikið til jólanna og held ég megi það bara, aðventan byrjar nú bara næstu helgi þannig að fer að styttast í þetta!

20.11.04

Laugardagsmorgunn

Ég sit við tölvuna á laugardagsmorgni og ætti að vera að læra fyrir próf í tölfræði sem hefst eftir klukkutíma og korter. Nenni því samt ómögulega... læri hvort eð er lítið nýtt á klukkutíma! Mikið verð ég samt fegin þegar þetta próf er búið, þá verður aðeins hægt að einbeita sér að öðru - tja, eins og t.d. lokaverkefninu.

Eftir prófið ætla ég svo að fara í sveitina í afmælisveislu en nöfnurnar Þórdís eldri og Þórdís yngri eiga báðar afmæli í dag. Til hamingju með það!


Sætastir!

Eru þeir ekki sætir?



Í tilefni þess að það er laugardagur og því góð ástæða til að vera í stuði kemur hér stuðlag með uppáhaldshljómsveitinni minni, Wham! Þetta get ég hlustað á aftur og aftur... Góða skemmtun!

18.11.04

Fall og Vonbrigði

Furðulegir tónleikar í gær, alveg hreint furðulegir. Vonbrigði byrjuðu, hljómsveit sem ég hef svosum ekkert hlustað á en áttu lagið Ó Reykjavík sem er bráðskemmtilegt. Á meðan sat hálfur salur af fólki sem kinkaði kolli í takt við tónlistina. Þeir spiluðu mjög lengi og tóku uppklappslag og allt. Þá kom Dr. Gunni með nokkur lög og svo byrjuðu furðulegheitin. 10 mínútur af plötu söngvara Fall, Mark E. Smith, þar sem hann talar bara... þá kom hljómsveitin og svo hann sjálfur, vægast sagt útlifaður greyið. Manni brá soldið að sjá hann, ég hafði að vísu heyrt að hann væri sukkari og allt það en hann leit út fyrir að vera á sjötugsaldri en ekki fimmtugsaldri. Svo er eiginlega ekki hægt að lýsa þessu, maður varð að vera á staðnum. Hann ráfaði þarna um og horfði á áhorfendur sitja í sætum sínum, sönglaði á sinn einstaka hátt og var svo alltaf að fikta í græjum á sviðinu, taka alla míkrófónana og setja þá inn í trommuna og alltaf þurftu hinir meðlimirnir að laga eftir hann. Hljómsveitin sjálf var mjög þétt og góð og lögin algjör snilld en ég er hrædd um að Mark hafi munað sinn fífil fegurri - held ég... Samt er hann giftur ungu stúlkunni sem spilar á hljómborðið!
Og hvað á þetta að þýða? Fyrst er boðið upp á sitjandi tónleika á 3.200 kr. og svo stuðtónleika á þúsundkall! Fáránlegt...

17.11.04

Til hamingju Hex!

Hex hugbúnaður er að meika það þessa dagana. Fyrirtækið er komið á lista yfir 200 athyglisverðustu nýsköpunarfyrirtæki í heiminum sem er frábær árangur. 100 athyglisverðustu fyrirtækin verða svo valin í desember og vonandi verða þau þar! Svo voru þau í hádegisfréttunum og allt líka - áfram Hex!

Hmm

Take the quiz: "What Band Are You? (none of that pop shit)"

White Stripes
I like to listen to you when i want to hear intruments. I especially like Megg. Jack is pretty ugly. Sorry kiddo. I admire your talent and variety.

Ég hlakka svo til...

...ég hlakka alltaf svo tiiiil...

Nei, ég er ekki orðin geðveik og farin að syngja jólalög heldur hlakka ég bara svo óskaplega mikið til kvöldins! The Fall eru að spila í kvöld og það verður vonandi rosa gaman. Gallinn er bara sá að þegar maður er svona spenntur eru miklar líkur á að verða fyrir vonbrigðum en með því að vera samt meðvitaður um það gæti það sloppið... er það ekki? Hér er allavega eitt gott Fall lag til að koma öllum í gott skap í þessum vetrarkulda úti.

Talandi um vetrarkulda þá lenti ég einmitt í skemmtilegum torfæruakstri í gær eins og svo margir aðrir á höfuðborgarsvæðinu. Ég þurfti að keyra inn í Kópavog og til baka um sexleytið, þegar allt var stopp vegna hægrar umferðar. Þar sem ég er á svo vel útbúnum fjallabíl var þetta bara smágaman, ég spólaði allavega ekkert eins og sumir þannig að það var bara gott mál.

Svo saumaklúbbur í gærkvöldi. Mjög við hæfi að hafa saumaklúbb íslenskufræðinga á Degi íslenskrar tungu. Fullt af sögum og slúðri og frábærum veitingum - takk fyrir það!

15.11.04

Verkfall

Þetta verkfall teygir anga sína víða...

12.11.04

Stuð stuð stuð!

Tékkið á skónum!



Hvað kemur manni í meira stuð en sænskt Eurovisionlag? Ég bara spyr? Reyndar ekkert nýtt stuð þarna á ferðinni en þetta kemur mér alltaf í gott skap. Svo er ég með fleiri stuðlög uppi í erminni - eða réttara sagt inni í tölvunni - þannig að það verðu stuð hérna næstu vikurnar!

Skemmtið ykkur vel og hækkið í botn!

11.11.04

Stuð?

Ég er búin að hafa miklar áhyggjur af því hvert stuðlag morgundagsins eigi að vera, sérstaklega þar sem það er partýdagur og svona. Svo fór ég að skoða það sem ég er búin að vera að hlusta á og ekki er það nú mikið stuð... Slowblow (slow eins og nafnið gefur til kynna...), Edith Frost (líka slow), Sufjan Stevens (ehm, slow...), Cat Power (já, slow), Beck (slow plötuna hans), Bonnie Prince Billy (mjööög slow), Elliot Smith (já, hann drap sig og gerði slow tónlist) og já, fann ekkert stuð! Mig vantar nýja stuðtónlist!!! Þetta verður semsagt verkefni þar til á morgun. Ég vona að ég finni stuðið í sjálfri mér.

7.11.04

Piaf

Image Hosted by ImageShack.us



Ég fór á alveg frábært leikrit í gær, Edith Piaf í Þjóðleikhúsinu. Leikritið var skemmtilegt og aðalleikkonan, Brynhildur Guðjónsdóttir, var alveg hreint mögnuð í sýningunni. Bæði söng hún alveg snilldarlega og svo náði hún að vera svo svakalega trúverðug bæði sem lítil stelpa og sem Edith í ævilok en þá var hún 47 ára en var víst orðin eins og gömul kona. Ég mæli allavega með þessari sýningu fyrir alla þá sem hafa gaman af tónlist Edith Piaf.

Svo er bara læridagur í dag, helv.... tölfræðiverkefni sem á að skila á fimmtudag. Reyndar verður maður aðeins að kíkja út úr húsi, kannski maður kíki í Kolaportið og kaupi sér harðfisk og kannski venjulegan fisk?

4.11.04

Snjór!

Það er snjór úti og samt er ég ekki á Húsavík eins og sumir! Reyndar spáir rigningu og hita strax á morgun þannig að nagladekkin og mannbroddarnir rétt duga mér í dag...

Nú standa yfir breytingar á heimilinu, við skelltum okkur í Rúmfatalagerinn í gær og keyptum tölvuborð/hillu og sjónvarpshillu. Ekki veitti nú af með öllum þessum tækjum og tólum, digital afruglurum og svoleiðis dóti. Það þýðir að nú þarf að henda fína, gamla, hvíta Ikea skrifborðinu mínu sem ég er búin að nota síðan í barnaskóla. Ekki mikil eftirsjá af því svosum en það hefur þjónað sínum tilgangi í gegnum minn menntaferil.

Og þessi Bush þarna... bölvaður. Þessir Kanar eru ótrúlegir! Restin af heiminum (nema kannski Ísraelar) hristir hausinn yfir þessum úrslitum en Kanar virðast ekki einu sinni vita af heiminum fyrir utan Ameríku. Sussusvei segi ég nú bara!

31.10.04

Digitalis

Svona verð ég...



Ég hef varla tíma til að blogga fyrir öllu þessu sjónvarpi sem er í gangi þessa dagana! Stafrænt sjónvarp er komið inn á heimilið með yfir 30 sjónvarpsstöðvum og allt frítt til áramóta :) Sjónvarpssjúklingurinn ég er frekar ánægð með þetta allt saman þannig að ég verð sennilega upptekin öll kvöld á næstunni... að horfa á Stöð 2, Bíórásina, Private Blue eða eitthvað þaðan af skemmtilegra!

Sleit mig þó frá sjónvarpinu og dreif mig í sveitasæluna í gær þar sem ég fékk dýrindis lambakjöt af grillinu og á eftir spiluðum við manna sem ég auðvitað skíttapaði. Ég er ekki alveg með spilatæknina á hreinu, spila eiginlega nóló í hverju spili.

28.10.04

Nesið rúlar!

Já, þjónusta þeirra fyrirtækja sem ég hef skipt við í gegnum árin er einna best á Seltjarnarnesi skv. óformlegri þjónustukönnun. Í haust nefndi ég frábæra þjónustu Bílaness þegar bíllinn fór í viðgerð og nú voru það öðlingarnir í Nesdekki sem stóðu sig með prýði. Í gær hringdi Nonni sjálfur í mig og sagði að dekkin væru komin og í morgun fór ég að fá þau undir bílinn. Reyndar varð þetta ansi dýrt spaug en þó fékk ég gott verð á nöglunum (þeir fylgja sko ekki með dekkjunum...) og fékk staðgreiðsluverð á visakortið! Mjög almennilegir þarna á Nesinu:)

Svo er það æsispennandi Alias í kvöld þar sem vonda konan sem lítur alveg eins út og besta vinkona Sidney af því að hún þóttist vera hún og það var ekki hægt að breyta henni aftur er lifandi þótt hún hafi verið skotin þrisvar í síðustu seríu og reyndar líka næstum því drepin í síðasta þætti en drap svo alla í sjúkrabílnum og stakk af! Skilduð þið þetta?! Get ekki beðið...

26.10.04

hahahaha!

Myndir af samkvæmislífinu um helgina eru sérstaklega fyndnar núna hjá Baggalúti... Eiki Rö... þessir menn eru ótrúlegir!

Kalt

Ódýrt dekk



Já, það er sko kalt úti!!! Brrr, vona bara að það komi ekki hálka og vesen strax. Ég gerði tilraun til að fá vetrardekkin undir bílinn í morgun en það gekk nú ekki nógu vel. Tvö dekkin eru ónýt, stórt gat á öðru síðan það sprakk í vor og svo lak meðfram nöglunum allan hringinn á hinu... hvað á það að þýða? Þá eru naglarnir víst alltof stórir fyrir þessi dekk eða eitthvað og tímaspursmál þangað til fer að leka meðfram á hinum. Eitt dekk (já, 1 dekk) kostar 12.000 krónur takk fyrir en ég þarf að bíða eftir þeim ódýru og fínu dekkjum fram í næstu viku. Svona er að vera bíleigandi, það er víst meira en bensínið sem þarf að borga fyrir.

Var ég annars búin að segja ykkur hvað var gaman á Airwaves? Laugardagskvöldið var hreint út sagt frábært, The Stills og The Shins voru bara bestir af því sem ég sá á hátíðinni. Þið trúið því ekki hvað ég var glöð þarna um kvöldið, ég tala nú ekki um þegar ég komst óvart að því að bjórinn kostar bara 290 kr. ef maður á stúdentaskírteini! Heppin ég að vera enn í skóla...

22.10.04

Föstudagur

Hafiði tekið eftir því að ég skrifa soldið mikið um tónlist? Hmm... sennilega! Æi, þetta endar alltaf þannig hjá mér, enda svosum lítið annað við að vera þessa dagana. Airwaves er einmitt í gangi um helgina og alveg nóg að gera. Það voru tónleikar bæði í gærkvöldi og fyrrakvöld sem voru mjög skemmtilegir og svo er fullt að gera í kvöld. Þeir tónleikar sem eru búnir voru aðallega á einum stað en í kvöld vandast málið því að ég sé fram á að þurfa að flakka á milli svona 5 staða til að sjá það sem er spennandi - enda ætla ég bara að vera á bíl! Á morgun verð ég hins vegar aðallega á Gauknum og ætli maður fái sér ekki bara öl í tilefni þess og skilji bílinn eftir...

Föstudagsstuðið hlýtur því að vera með The Shins þar sem þeir verða á Gauknum annað kvöld. Njótið vel og góða helgi!

19.10.04

Fín

Ahhh, var að koma úr klippingu sem veitti sko ekki af! Hárið orðið sítt, upplitað og slitið og gráu hárin farin að skína í gegn. Það gengur náttúrulega ekki að vera þannig fyrir Airwaves sjáiði til. Verst að myndavélasíminn er ekki heima...

Svo er bara Airwaves að byrja á morgun! Það verða þá tónleikar á hverju kvöldi fram á sunnudag og svo útskrift (ekki mín samt) á laugardaginn líka. Aldeilis fjör framundan:)

18.10.04

Ónei

Nú er það nýjasta að Stranglers eru að koma í desember. Sem er kannski fínt bara... nema hvað að það er allt annar söngvari í hljómsveitinni núna en þegar þeir komu t.d. síðast. Hugh Cornwell, söngvarinn sem ku hafa stofnað hljómsveitina á sínum tíma, hætti árið 1990 og tók þá við annar söngvari. Þeir voru að spila eitthvað í París á sínum tíma (´97) og að vísu missti ég af þeim þar en þeir sem fóru voru nú ekkert yfir sig hrifnir, söngvarinn var algjör lúði sem passaði ekki alveg inn í Stranglers. Ég sel þetta samt ekki dýrara en ég keypti það... mig langar allavega ekkert rosalega að fara.

16.10.04

Dugleg stelpa

Þá er maður búinn að rífa sig upp úr eymdinni og farinn að gera eitthvað af viti! Ég er búin að taka smátörn í verkefninu aftur og ætla að halda því áfram á meðan ég er í stuði. Algjör handavinna í gangi þessa dagana sem ég hefði átt að vera löngu búin með en svona er þetta bara!

Var annars grasekkja í tvo daga þar sem hjásvæfan var í skólaferðalagi en er svo heppin að eiga góða vinkonu sem eldar handa mér á meðan að svo stendur á. Án hennar hefði ég sennilegast þurft að borða pasta með krukkusósu eins og í gamla daga...

Er líka búin að vera að hlusta á alveg yndislega plötu sem ég hvet alla til að hlusta á. Sufjan Stevens er tónlistarmaður frá Bandaríkjunum sem gerir alveg frábæra tónlist, allavega er platan hans, Seven Swans, alveg yndisleg. Svo er hann líka svaka sætur eins og sjá má af myndinni hér að neðan...


Súffi sæti

15.10.04

Snilld

Það var verið að benda mér á alveg tæra snilld. William Shatner er greinilega margt til lista lagt og er nú nýbúinn að gefa út plötu. Þar tekur hann Pulp-slagarann Common People alveg frábærlega auk annarra laga. Ég hef bara heyrt tvö laganna og er alveg stórhrifin. Hlustið á og njótið yfir helgina!

11.10.04

Ládeyða

Þvílík ládeyða sem er yfir manni þessa dagana! Svona fer haustið með mann... Fór allavega í tölfræðiprófið á laugardag og vona að það hafi gengið ágætlega, það verður bara að koma í ljós samt. Þegar það er búið getur maður líka farið að einbeita sér að öðrum hlutum, ég þarf a.m.k. ekki lengur að ná neinu upp og er komin á rétt ról þar.

Annars er dagskráin fyrir Iceland Airwaves loksins komin og lítur ágætlega út bara. Maður er náttúrulega farinn að skipuleggja sig soldið til að geta séð það sem er mest spennandi en þá þarf maður að gera ráð fyrir því að tímasetningar standist ekki (sem gerist nú yfirleitt á tónleikum) og jafnvel að það sé bara fullt út úr dyrum og maður komist ekki inn, því að þó maður eigi armband hleypir það manni aðeins inn á meðan húsrúm leyfir. Út af þessu öllu þá verður laugardagskvöldið strembið því að helst þyrfti ég að vera á 3 stöðum í einu og það er barasta ekki hægt! Á Nasa er spennandi dagskrá allt kvöldið og í Hafnarhúsinu eru Keane að spila sem mig langar að sjá. En Gaukurinn verður sennilega fyrir valinu því að þar eru The Shins að spila og þeir eru sko skemmtilegir. Nóg að gera framundan!

6.10.04

Ríkið

Image Hosted by ImageShack.us

Ég sá í Morgunblaðinu í gær að verið væri að loka Ríkinu á Seyðisfirði og flytja verslunina inn í bensínstöð. Ekki þó við hliðina á rúðupissinu, heldur í sama húsnæði. Seyðfirðingar munu vera afar óánægðir með þetta enda hefur verslunin verið í sama húsi síðan ég veit ekki hvenær og allir bara kátir með það. Þetta er ekki eina dæmið um að Ríkið flytji inn í bensínstöð. Um helgina sá ég að það var búið að flytja Ríkið á Höfn úr bara fínu húsnæði í pínulitla holu inn af Esso sjoppu. Ég fór þangað á föstudeginum og um leið og það voru komnir 3 inn í búðina gat maður ekkert skoðað í hillurnar fyrir fólki! Þar er fólk víst ekkert of ánægt með þetta og vildi fá búðina inn í Miðbæ sem er eins konar verslunarkjarni á svæðinu með stórri matvöruverslun og fleiri búðum. Þá var málið víst það að Esso gerði samning við ÁTVR um að hafa vínbúðirnar inni í sjoppunum! Þetta finnst mér bara hallærislegt. Þetta er ekki fyrsta skrefið í þá átt að hægt sé að kaupa vín með matnum, því ekki kaupir maður sér kvöldmat í Esso. Er þá ekki þægilegra að hafa vínbúðina í verslunarkjörnum sem svo víða hafa verið að byggjast upp svo fólk geti klárað dæmið á einum stað? Er kannski verið að hvetja til drykkju undir stýri? Kaupir maður sér þá bensín og bjór?? Huggulegt...

4.10.04

Mánudagur

Jæja, nú er ég að hugsa um að stoppa í bænum í nokkra daga... Helgin á Hornafirði var frábær eins og alltaf, maturinn hjá systur minni klikkaði ekki frekar en fyrri daginn þannig að ekki er maður mjórri eftir þessa helgi. Svo var líka heitur pottur hjá þeim sem var algjört æði þannig að það var vel slakað á. Og reyndar farið á diskóball líka!

En nú er bara mánudagur, brjálað rok úti og alþingisumræður í sjónvarpinu. Mikið er ég fegin að ná Skjá 1 núna! Og svo próf á laugardaginn í tölfræði:( Skemmtileg vika framundan!

30.9.04

Harbour in Hornfjord

Enginn tími til að blogga, er að fara út úr bænum... aftur. Hef ekki verið heila helgi í bænum síðan í júlí! Það eru tveir heilir mánuðir! Í þetta skiptið er það Höfn í Hornafirði þar sem systir mín kær býr. Við systkinin sem búum hérna megin á landinu förum árlega austur til að heimsækja þau og er þá líka farið á skytterí. Ekki við stelpurnar reyndar, við nennum ekki að vakna svona snemma til að skjóta fugla. En við ætlum sem sagt að leggja af stað á eftir, verst að ég er að kenna til kl. 4 og ekki getur maður víst skrópað frá því...

Föstudagsstuð verður ekki sett inn vegna af ótta við lögregluna. Svo verð ég ekkert með tölvuaðstöðu á morgun hvort eð er þannig að þá yrði það aldrei föstudagsstuð heldur. Góða helgi samt!

28.9.04

Þriðjudagur

Ég er ekki að nenna að læra og hvað gerir maður þá? Nú, fer á netið auðvitað! Helgin var rosa skemmtileg þrátt fyrir rok og rigningu framan af. Það kom slatti af löxum á land, enda dugnaðarforkar við veiðar. Þar af komu maríulax og maríuurriðar og ég landaði meira að segja laxi með hjálp stóru systur. Svo veiddi ég sjóbirting sem verður í matinn á eftir...


Image Hosted by ImageShack.us

Kajagoogoo 1983


Ég datt annars inn í skemmtilegan raunveruleikaþátt á Vh1 í gærkvöldi. Þátturinn heitir Bands Reunited og gengur út á að þáttastjórnandinn heimsækir meðlimi hljómsveita sem eru hættar og fær þá til að koma aftur saman. Í gær var hljómsveitin Kajagoogoo viðfangsefnið en það er hljómsveitin sem Limahl byrjaði í. Þegar hljómsveitin var orðin vinsæl fannst meðlimunum hún einum of mikil unglingahljómsveit, að aðdáendurnir hugsuðu meira um sæta söngvarann en tónlistina og því ráku þeir Limahl. Hljómsveitin leystist svo upp en Limahl varð rosa frægur með Never Ending Story o.s.frv. Nú, 20 árum síðar, er Limahl enn rosa sár og hefur ekki talað við hina meðlimina síðan hann var rekinn. Þeir samþykktu þó allir að koma saman fyrir Vh1 og spila á tónleikum, Limahl þurfti að leita að textunum sínum á netinu þar sem hann var búinn að gleyma þeim og allt, en þetta endaði allt vel með rosa tónleikum þar sem allir sungu saman! Merkilegt hvað tónlist getur fært fólk saman... Ég hlakka til að sjá hvaða hljómsveitir verða í næstu þáttum!


24.9.04

Föstudagsstuð

Tékkið á hárinu!



Föstudagsstuð vikunnar er með A Flock of Seagulls, snilldarhljómsveit með snilldarhár! Ef þetta kemur ykkur ekki í helgarskapið, þá veit ég ekki hvað...

Föstudagur... aftur

Það er bara alltaf föstudagur - sem er gott, er það ekki?? Ég veit ekki hvert dagarnir fara annars, þetta er ótrúlegt alveg. Nóg að gera í vikunni, tónleikarnir á sunnudaginn voru mjög góðir og fannst mér spilamennskan hjá þeim alveg frábær. Þau hefðu hins vegar mátt spila miklu lengur, ég var allavega ekki búin að fá nóg eftir þennan klukkutíma sem þau spiluðu. Og lagavalið hefði mátt vera betra líka... Samt rosa gaman og upphitunin var líka frábær.

Svo er bara búið að vera fullt að gera eins og gengur. Ég er þessa dagana að byrja í sjúkraþjálfun aftur og nú í Gáska. Mér líst bara mjög vel á það allt og alveg kominn tími á að fara að sprikla aftur eftir gott frí. Svo er það bara tölfræðin og kennslan, ég er alveg að meika það sem kennari bara... djók! Og blessað verkefnið sem ég fer nú að hella mér í aftur. Þetta er svona allt að gera sig bara sem er gott og blessað.

Helgin fer í veiðiskap og almenna skemmtun. Í dag á að fara í Kjósina að veiða í klak... ég ætla rétt að vona að veðrið lagist aðeins, en það verður bara að koma í ljós. Hele familien verður á svæðinu og góður matur snæddur og gaman gaman!

Var annars að komast að því með hjálp góðs fólks að lagið í Umferðarstofuauglýsingunni (Somewhere Over the Rainbow) er EKKI flutt af Israel Kamakawiwo'ole þar heldur ku söngvarinn í Tenderfoot syngja þetta þar svo undurfallega. Þetta er búið að taka mikið á mig og mína nánustu og gott að vera búið að fá þetta á hreint. Nú eru Tenderfoot sem sagt komnir í uppáhald og hlakka ég mikið til að sjá þá á Airwaves eins og svo margt annað.

21.9.04

Hehe

Mér finnst þetta nú bara nokkuð sniðugt hjá Ástþóri. DV má stundum alveg slaka á í „fréttamennsku“ sinni...

19.9.04

Sunnudagur

Það er alveg merkilegt hvað manni verður lítið úr verki á sunnudögum. Ég ætlaði svoleiðis að reikna tölfræðidæmi í allan dag og vera þvílíkt inni í öllu sem kennarinn talar um í tímanum á morgun en... ónei. Er búin að gera meira af því að glápa á tölvuskjáinn, hlusta á Blonde Redhead og spila kapal. Druslaði mér þó í sund þegar ég stóð upp af stólnum og fann að ég var eins og spýtukerling eftir setuna. Afskaplega hressandi að synda nokkrar ferðir og hlýja sér svo í heita pottinum á eftir. Sunnudagslæri hjá tengdó á eftir og svo tónleikar! Vibbívei!

17.9.04

Helgarstuð

Stuðlag helgarinnar hlýtur að vera með Blonde Redhead í tilefni tónleikanna á sunnudaginn. Lagið er af plötunni Melody of Certain Damaged Lemons frá árinu 2000 og ætti að koma fólki í tjúttgírinn! Kannski að ég reyni að setja inn stuðlag helgarinnar á hverjum föstudegi, hvernig líst ykkur á það?


Image Hosted by ImageShack.us

Fyrir utan tónleikana verður nú aldeilis stuð um helgina því að á morgun eru réttir! Það verður smalað og rúið og mömmukjötsúpa handa smalafólki á eftir... mmm. Svo er það lærdómurinn á sunnudag og ekkert múður! Reyndar gekk bara ágætlega að kenna í gær, mér fannst ég nú ekkert kennaraleg svosum þar sem ég beið fyrir utan stofuna með nemendum sem m.a. voru eldri en ég, en held bara að ég hafi staðið mig ágætlega. Er að hugsa um að fara að kalla mig Prófessor Valdís...

16.9.04

Tónleikar

Nú virðist vera komið að seinni tónleikahrinu ársins hjá mér. Framundan eru snilldartónleikar með Blonde Redhead, The Fall og Airwaves. Fyrir utan hvað mig langar á Damien Rice og Lisu Ekdahl en það er víst ekki á allt farið...

Blonde Redhead


Fyrst á stokk stíga Blonde Redhead, snilldarhljómsveit sem hefur komið hingað áður á upprisuhátíð Hljómalindar um árið. Þá spiluðu þeir í Laugardalshöll, sem var nú alveg glatað - alltof stór staður fyrir svona hljómsveit, enda virkaði salurinn tómur með nokkur hundruð manns. Nú á að skella þeim í Austurbæ sem er líka alveg glatað. Þetta er ekki sitjandi-tónleika-hljómsveit! Af hverju er ekki hægt að hafa þetta t.d. á Nasa? Ég hefði haldið að það ætti betur við. Ég hlakka samt rosalega til enda hrifin af öllu sem þau hafa gert.

The Shins

Í október er það Airwaves hátíðin og er ég búin að fjárfesta í passa á alla tónleikana. Ég þekki nú ekki nærri því allt sem verður þar í boði en hef þó hlustað á Keane og The Shins sem ég er mjög hrifin af. Það er bara spurning um að fara að finna sér eitthvað meira á netinu! Ég hlakka líka til að sjá eitthvað af íslensku hljómsveitunum og sá að Slowblow voru að bætast í hópinn. Reyndar hita þeir upp fyrir Blonde Redhead þannig að aldrei þessu vant eru þeir út um allt í ár!


Mark E. Smith í gamla daga

Svo eru það The Fall. Þeir hafa víst komið hingað tvisvar áður en þá var ég svona 6-7 ára og komst ekki... Þeir hafa gefið út allavega eina plötu á ári frá 1979 og á ég ekki allar plöturnar! Ég hef þó hlustað á einar 5 plötur eða svo eru þeir í miklu uppáhaldi hjá mér. Þið sjáið af þessu að það er nóg framundan og ef ég gæti myndi ég fara að sjá Damien Rice og Lisu Ekdahl en það er víst ekki í boði núna nema ég sleppi því bara að gefa jólagjafir í ár...

15.9.04

Stress

Já, það er svona að hanga bara í fríi alla daga, verkefnin sem bíða manns eru svo mörg og mikil. Bíllinn þurfti nú að bila þegar við komum að utan þannig að ég fór með hann á verkstæði í gær. Öðlingarnir hjá Bílanesi tóku hann að sér og skutluðu mér svo heim þar sem ég varð hálfgerður strandaglópur því ekki geng ég langar vegalengdir ennþá. Í dag var svo bíllinn tilbúinn og það var bara náð í mig aftur! Þvílík og önnur eins þjónusta. Ekki nóg með það heldur var hliðarspegillinn líka brotinn á bílnum og ég spurði hvort að það þyrfti að kaupa alveg nýtt stykki. Neinei, sagði maðurinn, ég get bara sent þetta fyrir þig í pósti norður til kunningja míns sem býr til spegil í þetta fyrir skít og kanil. Þannig að nú er spegillinn á leiðinni norður með pósti og ég fæ hann aftur í næstu viku þar sem þeir skella honum bara á bílinn! Hann hefði auðveldlega getað sagt mér að kaupa nýtt stykki á 30.000 kr. í stað þess að hafa fyrir því að senda stykkið með pósti norður og setja í seinna. Og þetta kostar mig svona undir 2000-kalli. Ég mæli sem sagt með Bílanesi úti á Seltjarnarnesi, ég hef oft farið þangað með bíla í viðgerð og alltaf fengið toppþjónustu.

Annars er ég búin að vera að undirbúa fyrstu kennslustundina mína. Þá fyrstu sem ég kenni. Ég lét plata mig í að vera aðstoðarkennari í vetur á meðan ég var úti. Ég sat í makindum úti á svölum með bjór í hendi þegar síminn minn hringdi og var þá á línunni maður sem vildi endilega fá mig til að kenna aðeins í vetur. Ég var í svo góðum fíling að ég játaði umsvifalaust og nú sit ég sveitt að skrifa fyrirlestur um hljóðeðlisfræði! Reyndar eru þetta alls 3 skipti sem ég á að vera með fyrirlestur en annars er þetta aðallega að fara yfir heimaverkefni vikulega og vera með aukatíma þar sem farið er yfir þau. Ég hef verið aðstoðarkennari áður en þá þurfti ég ekkert að kenna heldur bara að fara yfir verkefnin þannig að ég er bara ansi stressuð hreint núna.

Svo er það blessuð tölfræðin. Ég fór í fyrsta tímann í henni og skil bara ekki baun í bala. Ég var aðeins búin að lesa yfir efnið sem var búið að fara í þannig að ég kom nú ekki alveg af fjöllum en ég er ekkert farin að reikna ennþá... þannig að það er næst á dagskrá. Út af öllu þessu hefur svo töluverkefnið minn setið á hakanum í nokkra daga en vonandi fyrirgefst mér það. Ég fer að gera almennilega stundatöflu sem gerir ráð fyrir öllu þessu, svo er bara að sjá hvort hægt verður að fara eftir því...

14.9.04

Veiði

Þá er veiðiferðinni lokið og kannski hægt að fara að snúa sér að skólanum og vinnunni aftur! Krossáin var alveg yndisleg og veiddust 3 laxar í ferðinni og nokkrir litlir sjóbirtingar. Með veiðinni komum við ánni í 200 laxa en metið þar er 212 að sögn Trausta bónda að Á. Við fengum ágætisveður, reyndar var ansi kalt í gær og vindasamt allan tímann, en lopapeysan góða bjargaði því alveg. Veiðihúsið var líka mjög flott, burstahús sem stendur alveg við árbakkann þannig að maður sofnar við árniðinn. Húsinu er líka vel haldið við og var þetta eins og flottasti sumarbústaður. Við ákváðum í lok ferðar að þetta yrði sennilega bara árlegur túr hjá okkur og ég er strax farin að hlakka til næsta árs. Myndir úr ferðinni eru væntanlegar á síðu siggamusar en hann veiddi einmitt síðasta laxinn en Jói veiddi þann fyrsta.

10.9.04

Fjú

Maður hefur bara ekki tíma til að blogga þessa dagana. Nóg að gera síðan ég kom heim, ég er búin að vera að koma mér af stað í vinnunni sem er duldið erfitt eftir svona langt frí, skoða hvort ég sé búin að missa svakalega mikið úr skólanum (sem er nú ekkert svakalegt held ég), eiga afmæli og halda upp á það og undirbúa veiðiferð. Á morgun erum við að fara að veiða í Krossá á Skarðsströnd fram á mánudag. Hún er búin að vera mjög góð í sumar og nú er búið að rigna fullt þannig að vonandi verður mokveiði. Svo fer ég nú að byrja í þessum skóla og svona... alveg satt!

9.9.04

Afsakið

Afsakið útlitið á síðunni, myndirnar voru víst aðeins og stórar og tenglarnir því allir neðst á síðunni...

Annars langar mig að vekja athygli á nýja tungutækniblogginu, http://tunga.hexia.net, en þar verður örugglega margt gáfulegt skrifað um tungutækni... vonandi allavega.