Fyrst voru diskarnir sendir af stað á undan magnaranum í vöruhús ShopUSA í Bandaríkjunum. Allt í lagi. Nema hvað að þar sem við getum fylgst með því á netinu hvar varan er stödd í Bandaríkjunum hverju sinni sáum við að innan tveggja daga voru þeir komnir í vöruhúsið - og svo var þeim hafnað og þeir sendir til baka! Eitthvað var þetta nú dularfullt... Þá fór magnarinn af stað eftir að við sendum Amazon fyrirspurn um hvar hann væri eiginlega en þá vorum við orðin hrædd um að magnarinn færi til landsins án diskanna og að við yrðum að borga tvöfaldan sendingarkostnað. Eftir margar tilraunir til að ná í ShopUSA (alltaf á tali...) var okkur sagt að diskarnir hefðu verið sendir til baka vegna þess að pakkinn var skemmdur og að við ættum að fá nýja diska frá Amazon. Það var auðsótt mál og þjónustan hjá Amazon til fyrirmyndar. En ef við vildum fá magnarann strax til landsins (sem þá var nýskriðinn í vöruhúsið) var það ekkert mál en þá þurftum við að borga eitthvað aukalega fyrir diskana. Allt í lagi með það, við vildum fá fjandans magnarann strax heim svo að hann færi nú ekki í einhverja vitleysu. Í gær var svo stóra stundin runnin upp. Magnarinn var kominn til landsins og hægt að sækja hann til ShopUSA í Kópavogi. Við fórum spennt með hann heim og opnuðum kassann og... þar mátti finna 1 búnt ljósritunarpappír, 1 gamlan tóner í ljósritunarvél og bæklinga. Engan magnara. Stolinn. Grrrr... við ekki ánægð (eða réttara sagt alveg öskuvond á öskudaginn). Sem betur fer ætlar ShopUSA að endurgreiða okkur vöruna að fullu (enda keyptum við tryggingu með) þannig að fjárhagstjón verður ekkert en þeir buðu okkur að panta aftur og það er spurning hvort við nennum að standa í því, ætli við jöfnum okkur ekki á þessu fyrst. Og já, svo eigum við von á 2 geisladiskum í næstu viku!

Engin ummæli:
Skrifa ummæli