Ég er bara ekkert búin að komast á netið af ráði alla vikuna, hér er verið að læra í hverju horni og þar sem ekkert þráðlaust net er á heimilinu kemst ég ekkert á netið í ferðatölvunni. Vikan samt búin að vera nokkuð notaleg bara. Ég byrjaði aðventuna á að kveikja á fyrsta kertinu í fína kransinum mínum og fór svo á aðventutónleika í Bústaðakirkju þar sem frænka mín söng svo fallega með kórnum sínum. Mér finnst þetta alltaf svo hátíðleg stund og þegar allir syngja Heims um ból við kertaljós þá kemst maður bara í jólaskap!
Svo fór ég loksins á Bridget Jones og þar sem ég átti boðsmiða fyrir tvo bauð ég Svölu ofurlyfsala með mér og við skemmtun okkur ljómandi vel. Mér fannst myndin mjög skemmtileg þótt hún væri ekkert miðað við þá fyrri - mörg frábær atriði þar!
Í vikunni fór ég líka á ráðstefnu í tungutækni sem var mjög skemmtileg og gaman að sjá hvað öll þessi tungutækniverkefni sem kynnt voru eru flott! Ég bíð svo bara eftir því að það komi umfjöllun um hana í fréttum RÚV þar sem myndatökumaður æddi inn í miðjum fyrirlestri Bjössa tungutæknis - eitthvað sem mér hefði þótt mjög óþægilegt. Svekkjandi þó að menntamálaráðherra skyldi ekki sjá sér fært að komast, maður fékk á tilfinninguna að þetta væri kannski ekki nógu mikilvægt...:(
Síðasta kennslustundin mín í dag! Þetta er búið að ganga alveg ljómandi vel, fyrir utan kannski síðasta tíma þegar ég gerði vitleysur á glærunum - en eins gott að nemendurnir voru svona klárir og gátu leiðrétt mig! Núna ætla ég því að hafa glærurnar réttar og því best að fara að byrja á þeim...
2.12.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli