Snæfellsjökull í öllu sínu veldi
Þá er helginni lokið og þvílík helgi! Ég lagði af stað á Snæfellsnes á laugardag í einstakri veðurblíðu og byrjaði á að koma við hjá Jóa og strákunum þar sem þeir voru í veiðiferð við Núpá. Sögur af þeirri ferð má nánar lesa um hjá siggamusi. Þar fékk ég skilaboð um að göngugarparnir væru hálfnaðir með ferð sína yfir Jökulháls þannig að ég brunaði af stað til að hitta þau. Ég fór á mínum fjallabíl leiðina sem þau gengu, framhjá Sönghelli alveg upp að jöklinum og eftir hverja brekku tók ég andköf yfir náttúrufegurðinni og þótt ég væri pínu fegin að hafa ekki þurft að labba allar þessar brekkur hefði það nú samt verið gaman að getað notið útsýnisins í rólegheitunum. Í staðinn stöðvaði ég bílinn öðru hverju til að vippa mér út og taka myndir sem þó náðu ekki alveg að fanga fegurðina.
Útsýnið af toppnum
Þá var að ferja fólk á Arnarstapa þar sem enginn nennti að labba til baka (skil það nú ekki!). Ég keyrði með fullan bíl af fólki vestur fyrir nesið þannig að þegar komið var að Arnarstapa var búið að fara hringinn í kringum Snæfellsjökul - ekki slæmt dagsverk það.
Á niðurleiðinni hitti ég þreytta en sæla göngugarpa sem þáðu far síðasta spölinn þar sem tvísýnt var um að næðist fyrir lokun í sundlaugina í Ólafsvík. Það hafðist nú allt og var það vel þegið að skola rykið af sér þar.
Göngufólkið eftir sund
Þá var að ferja fólk á Arnarstapa þar sem enginn nennti að labba til baka (skil það nú ekki!). Ég keyrði með fullan bíl af fólki vestur fyrir nesið þannig að þegar komið var að Arnarstapa var búið að fara hringinn í kringum Snæfellsjökul - ekki slæmt dagsverk það.
Jökullinn hinum megin frá
Svo var grillað og drukkið og sungið fram á rauða nótt og í blíðviðrinu í gær fannst mér bara eins og ég hefði gengið með þeim alla leiðina. Kannski var það svefnleysið og gallaða vindsængin... kannski ekki. Hellnar voru skoðaðar í gær og síðan haldið heim á leið.
Veðrið átti stóran hlut í því hversu ferðin var vel heppnuð en ekki minni hlut átti félagsskapurinn. Ég legg það hér með til að göngugarparnir velji sér alltaf gönguleiðir sem ég get líka farið í - á bíl.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli