Alias var hörkuspennandi að venju - sjá allt um atburðarásina í kommentakerfi Svölu í dag :)
Skammstöfunin hér að ofan (ML) stendur ekki fyrir Menntaskólann að Laugarvatni heldur er þetta skammstöfun fyrir mér leiðist eins og fjölskyldumeðlimir mínir þekkja vel. Þegar ég var krakki leiddist mér stundum - enda ekki sú afþreying í boði þá og er í dag fyrir utan það að ég bjó í sveit og ekki hægt að hlaupa út að leika við aðra krakka þegar manni sýndist. Þá átti ég til að suða í mömmu minni, systur eða mágkonu mér leiiiiiðist og áttu þær þá einhvern veginn að bjarga því. Þegar á leið fór ég að stytta þetta suð og segja emm ell sem skildist strax. Ekki það að mér hafi leiðst eitthvað minna við það en þar hafið þið söguna af því þegar Valdísi leiddist.
Ég veit að það er einn dyggur lesandi sem hlustar á lögin sem ég set hérna inn, ástkær bróðurdóttir mín í Finnlandi. Jólalagið sem ég ætla að setja hér í dag er tileinkað henni en saman hlustuðum við á áðurnefnda uppáhaldshljómsveit, Wham, þegar við vorum krakkar. Þá leiddist mér sko ekki! Þetta er næstflottasta jólalag í heimi, það flottasta kemur í næstu viku. Njótið vel!
17.12.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli