16.2.05
Brrrrr
Það er hrollur í mér núna enda alveg viðurstyggilegt veður úti. Ojbarasta. Ég vona bara að þetta verði ekki til þess að ég leggist í flensu eins og Michael Jackson og fleiri! Ég var annars mjög menningarleg í gærkvöldi og fór í leikhús. Ég fór að sjá sýningu Stúdentaleikhússins, Þú veist hvernig þetta er. Mjög skemmtileg og öðruvísi sýning. Reyndar voru engin sæti fyrir áhorfendur þannig að ég var orðin ansi þreytt í fótunum í lokin en þetta var bara soldið eins og að vera á tónleikum. Ég mæli sem sagt alveg með sýningunni en því miður of seint því að allra síðasta sýning er í kvöld!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli