28.10.04

Nesið rúlar!

Já, þjónusta þeirra fyrirtækja sem ég hef skipt við í gegnum árin er einna best á Seltjarnarnesi skv. óformlegri þjónustukönnun. Í haust nefndi ég frábæra þjónustu Bílaness þegar bíllinn fór í viðgerð og nú voru það öðlingarnir í Nesdekki sem stóðu sig með prýði. Í gær hringdi Nonni sjálfur í mig og sagði að dekkin væru komin og í morgun fór ég að fá þau undir bílinn. Reyndar varð þetta ansi dýrt spaug en þó fékk ég gott verð á nöglunum (þeir fylgja sko ekki með dekkjunum...) og fékk staðgreiðsluverð á visakortið! Mjög almennilegir þarna á Nesinu:)

Svo er það æsispennandi Alias í kvöld þar sem vonda konan sem lítur alveg eins út og besta vinkona Sidney af því að hún þóttist vera hún og það var ekki hægt að breyta henni aftur er lifandi þótt hún hafi verið skotin þrisvar í síðustu seríu og reyndar líka næstum því drepin í síðasta þætti en drap svo alla í sjúkrabílnum og stakk af! Skilduð þið þetta?! Get ekki beðið...

Engin ummæli: