16.9.04

Tónleikar

Nú virðist vera komið að seinni tónleikahrinu ársins hjá mér. Framundan eru snilldartónleikar með Blonde Redhead, The Fall og Airwaves. Fyrir utan hvað mig langar á Damien Rice og Lisu Ekdahl en það er víst ekki á allt farið...

Blonde Redhead


Fyrst á stokk stíga Blonde Redhead, snilldarhljómsveit sem hefur komið hingað áður á upprisuhátíð Hljómalindar um árið. Þá spiluðu þeir í Laugardalshöll, sem var nú alveg glatað - alltof stór staður fyrir svona hljómsveit, enda virkaði salurinn tómur með nokkur hundruð manns. Nú á að skella þeim í Austurbæ sem er líka alveg glatað. Þetta er ekki sitjandi-tónleika-hljómsveit! Af hverju er ekki hægt að hafa þetta t.d. á Nasa? Ég hefði haldið að það ætti betur við. Ég hlakka samt rosalega til enda hrifin af öllu sem þau hafa gert.

The Shins

Í október er það Airwaves hátíðin og er ég búin að fjárfesta í passa á alla tónleikana. Ég þekki nú ekki nærri því allt sem verður þar í boði en hef þó hlustað á Keane og The Shins sem ég er mjög hrifin af. Það er bara spurning um að fara að finna sér eitthvað meira á netinu! Ég hlakka líka til að sjá eitthvað af íslensku hljómsveitunum og sá að Slowblow voru að bætast í hópinn. Reyndar hita þeir upp fyrir Blonde Redhead þannig að aldrei þessu vant eru þeir út um allt í ár!


Mark E. Smith í gamla daga

Svo eru það The Fall. Þeir hafa víst komið hingað tvisvar áður en þá var ég svona 6-7 ára og komst ekki... Þeir hafa gefið út allavega eina plötu á ári frá 1979 og á ég ekki allar plöturnar! Ég hef þó hlustað á einar 5 plötur eða svo eru þeir í miklu uppáhaldi hjá mér. Þið sjáið af þessu að það er nóg framundan og ef ég gæti myndi ég fara að sjá Damien Rice og Lisu Ekdahl en það er víst ekki í boði núna nema ég sleppi því bara að gefa jólagjafir í ár...

Engin ummæli: