18.3.05

Föstudagur... aftur

Þá er það bara síðasta helgi fyrir páska. Henni verður nú mestmegnis eytt í lærdóm en svo eru líka tónleikar annað kvöld sem ég ætla á. Fnnska hljómsveitin 22 Pistepirrko ætlar að spila á Nasa mér til mikillar gleði og ánægju. Þetta er hljómsveit sem ég er búin að hlusta ansi lengi á en þeir hafa víst komið tvisvar áður til landsins. Mig langaði alveg óskaplega að fara þá (´91 og ´93) en var svo ung og saklaus að ég komst ekki... Ég vona bara að þeir taki eitthvað gamalt og gott sem ég þekki. Hér er frábært lag með þeim sem ég vona að þeir spili. Hvað skyldi pistepirrko annars þýða? Svar óskast takk fyrir!

Svo eru Franz Ferdinand bara að koma í maí. Þetta fer vel af stað í ár en verður nú sennilega ekki sama brjálæðið og í fyrra þegar voru tónleikar í hverri viku. Sérstaklega þegar Laugardalshöllin verður lokuð mestallt árið.

En... best að fara að læra. Hafið það gott um helgina börnin góð og ekki stelast í páskaeggin strax :)

Engin ummæli: