8.1.05

Laugardagur

Jájá, maður er bara alveg dottinn út úr þessu bloggstússi! Það er svona þegar maður er lítið fyrir framan tölvuna, þetta kemur allt eftir helgina þegar maður þarf að fara að læra. Skólinn byrjar semsagt á mánudaginn og leggst það bara ágætlega í mig. Stundataflan er ágæt að sjá, ég er ekki nema einu sinni í viku klukkan átta en annars yfirleitt fyrir hádegi.

Ég er líka búin að hafa nóg fyrir stafni í vikunni, saumaklúbbur á mánudag og bíó á þriðjudag. Sá Ocean´s Twelve sem kom skemmtilega á óvart. Ég hafði ekki séð fyrri myndina en hafði mjög gaman af þessari. Svo var það þrettándaboð á fimmtudaginn með þvílíkum veitingum. Þar var líka spilað Trivial og nokkrum rakettum skotið upp í lokin. Svo vorum við með fólk í mat í gærkvöldi og í kvöld er afmælisveisla... Blogga svo meira þegar ég er í stuði til þess - það verður örugglega eftir helgina.

Engin ummæli: