Haldiði að það sé ekki þriðjudagur?! Hverjar eru líkurnar á því? Þetta er sumsé þriðjudagurinn þriðji í páskum, mjög erfiður dagur að öllu leyti. Maður þarf að trappa sig niður eftir súkkulaðiát og sukk helgarinnar. Ekki samt halda að ég hafi verið að sukka í brennivíni alla helgina, því fer fjarri, heldur var sukkað í mat og tilheyrandi og ég tel að það sé ekkert auðveldara að ná sér eftir svoleiðis sukk...
Byrjað var á fermingarveislu á skírdag sem var alveg frábær. Snillingurinn hún systir mín sá að mestu um matinn sjálf og þvílíkar kræsingar! Fermingarbarnið stóð sig með prýði og var mjög lukkulegur með daginn. Svo var brunað í sveitina eftir veisluna og þar slakaði maður á í vorloftinu sem lék um mann. Það var farið í göngutúr (minn var reyndar styttri en hinna), spilað Scrabble (en ekki hvað?), brennimerktar rollur í fjárhúsunum, spiluð félagsvist á þremur borðum í Dísukoti og lesið og sofið og borðað... Í raun merkilegt hvað maður náði að gera mikið af litlu á ekki lengri tíma! Í dag er ég svo að drepast í bakinu eftir alla letina og get eiginlega ekki beðið eftir að fara í Gáska á morgun að sprikla og fá nudd. En þangað til er það lærdómurinn. Nú er það ekkert nema harkan sex fram á vor!
29.3.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli