6.12.04

Mánudagur

Þá er áthelgin mikla búin og við tekur svelti fram að jólum! Á föstudaginn fór ég á jólahlaðborð á Hótel Borg með vinahópnum - Önnu, Svölu, Ólöfu, Hrafni, Möggu, Sigfúsi, Birnu og Sigga. Ljómandi fínt kvöld í alla staði - maturinn aldeilis fínn og það var mjög fyndið að líta yfir hópinn eftir matinn, allir geispandi og gapandi með bumbuna út í loftið! Á laugardaginn fór ég í sveitina í meira át, laufabrauðsgerð um daginn og annað hlaðborð um kvöldið. Nýsteikt laufabrauð og annar veislumatur. Aftur varð maður of saddur og valt útaf eftir matinn.


Image Hosted by ImageShack.us



Ég elska Gretti, við eigum svo margt sameiginlegt - finnst gott að borða og leggja okkur!

Engin ummæli: