21.11.04

Sunnudagur

Prófið í gær gekk alveg hreint bærilega - kannski að maður reddi þessu lokaprófi bara eftir allt saman! Eftir prófið sótti Selma frænka mig og við fórum í þessa fínu afmælisveislu í sveitinni. Borðið var hlaðið af alls kyns veitingum og hafði yngra afmælisbarnið bakað helling sjálf ásamt bróður sínum - og þau bara 8 og 12 ára! Lúxus hjá mömmunni að eiga svona fyrirmyndarbörn. Svo var maður eiginlega afvelta fram að kvöldmat en þá var meiri veisla alveg ljómandi fín.

Sveitin skartar sínu fegursta þessa dagana, allt á kafi í snjó og rosa jólalegt. Ég vona að það verði svona snjór yfir öllu á jólunum en samt ekki blindbylur... það verður að vera fært í sveitina. Það væri nú samt týpískt að það yrði bara rok og rigning - en ég er samt farin að hlakka fáránlega mikið til jólanna og held ég megi það bara, aðventan byrjar nú bara næstu helgi þannig að fer að styttast í þetta!

Engin ummæli: