Hafiði tekið eftir því að ég skrifa soldið mikið um tónlist? Hmm... sennilega! Æi, þetta endar alltaf þannig hjá mér, enda svosum lítið annað við að vera þessa dagana. Airwaves er einmitt í gangi um helgina og alveg nóg að gera. Það voru tónleikar bæði í gærkvöldi og fyrrakvöld sem voru mjög skemmtilegir og svo er fullt að gera í kvöld. Þeir tónleikar sem eru búnir voru aðallega á einum stað en í kvöld vandast málið því að ég sé fram á að þurfa að flakka á milli svona 5 staða til að sjá það sem er spennandi - enda ætla ég bara að vera á bíl! Á morgun verð ég hins vegar aðallega á Gauknum og ætli maður fái sér ekki bara öl í tilefni þess og skilji bílinn eftir...
Föstudagsstuðið hlýtur því að vera með The Shins þar sem þeir verða á Gauknum annað kvöld. Njótið vel og góða helgi!
22.10.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli