15.9.04

Stress

Já, það er svona að hanga bara í fríi alla daga, verkefnin sem bíða manns eru svo mörg og mikil. Bíllinn þurfti nú að bila þegar við komum að utan þannig að ég fór með hann á verkstæði í gær. Öðlingarnir hjá Bílanesi tóku hann að sér og skutluðu mér svo heim þar sem ég varð hálfgerður strandaglópur því ekki geng ég langar vegalengdir ennþá. Í dag var svo bíllinn tilbúinn og það var bara náð í mig aftur! Þvílík og önnur eins þjónusta. Ekki nóg með það heldur var hliðarspegillinn líka brotinn á bílnum og ég spurði hvort að það þyrfti að kaupa alveg nýtt stykki. Neinei, sagði maðurinn, ég get bara sent þetta fyrir þig í pósti norður til kunningja míns sem býr til spegil í þetta fyrir skít og kanil. Þannig að nú er spegillinn á leiðinni norður með pósti og ég fæ hann aftur í næstu viku þar sem þeir skella honum bara á bílinn! Hann hefði auðveldlega getað sagt mér að kaupa nýtt stykki á 30.000 kr. í stað þess að hafa fyrir því að senda stykkið með pósti norður og setja í seinna. Og þetta kostar mig svona undir 2000-kalli. Ég mæli sem sagt með Bílanesi úti á Seltjarnarnesi, ég hef oft farið þangað með bíla í viðgerð og alltaf fengið toppþjónustu.

Annars er ég búin að vera að undirbúa fyrstu kennslustundina mína. Þá fyrstu sem ég kenni. Ég lét plata mig í að vera aðstoðarkennari í vetur á meðan ég var úti. Ég sat í makindum úti á svölum með bjór í hendi þegar síminn minn hringdi og var þá á línunni maður sem vildi endilega fá mig til að kenna aðeins í vetur. Ég var í svo góðum fíling að ég játaði umsvifalaust og nú sit ég sveitt að skrifa fyrirlestur um hljóðeðlisfræði! Reyndar eru þetta alls 3 skipti sem ég á að vera með fyrirlestur en annars er þetta aðallega að fara yfir heimaverkefni vikulega og vera með aukatíma þar sem farið er yfir þau. Ég hef verið aðstoðarkennari áður en þá þurfti ég ekkert að kenna heldur bara að fara yfir verkefnin þannig að ég er bara ansi stressuð hreint núna.

Svo er það blessuð tölfræðin. Ég fór í fyrsta tímann í henni og skil bara ekki baun í bala. Ég var aðeins búin að lesa yfir efnið sem var búið að fara í þannig að ég kom nú ekki alveg af fjöllum en ég er ekkert farin að reikna ennþá... þannig að það er næst á dagskrá. Út af öllu þessu hefur svo töluverkefnið minn setið á hakanum í nokkra daga en vonandi fyrirgefst mér það. Ég fer að gera almennilega stundatöflu sem gerir ráð fyrir öllu þessu, svo er bara að sjá hvort hægt verður að fara eftir því...

Engin ummæli: